Samskiptasíður og óeirðirnar í Bretlandi
Stjórnendur Facebook, Twitter og BlackBerry eru boðaðir á fund hjá innanríkisráðherra Bretlands til að ræða óeirðirnar í Bretlandi, þar sem talið er að óprúttnir notendur ofangreindra samskiptasíðna hafi átt þátt í að kynda undir óeirðunum í Bretlandi. Þetta kemur fram á fréttavef Sky News.
Theresa May, innanríkisráðherra Bretlands, hefur sent frá sér tilkynningu þar sem hún segist hafa boðað til fundar eftir að hugmyndir komu upp um að loka samskiptasíðum á borð við Facebook, ef sambærilegur órói kemur upp aftur.
Á fundinum verður rætt hvort lokað verði á þá notendur sem efna til slíkra vandræða.
Þjónusta eins og BlackBerry Messenger, sem gerir notendum kleift að senda ókeypis skilaboð í rauntíma, er sögð hafa kynt undir óeirðarseggjum í skipulagningu á óeirðunum.
Fulltrúi frá innanríkisráðuneytinu sagði í samtali við fréttavef Sky News að það væru engar fyrirætlanir um að loka samskiptasíðum. Hún sagði að fundurinn yrði skipaður fulltrúum frá samskiptasíðunum, lögreglunni og yfirmönnum lögreglunnar og þar yrði meðal annars rætt hvernig þessir aðilar gætu unnið saman og reynt að koma í veg fyrir skipulögð ofbeldisverk í gegnum samskiptasíður.
Ennfremur sagði hún að samskiptasíður hafi ekki verið orsök mótmælanna heldur vettvangur fyrir glæpamenn að hafa samskipti sín á milli.
Talsmaður frá fyrirtækinu Facebook sagði að fyrirtækið væri nú þegar farið að skoða þá hluti sem gætu hafa haft áhrif. Hún sagði tilhlökkunarefni að útskýra fyrir innanríkisráðuneytinu þá mælikvarða sem þeir nota til að sýna fram á að Facebook sé öruggur og jákvæður samskiptamiðill á tímum sem þessum.
Máli sínu til stuðnings sagði hún fyrirtækið hafa bent á stuðningssíðu á Facebook, sem fengið hefur eina milljón stuðningsmenn, sem ber titilinn „Supporting The Met Police Against The London Rioters“ eða síða þar sem fólk veitir lögreglunni í Lundúnum stuðning til að berjast gegn óeirðunum.
Erlent »
Miðvikudagur, 23.5.2012
-
Evruskuldabréf aftur á dagskrá
- Gróft einelti í sænskum heimavistarskóla
- Hótuðu að halda barninu eftir
- Olía alls ekki að ganga til þurrðar
- Hælisleitendur í hungurverkfalli
- Sprengjukona ekki ákærð
- Undirbúi sig fyrir grískt brotthvarf
- Romney lofar minna atvinnuleysi
- Vill skera upp herör gegn mafíunni
- Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum
- Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan
- Segja Watson fá réttláta meðferð
- Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
- Myrti dóttur sína og bútaði hana niður
- Taldi sig afhöfða geimveru
- Lifði af fall niður Niagara fossana
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
- Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu
Þriðjudagur, 22.5.2012
- Breivik fær tíma til útskýringa
- Tæp 60 þúsund í fangelsi á Kúbu
- Sagðist vera með sprengju í líkamanum
- Kennarar og nemendur mótmæla
- 14 ára skaut á skólafélaga
- Væri upphafið að endalokum evrunnar
- Ummæli prests vekja reiði
- Gríski harmleikurinn heldur áfram
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- Sýrland
- Efnahagsvandræði á evrusvæðinu
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Skuldavandi Grikklands
- Forkosningar Repúblikana 2012
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 16. ágúst 2011, Erlent Skemmdarvargar taka til
- Fimmtudagur, 22. september 2011, Erlent Gert að afhenda lögreglu myndefni
- Þriðjudagur, 8. febrúar 2011, Erlent Sádí-Arabar mótmæla á Facebook
- Sunnudagur, 12. desember 2010, Erlent Sonur Gilmours úr Pink Floyd handtekinn
- Föstudagur, 12. ágúst 2011, Erlent Átakanlegt viðtal við móður óeirðaseggs
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur
-
Kristján: Þurfum að vinna okkur út úr þessu
-
Ásmundur: Búnir að bíða lengi




































