Ánægja með val nóbelsnefndar

Kanslari Þýskalands, Angela Merkel og utanríkisráðherra Bandaríkjanna, Hillary Clinton, eru meðal þeirra fjölmörgu sem hafa fagnað vali nóbelsverðlaunanefndarinnar í dag. Í morgun var greint frá því að þrjár konur myndu deila friðarverðlaununum í ár.

Ellen Johnson Sirleaf, forseti Líberíu, Leymah Gbowee frá Líberíu og Tawakul Karman frá Jemen.

Ellen Johnson Sirleaf, forseti Líberíu, Leymah Gbowee frá Líberíu og Tawakul Karman frá Jemen.

Thorbjørn Jagland, formaður verðlaunanefndar norska Stórþingsins, tilkynnti um verðlaunin í norska þinghúsinu klukkan 9. Sagði hann að konurnar þrjár fengju verðlaunin fyrir friðsamlega baráttu þeirra fyrir bættu öryggi kvenna og fyrir rétti kvenna til að taka fullan þátt í uppbyggingarstarfi til að tryggja frið.

„Við getum ekki náð fram lýðræði og varanlegum friði í heiminum nema konur fái sömu tækifæri og karlar til að hafa áhrif á þróun mála á öllum sviðum samfélagsins,“ sagði Jagland.

Merkel, sem nýverið var tilnefnd sem áhrifamesta kona heims í fjórða skiptið af Forbes-tímaritinu lýsti vali nefndarinnar sem góðri vísbendingu sem vonandi mundi hvetja margar konur og karlmenn í heiminum til dáða í baráttunni fyrir frelsi og lýðræði og gegn óréttlæti. Nefndi hún Karman sérstaklega í því sambandi en hún er fyrsta arabíska konan til þess að hljóta nóbelsverðlaun. Segir Merkel Karman búa við þær aðstæður að vera ekki frjáls og því vilji hún sérstaklega hrósa henni sérstaklega, sagði Merkel í dag.

Karman, er 32 ára gamall blaðamaður og aðgerðarsinni í Jemen og þriggja barna móðir. Hún hefur verið dæmd í fangelsi í nokkur skipti fyrir baráttu sína fyrir réttindum kvenna í heimalandinu, frelsi fjölmiðla og eins hefur hún barist fyrir lausn pólitískra fanga í Jemen.

Clinton hrósaði nóbelsnefndinni fyrir valið í ár og segir að það veiti réttindabaráttu kvenna innblástur sem og almennri mannréttindabaráttu í heiminum. Clinton hefur lengi barist fyrir réttindum kvenna og lýsti Gbowee og Karman sem lifandi dæmum um hvaða árangri konur geti náð við að hjálpa öðrum.

Ellen Johnson Sirleaf, sem er 72 ára, er fyrsta konan, sem kosin hefur verið forseti í Afríkuríki. Hún tók við embættinu árið 2006. Nóbelsnefndin segir í yfirlýsingu, að frá þeim tíma hafi Sirleaf lagt mikið af mörkum til að tryggja frið í Líberíu með því að beita sér fyrir efnahagslegum og félagslegum umbótum og styrkja stöðu kvenna.

Leymah Gbowee, sem er 39 ára og sex barna móðir, skipulagði samtök kvenna í Líberíu þvert á ættflokka og trúarbrögð og stuðlaði þannig að því að binda enda á langvinnt borgarastríð í landinu og tryggja þátttöku kvenna í kosningum þar. Nóbelsnefndin segir að hún hafi síðan unnið að því að auka áhrif kvenna í Vestur-Afríku eftir stríðið.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Erlent »

Frönsku reykingafólki fjölgar

Í gær, 23:30 Reykingafólki hefur farið nokkuð fjölgandi í Frakklandi þrátt fyrir reykingabann á skemmtistöðum og veitingastöðum og hærri skatta á tóbak en um þriðjungur Frakka reykir nú samkvæmt nýjum tölum. Þetta kemur fram á fréttavefnum Thelocal.fr. Meira »
Jyrki Katainen, forsætisráðherra Finnlands.

Þátttaka í vörnum Íslands ótengd NATO

Í gær, 21:27 Forsætisráðherra Finnlands, Jyrki Katainen, hafnaði því alfarið í umræðum í finnska þinginu í dag að tillaga um að Finnar tækju þátt í norrænu samstarfi við að gæta lofthelgi Íslands væri hugsuð til þess að koma Finnlandi inn í Atlantshafsbandalagið (NATO). Meira »

Embættismennirnir verði sóttir til saka

Kínverski andófsmaðurinn Chen Guangcheng.
Í gær, 23:03 Kínverski andófsmaðurinn Chen Guangcheng hvatti stjórnvöld í Kína til þess að sækja til saka löglausa embættismenn sem hefðu áreitt og misþyrmt honum, fjölskyldu hans og stuðningsmönnum viðtali við Reuters- fréttaveituna í dag sem er eitt það fyrsta sem hann hefur veitt eftir að hann kom til Bandaríkjanna síðastliðinn laugardag. Meira »

„Marshall-aðstoð“ fyrir Sýrlendinga

Frá Sýrlandi.
Í gær, 21:23 Sendiherrar og starfsmenn utanríkisþjónustunnar í um 60 löndum ræddu í dag áætlun um að koma efnahag Sýrlands til bjargar, en átök hafa staðið yfir í landinu undanfarna 14 mánuði. Fulltrúar landa Arababandalagsins, Evrópusambandsins, Persaflóaríkjanna, auk fulltrúa SÞ tóku þátt í viðræðunum. Meira »

Eldur í norskri eyju

Reyk lagði frá eyjunni Sotra í dag.
Í gær, 18:54 Slökkviliðsmenn í Bergen í Noregi hafa barist við eld í eyjunni Sotra, sem er skammt undan landi, í meira en sólarhring án árangurs. Nokkrar íbúðir hafa verið rýmdar í eyjunni og hugsanlega þarf að rýma fleiri. Þykkan reyk leggur yfir Bergen og nágrannabyggðir. Meira »

Skotar lögbinda áfengisverð

Skotar hafa bundið verð á áfengi í lög til að reyna að hemja drykkju landsmanna.
Í gær, 21:50 Skosk stjórnvöld hafa lögbundið lágmarksverð á áfengi í þeim tilgangi að stemma stigu við óhóflegri drykkju landsmanna. Ekki má selja áfengseininguna fyrir lægra verð en 50 pens frá og með apríl á næsta ári, en slík eining er skilgreind sem einn sentílítri. Meira »

Fangar látnir lausir vegna verkfalls

Frá Bergen í Noregi.
Í gær, 20:29 Tugir fanga í fangelsinu í Bergen í Noregi voru leystir úr haldi í morgun vegna verkfalls opinberra starfsmanna í landinu. Fangarnir í fangelsinu, 72 að tölu, voru kallaðir á fund í morgun þar sem þeim var tilkynnt að fangelsið yrði tæmt til þess að fangaverðirnir gætu farið í verkfall og flestir fanganna yrðu því látnir lausir. Meira »

Telja Ísrael vera „árásargjarnt“

Forseti Þýskalands, Joachim Gauck, og kanslari landsins Angela Merkel.
Í gær, 17:28 Mikill meirihluti Þjóðverja telur Ísrael vera „árásargjarnt“ og telja að Þýskaland hafi ekki lengur sérstökum skyldum að gegna gagnvart landinu samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar sem birt var í dag. Meira »

Norskir ríkisstarfsmenn geri of miklar kröfur

Jens Stoltenberg
Í gær, 16:57 Jens Stoltenberg forsætisráðherra Noregs segir að opinberir starfsmenn fari fram á of mikla launahækkun. Tilboð ríkisins um 4% launahækkun hafi verið gott. Þúsundir norskra ríkisstarfsmanna lögðu niður störf í dag, þar á meðal flest starfsfólk Óslóarháskóla. Meira »

Sundrung meðal stjórnarandstæðinga

Burhan Ghalioun fyrrverandi leiðtogi uppreisnarmanna og stjórnarandstöðunnar í Sýrlandi.
Í gær, 16:21 Burhan Ghalioun fyrrverandi leiðtogi Sýrlenska þjóðarráðsins, helstu samtaka stjórnarandstæðinga í Sýrlandi, segir að mikil sundrung sé í ráðinu og að það hafi ekki staðið sig sem skyldi í því upplausnarástandi sem ríkir í landinu. Meira »

Bud er orðinn að annars stigs stormi

Mynd tekin af gervihnetti af fellibylnum Bud.
Í gær, 16:31 Fyrsti fellibylur tímabilsins, sem nefndur hefur verið Bud, er orðinn að annars stigs stormi. Hann ferðast á 165 kílómetra hraða á klukkustund og er nú staddur undan suðvesturströnd Mexíkó. Meira »

