„Dæmd til að mistakast“
Benjamín Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, segir umsókn Palestínumanna um að vera teknir inn í Sameinuðu þjóðirnar dæmda til að mistakast. Þeir muni á endanum leita eftir því að viðræður verði teknar upp að nýju.
„Sú tilraun mun mistakast þar sem hún þarf að fara í gegnum öryggisráðið,“ sagði Netanyahu við upphaf ríkisstjórnarfundar í dag.
Mahmud Abbas, forseti Palestínumanna, hafði lofað að hann myndi óska eftir aðild að SÞ við öryggisráðið á föstudag þrátt fyrir einarða andstöðu Ísraelsmanna og Bandaríkjamanna. Segja ríkisstjórnir landanna að aðeins beinar viðræður geti leyst deilu Palestínumanna og Ísraela. Hafa bandarísk stjórnvöld þegar lýst því yfir að þau beiti neitunarvaldi sínu til að koma í veg fyrir tilraun Palestínumanna eins og þau hafa margsinnis gert í málefnum Ísraels.
„Vegna þeirra aðgerða sem Bandaríkin hafa gripið til og annarra ríkisstjórna sem við og Bandaríkjamenn vinnum með spái ég að þessi tilraun mistakist. Á endanum, þegar hægist um og eftir allt sem gerist hjá SÞ, vona ég að Palestínumenn átti sig, hætti þessum tilraunum til þess að fara í kringum samningaviðræður og komi aftur að samningaborðinu til að koma á friði við okkur og nágranna okkar,“ sagði Netanyahu.
Sagðist hann ennfremur ætla að ávarpa SÞ í vikunni og reyna að fá Palestínumenn til að halda áfram samningaumleitunum.
Bloggað um fréttina
-
Jón Baldur L'Orange Er ekki alltaf farsælast að semja? -
Sigurður M Grétarsson Það er tilgangslaust að vera í samningaviðræðum við þjóð sem ... -
Torfi Kristján Stefánsson Komi aftur að samingaborðinu!! -
Mofi Örbirgðin á Gaza -
Jónatan Karlsson Sælir eru .......
Erlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- Fordæma morð á óbreyttum borgurum
- Háaldraður stríðsglæpamaður látinn
- Hertar innflytjendareglur ef evran hrynur
- Skaut af handahófi
- Vill endurvekja egypsku byltinguna
- Gómuðu gengi hjólaþjófa
- Pútín fagnar bróður í anda
-
Lokaæfingar í Bakú
- Jarðsett 20 árum eftir dauðann
- Bakúbúar í startholunum
- Medvedev formaður Sameinaðs Rússlands
- Tveir létust í árás í Finnlandi
- Kennurum voru sýnd kynfæri nemenda
- Segja kjarnorkutilraunir friðsamlegar
- Skothríð í Finnlandi
- Segja fjöldamorð framið í Sýrlandi
- Vill fyrir Mannréttindadómstólinn
- Áframhaldandi mótmæli í Sýrlandi
- Úran í Íran auðugra en talið var
- „Duglegasti“ Eurovision keppandinn
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
- Fær 3.000 ár til að borga skattaskuld
- Starfsmaður Vatíkansins handtekinn
- Þjóðverjar vilja Grikki af evrusvæðinu
- Ferrari innkallar 56 bíla
- Breivik vildi plástur á fingurinn
- Meirihluti Skota andvígur sjálfstæði
- Vill að viðskiptaþvingunum verði aflétt
- Mursi mæti Shafiq
- Fangar ósáttir við óhrein hnífapör
- Tókst að góma flóttamörgæsina 337
- Skaut son sinn og framdi síðar sjálfsvíg
- Veitir fjölskyldunni vonandi einhvern frið
- Meintur fjöldamorðingi í haldi
- Búsáhaldabylting í Quebec
- Stjórnendur Rena dæmdir í fangelsi
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
- Hollande í Afganistan
- Jarðskjálfti í Christchurch
- Sýrland
- Skuldavandi Grikklands
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Efnahagsvandræði á evrusvæðinu
- Forkosningar Repúblikana 2012
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 19. september 2011, Erlent Netanyahu vill hitta Abbas
- Mánudagur, 19. september 2011, Erlent Reyna að finna lausn á deilum
- Föstudagur, 23. september 2011, Erlent Rétta fram sáttarhönd
- Miðvikudagur, 21. september 2011, Erlent Engar hjáleiðir að friði
- Fimmtudagur, 3. nóvember 2011, Erlent Ísraelar frysta greiðslu UNESCO
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju


































