Jafn vinsælir og Obama

Rick Perry fer með bæn.
Rick Perry fer með bæn. Reuters

Repúblikanarnir Mitt Romney, Rick Perry, Ron Paul og Michele Bachmann mælast með svipaðan stuðning og Barack Obama Bandaríkjaforseti á meðal skráðra kjósenda í nýrri Gallup-könnun þar sem kjósendur eru spurðir út í álitlegasta frambjóðandann.

Niðurstöðurnar undirstrika erfiða stöðu Obamas sem hét því að reisa við efnahagslífið þegar hann komst til valda eftir sigur í forsetakosningunum 2008. Atvinnuleysi er hins vegar enn mikið og hagvöxtur lítill á bandarískan mælikvarða.

Spurningunum var þannig stillt upp að spurt var um hvorn valkostinn kjósendur vildu, forsetann eða einn fjórmenninganna.

Varð niðurstaðan sú að Romney (48%) naut meiri stuðnings en Obama (46%). Perry og Obama voru jafnir með 47%. Obama hafði hins vegar betur gegn Ron Paul, mældist með 47% stuðning en Paul með 45%. Þá var forsetinn með forskot á Bachmann, eða 48% á móti 44% stuðningi við „drottningu reiðinnar“, eins og tímaritið Newsweek kýs að kalla hana. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert