Tomas Tranströmer fær Nóbelsverðlaunin

Mikil eftirvænting ríkir jafnan þegar tilkynnt er hver hljóti bókmenntaverðlaun …
Mikil eftirvænting ríkir jafnan þegar tilkynnt er hver hljóti bókmenntaverðlaun Nóbels. Hér bíða blaðamenn eftir tilkynningunni.

Sænska ljóðskáldið Tomas Tranströmer hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels í ár. Peter Englund, ritari sænsku akademíunnar, tilkynnti um verðlaunin í Stokkhólmi í dag.

Tranströmer, sem er áttræður að aldri, hefur lengi verið orðaður við verðlaunin. Í tilkynningu sænsku akademíunnar segir, að Tranströmer hljóti verðlaunin vegna þess að hann bregði upp nýstárlegri mynd af raunveruleikanum með samanþjöppuðum og hálfgegnsæjum myndum. 

Tranströmer fæddist í Stokkhólmi 15. apríl 1931. Hann lagði stund á nám í bókmenntum, sagnfræði, trúarbragðafræði og sálfræði við Stokkhólmsháskóla og starfaði í kjölfarið m.a. sem sálfræðingur á Roxtuna-upptökuheimilinu og hjá sænsku vinnumarkaðsstofnuninni í Västerås. Árið 1990 fékk Tranströmer heilablóðfall og missti við það málið.

Fyrsta ljóðabók Tranströmers, 17 dikter, kom út 1954 og hlaut mikið lof.  Hann hefur síðan gefið út margar ljóðabækur, sem hafa verið þýddar á önnur tungumál. Hann gaf út endurminningar sínar, Minnena ser mig, árið 1993. Hann fékk bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs árið 1990 fyrir bókina För levande och döda.

Nokkrar bóka Tranströmers hafa komið út á íslensku. Ingibjörg Haraldsdóttir þýddi bókina Sorgegondolen, sem kom út 1996 á sænsku og nefnist hún Sorgargondóll á íslensku. Áður höfðu Njörður P. Njarðvík og Jóhann Hjálmarsson m.a. þýtt ljóð eftir Tranströmer. 

Fyrri bókmenntaverðlaunahafar:

