„Krefjandi verkefni“
Helle Thorning-Schmidt, verðandi forsætisráðherra Danmerkur, segist ekkert geta gefið upp um hversu langan tíma stjórnarmyndunarviðræður gætu tekið. „Þær hafa yfirleitt tekið rúman tíma og við tökum okkur þann tíma sem við þurfum,“ sagði Helle í samtali við dönsku sjónvarpsstöðina TV2 í morgun.
Komast þarf að samkomulagi fjögurra flokka, sem eru með ólík stefnumál á ýmsum sviðum; en auk Jafnaðarmanna er talið líklegt að Sósíalíski þjóðarflokkurinn, Radikale Venstre og Enhedslisten muni hafa aðkomu að nýrri ríkisstjórn.
En Helle er hvergi bangin. „Það hefur alltaf verið krefjandi verkefni að komast að samkomulagi um að mynda ríkisstjórn. Þannig hefur það alltaf verið og þannig verður það líka núna,“ segir hún.
Úrslit gærdagsins urðu sumum flokkunum gríðarleg vonbrigði en aðrir fögnuðu mikilli fylgisaukningu. Þannig mæta þingmenn Radikale inn í stjórnarsamstarfið full sjálfstrausts eftir góðan árangur, en flokkurinn bætti við sig átta þingmönnum.
Sósíalíski þjóðarflokkurinn á aftur á móti undir högg að sækja, en hann tapaði sjö þingmönnum í kosningunum.
„Það er bæði gott og mikilvægt að Radikale hafi náð svona góðum árangri. Þau koma inn með mikið sjálfstraust, en því fylgir líka mikil ábyrgð, rétt eins og Súpermann sagði,“ segir Helle og efast ekki um að Sósíalíski þjóðarflokkurinn muni hjarna við
Helle segir að þó komandi ríkisstjórn verði að öllum líkindum vinstristjórn, þá sé hún líka opin fyrir öllum hugmyndum.
Erlent »
Miðvikudagur, 23.5.2012
-
Evruskuldabréf aftur á dagskrá
- Gróft einelti í sænskum heimavistarskóla
- Hótuðu að halda barninu eftir
- Olía alls ekki að ganga til þurrðar
- Hælisleitendur í hungurverkfalli
- Sprengjukona ekki ákærð
- Undirbúi sig fyrir grískt brotthvarf
- Romney lofar minna atvinnuleysi
- Vill skera upp herör gegn mafíunni
- Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum
- Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan
- Segja Watson fá réttláta meðferð
- Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
- Myrti dóttur sína og bútaði hana niður
- Taldi sig afhöfða geimveru
- Lifði af fall niður Niagara fossana
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
- Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu
Þriðjudagur, 22.5.2012
- Breivik fær tíma til útskýringa
- Tæp 60 þúsund í fangelsi á Kúbu
- Sagðist vera með sprengju í líkamanum
- Kennarar og nemendur mótmæla
- 14 ára skaut á skólafélaga
- Væri upphafið að endalokum evrunnar
- Ummæli prests vekja reiði
- Gríski harmleikurinn heldur áfram
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- Sýrland
- Efnahagsvandræði á evrusvæðinu
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Skuldavandi Grikklands
- Forkosningar Repúblikana 2012
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 16. september 2011, Erlent „Sigri fylgja skyldur“
- Föstudagur, 16. september 2011, Erlent Er Thorning hinn nýi Nyrup?
- Fimmtudagur, 15. september 2011, Erlent Okkur tókst það
- Mánudagur, 11. október 2010, Erlent Óeining um dönsk fjárlög
- Laugardagur, 17. september 2011, Erlent Viðræður hafnar í Danmörku
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur
-
Kristján: Þurfum að vinna okkur út úr þessu
-
Ásmundur: Búnir að bíða lengi






































