Tengdafaðirinn handtekinn með klám
Tengdafaðir konu sem hvarf fyrir tveimur árum í Utah í Bandaríkjunum var í gær ákærður fyrir gægjuhneigð og dreifingu barnakláms. Þegar lögregla rannsakaði hvarf konunnar fundust þúsundir mynda af konum sem hann hafði tekið upp á myndband án þeirra vitundar, meðal annars af tengdadóttur hans.
Verður farið fram á gæsluvarðhald yfir manninum, Steven Powell, í dag en hann var handtekinn í gær. Er ákæran yfir honum í fjórtán liðum og er snýr ein þeirra að dreifingu barnakláms. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu er meðal mynda sem fundust af stúlkubörnum á aldrinum 8-10 ára.
Powell er faðir Josh Powell, eiginmanns Susan, konunnar sem hvarf, en eiginmaðurinn hefur hingað til verið sá eini sem hefur legið undir grun í málinu samkvæmt frétt ABC. Josh sagði lögreglu að hann hefði verið í útilegu með sonum þeirra hjóna þegar hún hvarf hinn 6. desember 2009. Drengirnir voru tveggja og fjögurra ára gamlir þegar móðir þeirra hvarf.
Undanfarna daga hefur lögregla verið með leitarhunda á svæðinu þar sem Josh sagðist hafa verið í útilegu en engin ummerki eftir Susan hafa fundist á staðnum.
Í sjónvarpsviðtali við þá feðga í síðasta mánuði sögu þeir að Susan hefði verið lauslát, í andlegu ójafnvægi og í sjálfsvígshugleiðingum. Fjölskylda hennar hefur hins vegar harðneitað þessari lýsingu feðganna.