2010: Mario Vargas Llosa, Perú
2009: Herta Müller, Þýskalandi
2008: Jean-Marie Gustave Le Clézio, Frakklandi
2007: Doris Lessing, Englandi
2006: Orhan Pamuk, Tyrklandi
2005: Harold Pinter, Englandi
2004: Elfriede Jelinek, Austurríki
2003: John Maxwell Coetzee, Suður-Afríku
2002: Imre Kertesz, Ungverjalandi
2001: V.S. Naipaul, Breti frá Trinidad
2000: Gao Xingjian, Frakki fæddur í Kína
1999: Günter Grass, Þýskalandi
1998: José Saramago, Portúgal
1997: Dario Fo, Ítalíu
1996: Wislawa Szymborska, Póllandi
1995: Seamus Heaney, Írlandi
1994: Kenzaburo Oe, Japan
1993: Toni Morrison, Bandaríkjunum
1992: Derek Walcott, Sankti Lúsíu
1991: Nadine Gordimer, Suður-Afríki
1990: Octavio Paz, Mexíkó
1989: Camilo Jose Cela, Spáni
1988: Naguib Mahfouz, Egyptalandi
1987: Joseph Brodsky, Bandaríkjamaður fæddur í Rússlandi
1986: Wole Soyinka, Nígeríu
1985: Claude Simon, Frakklandi
1984: Jaroslav Seifert, Tékklandi
1983: William Golding, Bretlandi
1982: Gabriel Garcia Marquez, Kólumbíu
1981: Elias Canetti, Breti fæddur í Búlgaríu
1980: Czeslaw Milosz, Bandaríkjamaður fæddur í Póllandi
1979: Odysseus Elytis, Grikklandi
1978: Isaac Bashevis Singer, Bandaríkjamaður fæddur í Póllandi
1977: Vicente Aleixandre, Spáni
1976: Saul Bellow, Bandaríkjamaður fæddur í Kanada
1975: Eugenio Montale, Ítalíu
1974: Eyvind Johnson og Harry Martinson, Svíþjóð
1973: Patrick White, Ástrali fæddur á Bretlandi
1972: Heinrich Böll, Þýskalandi
1971: Pablo Neruda, Chile
1970: Alexander Solzhenitsyn, Rússlandi
1969: Samuel Beckett, Írlandi
1968: Yasunari Kawabata, Japan
1967: Miguel A. Asturias, Gvatemala
1966: Shmuel Y. Agnon, Ísraeli fæddur í Póllandi, og Nelly Sachs, Svíi fædd í Þýskalandi
1965: Mikhail Sholokhov, Rússlandi
1964: Jean-Paul Sartre, Frakklandi (afþakkaði verðlaunin)
1963: Giorgos Seferis, Grikki fæddur í Tyrklandi
1962: John Steinbeck, Bandaríkjunum
1961: Ivo Andric, Júgóslavíu
1960: Saint-John Perse, Frakklandi
1959: Salvatore Quasimoto, Ítalíu
1958: Boris Pasternak, Sovétríkjumum
1957: Albert Camus, Frakklandi
1956: Juan Ramón Jiménez, Spáni
1955: Halldór Kiljan Laxness, Íslandi
1954: Ernest Hemingway, Bandaríkjunum
1953: Winston Churchill, Bretlandi
1952: François Mauriac, Frakklandi
1951: Pär Lagerkvist, Svíþjóð
1950: Bertrand Russell, Bretlandi
1949: William Faulkner, Bandaríkjunum
1948: Thomas Stearns Eliot, Bandaríkjunum
1947: André Gide, Frakklandi
1946: Hermann Hesse, Sviss
1945: Gabriela Mistral, Chile
1944: Johannes V. Jensen, Danmörku
1939: Frans Eemil Sillanpää, Finnlandi
1938: Pearl S. Buck, Bandaríkjunum
1937: Roger Martin du Gard, Frakklandi
1936: Eugene O'Neill, Bandaríkjunum
1934: Luigi Pirandello, Ítalíu
1933: Ivan Bunin, Sovétríkjunum
1932: John Galsworthy, Bretlandi
1931: Erik Axel Karlfeldt, Svíþjóð
1930: Sinclair Lewis, Bandaríkjunum
1929: Thomas Mann, Þýskalandi
1928: Sigrid Undset, Noregi
1927: Henri Bergson, Frakklandi
1926: Grazia Deledda, Ítalíu
1925: George Bernard Shaw, Írlandi
1924: Wladyslaw Reymont, Póllandi
1923: William Butler Yeats, Írlandi
1922: Jacinto Benavente, Frakklandi
1921: Anatole France, Frakklandi
1920: Knut Hamsun, Noregi
1919: Carl Spitteler, Sviss
1917: Karl Gjellerup og Henrik Pontoppidan, Danmörku
1916: Verner von Heidenstam, Svíþjóð
1915: Romain Rolland, Frakklandi
1913: Rabindranath Tagore, Indlandi
1912: Gerhart Hauptmann, Þýskalandi
1911: Maurice Maeterlinck, Belgíu
1910: Paul Heyse, Þýskalandi
1909: Selma Lagerlöf, Svíþjóð
1908: Rudolf Eucken, Þýskalandi
1907: Rudyard Kipling, Bretlandi
1906: Giosuè Carducci, Ítalíu
1905: Henryk Sienkiewicz, Póllandi
1904: Frédéric Mistral og José Echegaray, Spáni
1903: Bjørnstjerne Bjørnson, Noregi
1902: Theodor Mommsen, Þýskalandi
1901: Sully Prudhomme, Frakklandi

Tomas Tranströmer.
Tomas Tranströmer.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert