Hrapaði við áhorfendastúku
Gömul orrustuflugvél hrapaði nálægt áhorfendastúkunni á Reno flugkeppninni í Nevada. Nokkrir áhorfendur fórust og að minnsta kosti 54 slösuðust.
Staðfest er að að minnsta kosti tveir hafi farist í slysinu, annar þeirra var aldraður flugmaður orrustuflugvélarinnar. Meira en 50 slösuðust, þar af voru 15 sagðir vera alvarlega slasaðir.
Flugmaðurinn hét Jimmy Leeward og var 74 ára. Hann flaug P-51 Mustang orrustuflugvél sem kölluð var „Galloping Ghost“ (Stökkvandi vofa). Hún hrapaði við áhorfendastúku flugkeppninnar.
„Hann kom í áttina að áhorfendastúkunni og skyndilega heyrði ég smell, smá smell og flugvélin fór bara beint upp. Það var smá flökt og hún fór beint upp og eins og valt aðeins. Svo stakkst hún á nefið og fór beint niður,“ sagði einn áhorfenda.
Slysið er nú metið sem fjöldaslys. Stjórnandi Reno flugkeppninnar gat ekki staðfest fjölda látinna. „Ég get sagt að það slösuðust alls 54 og þeir hafa allir verið fluttir. Spítalarnir gefa nánari upplýsingar þegar þeir geta. En tölurnar, þetta eru bara þeir sem eru slasaðir og voru fluttir. Við erum ekki með endanlega tölu um fjölda látinna,“ sagði Mike Houghton, framkvæmdastjóri The Reno Air Racing Association.
Reno flugkeppnin fer fram við flugvöll norðan við borgina. Slysið þar var það nýjasta í röð banaslysa sem orðið hafa á flugsýningum í Bandaríkjunum síðan í ágúst s.l.
Erlent »
Miðvikudagur, 23.5.2012
-
Evruskuldabréf aftur á dagskrá
- Gróft einelti í sænskum heimavistarskóla
- Hótuðu að halda barninu eftir
- Olía alls ekki að ganga til þurrðar
- Hælisleitendur í hungurverkfalli
- Sprengjukona ekki ákærð
- Undirbúi sig fyrir grískt brotthvarf
- Romney lofar minna atvinnuleysi
- Vill skera upp herör gegn mafíunni
- Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum
- Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan
- Segja Watson fá réttláta meðferð
- Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
- Myrti dóttur sína og bútaði hana niður
- Taldi sig afhöfða geimveru
- Lifði af fall niður Niagara fossana
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
- Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu
Þriðjudagur, 22.5.2012
- Breivik fær tíma til útskýringa
- Tæp 60 þúsund í fangelsi á Kúbu
- Sagðist vera með sprengju í líkamanum
- Kennarar og nemendur mótmæla
- 14 ára skaut á skólafélaga
- Væri upphafið að endalokum evrunnar
- Ummæli prests vekja reiði
- Gríski harmleikurinn heldur áfram
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- Sýrland
- Efnahagsvandræði á evrusvæðinu
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Skuldavandi Grikklands
- Forkosningar Repúblikana 2012
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 17. september 2011, Erlent Þrennt ferst á flugsýningu
- Laugardagur, 17. september 2011, Erlent Níu látnir eftir flugslysið
- Laugardagur, 25. júní 2011, Erlent Lestarslys í Nevada
- Mánudagur, 30. janúar 2012, Erlent 10 létust i fjöldaárekstri
- Laugardagur, 19. nóvember 2011, Erlent Mannskæð umferðarslys í Þýskalandi
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur
-
Kristján: Þurfum að vinna okkur út úr þessu
-
Ásmundur: Búnir að bíða lengi




