Áfram réttað yfir Mladic

Ratko Mladic í dómsal Alþjóðadómstólsins í Haag 16. maí síðastliðinn.
Í gær, 16:02 Réttarhöldin yfir Ratko Mladic, fyrrum yfirmanni hers Bosníu-Serba í Bosníustríðinu, sem hefur viðurnefnið Slátrarinn frá Bosníu, munu halda áfram 25. júní. Gert var hlé á þeim daginn eftir að þau hófust við Alþjóðadómstólinn í Haag vegna „óreglu“ í skipulagi réttarhaldanna. Meira »

Ríkasta kona heims

Í gær, 15:28 Ástralinn Gina Rinehart er ríkasta kona heims samkvæmt því sem fram kemur í ástralska viðskiptatímaritinu BRW. Eru auðæfi Rineharts, sem er 58 ára, metin á 29 milljarða ástralska dali, eða sem samvarar 3.600 milljarða kr. Meira »

Breivik ætlar ekki að áfrýja

Norski fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik með lögmönnum sínum þeim Geir Lippestad og Vibeke Hein Bæra.
Í gær, 14:49 Norski fjöldamorðinginn Anders Behrin Breivik bað um orðið í lok réttarhaldanna yfir honum í dag. Hann sneri sér til dómaranna og sagðist hafa íhugað að áfrýja ef hann yrði fundinn sekur, en síðan komist að þeirri niðurstöðu að gera það ekki. Meira »

Lögregla stöðvar mómæli í Bakú

Frá Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan.
Í gær, 11:44 Lögreglan í Bakú stöðvaði fyrr í dag mótmæli við höfuðstöðvar ríkissjónvarpsins í landinu, framkvæmdaaðila Evróvisjón 2012. Þetta er ekki i í fyrsta skipti sem að stjórnvöldstöðva mótmæli á þessum slóðum í vikunni en mótmæli voru einnig stöðvuð mánudag, á meðan fyrri forkeppni Evróvisjón fór fram. Meira »

Draghi: Nú er komið að ögurstundu

Mario Draghi bankastjóri Evrópska seðlabankans.
Í gær, 15:23 Óvissa jókst enn á evrusvæðinu í dag eftir að slæmum efnahagshorfum var spáð, fyrst og fremst vegna ástands mála í Grikklandi. Engin lausn virðist í sjónmáli á vanda evrulandanna. Gengi evrunnar hefur ekki verið jafn lágt gagnvart Bandaríkjadollara undanfarna 22 mánuði. Meira »

Grunaður um aðild að hvarfi Etan Patz

Etan Patz hvarf fyrir 33 árum.
Í gær, 14:02 Lögreglan í New York segist hafa mann í haldi sem er grunaður að tengjast hvarfi Etan Patz árið 1979. Patz var sex ára gamall þegar hann hvarf fyrir 33 árum. Meira »

Dómarar vilja skýr svör um sakhæfi Breivik

Fjölskipaður dómur dæmir í málinu gegn Anders Behring Breivik.
Í gær, 11:41 Dómararnir í máli Anders Behring Breivik hafa sent bréf til úrskurðarnefndar í réttarlæknisfræðum þar sem þess er óskað að nefndin gefi skýrari svör um hvort hún samþykki síðara geðmatið sem gert var á Breivik, en niðurstaða þess var að hann sé sakhæfur. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
NÚ ER RÉTTI TÍMINN FYRIR TRJÁKLIPPINGAR
Nú er rétti tíminn fyrir trjáklippingar og fellingar...
HONDA ACCORD EXECUTIVE 2,4 i-VTEC 2006 - TILBOÐSVERÐ
Honda Accord Tourer Executive 2,4 i-VTEC 2006. Sjálfskiptur, ekinn aðeins 78 þ. ...
Volvo Penta báta vél til sölu.48 hp
Vél í lagi , 48 hestafla nýtekinn úr bát vegna stækkunar á vél ca árg 86 Verð c...
www.keyrsla.is Sendibílar
Heimsendingar - Búslóðaflutningar - Vörudreifing - fyrirtækjaflutningar. Öflug,G...
 
Starfsmaður í ræstingu
Ræstingar
??????????? ? ???????? ?????????? ??...
Aðalfundur búmanna hsf

Aðalfundur Aðalfundur Búmanna hsf. ver...
12836 fellahverfi - útboð

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...
15229 bílaleigubílar ríkiskaup

15229 - Bílaleigubílar - Rammasamni...