Þernan í vanda
Herbergisþernan sem sakaði Dominique Strauss-Kahn um að hafa beitt sig kynferðislegu ofbeldi á jafnvel yfir höfði sér að verða vísað úr landi í Bandaríkjunum þar sem í ljós kom við rannsókn á kæru hennar að hún hafði logið er hún sótti um hæli í Bandaríkjunum.
Líkt og fram hefur komið féll saksóknaraembættið í New York frá málshöfðun á hendur Strauss-Kahn fyrr í vikunni en þernan, Nafissatou Diallo, hefur höfðað einkamál gegn honum í Bandaríkjunum.
Meðal þess sem nú er rætt um í bandarískum fjölmiðlum er að Strauss-Kahn gæti höfðað mál gegn henni fyrir að eyðileggja orðspor hans en hann varð að segja af sér sem framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins eftir að hann var handtekinn í kastljósi fjölmiðla um miðjan maí eftir að Diallo kærði hann fyrir nauðgun. Eins gæti hún misst vinnuna á Sofitel hótelinu í New York þar sem Strauss-Kahn átti að hafa beitt hana ofbeldi þann 14. maí sl.
Frjáls maður, Dominique Strauss-Kahn, fyrr í vikunni eftir að fallið var frá ákæru á hendur honum Reuters
Í leiðara New York Post, sem er í eigu Rupert Murdoch, í dag kemur fram að Diallo sé ekki lengur velkomin í landinu en blaðið réðst harkalega gegn Strauss-Kahn þegar málið kom upp. Segir í leiðaranum í dag að Nafissatou Diallo eigi að koma sér upp í flugvél heim til Gíneu um leið og skjalagerð verður lokið. Hún geti ekki kennt neinum um nema sjálfri sér, segir í leiðara æsifregnablaðsins.
Benjamin Brafman, lögmaður Strauss-Kahn, gagnrýnir Diallo harðlega en telur jafnframt að einhverjir hafi nýtt sér hana í annarlegum tilgangi.
Dominique Strauss-Kahn fékk hins vegar vegabréf sitt til baka í dag og það þýðir að hann getur væntanlega yfirgefið Bandaríkin fljótlega en honum hefur verið meinað að yfirgefa landið allt frá því málið kom upp um miðjan maí.
Er talið að Strauss-Kahn muni fljótlega fara heim til Frakklands en hann var á leið þangað er hann var handtekinn á Kennedy-flugvelli. Á þeim tíma þótti hann líklegastur til að verða næsti forseti Frakklands en talið er vonlaust að það verði raunin nú.
Erlent »
Miðvikudagur, 23.5.2012
-
Evruskuldabréf aftur á dagskrá
- Gróft einelti í sænskum heimavistarskóla
- Hótuðu að halda barninu eftir
- Olía alls ekki að ganga til þurrðar
- Hælisleitendur í hungurverkfalli
- Sprengjukona ekki ákærð
- Undirbúi sig fyrir grískt brotthvarf
- Romney lofar minna atvinnuleysi
- Vill skera upp herör gegn mafíunni
- Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum
- Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan
- Segja Watson fá réttláta meðferð
- Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
- Myrti dóttur sína og bútaði hana niður
- Taldi sig afhöfða geimveru
- Lifði af fall niður Niagara fossana
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
- Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu
Þriðjudagur, 22.5.2012
- Breivik fær tíma til útskýringa
- Tæp 60 þúsund í fangelsi á Kúbu
- Sagðist vera með sprengju í líkamanum
- Kennarar og nemendur mótmæla
- 14 ára skaut á skólafélaga
- Væri upphafið að endalokum evrunnar
- Ummæli prests vekja reiði
- Gríski harmleikurinn heldur áfram
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- Sýrland
- Efnahagsvandræði á evrusvæðinu
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Skuldavandi Grikklands
- Forkosningar Repúblikana 2012
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 26. september 2011, Erlent Strauss-Kahn fer fram á frávísun
- Miðvikudagur, 28. mars 2012, Erlent Strauss-Kahn fyrir rétti í New York
- Mánudagur, 22. ágúst 2011, Erlent Vísbendingar um kynferðisleg samskipti
- Mánudagur, 8. ágúst 2011, Erlent Þernan stefnir Strauss-Kahn
- Þriðjudagur, 15. maí 2012, Erlent Strauss-Kahn kærir þernuna
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur
-
Kristján: Þurfum að vinna okkur út úr þessu
-
Ásmundur: Búnir að bíða lengi





































