1.027 föngum sleppt fyrir einn
Palestínskar konur faðmast eftir að þær tóku þátt í aðgerðum þar sem þess var krafist að palestínskum föngum yrði sleppt. Reuters
Margir vefmiðlar á Gaza birtu í dag nöfn Palestínumanna sem talið er að verði sleppt úr ísraelskum fangelsum í skiptum fyrir ísraelska hermanninn Gilad Shalit, sem Hamas hefur haldið föngnum í um fimm ár.
Nafnalistarnir hafa ekki verið staðfestir því hvorki Ísraelsmenn né Hamas hafa tilkynnt nöfn þeirra 1.027 Palestínumanna sem ætlunin er að láta lausa í skiptum fyrir Shalit. Greint var frá samkomulaginu í kvöld.
Margir vefmiðlar sem tengjast Hamas og opinber vefsíða PRC, hóps sem átti hlut að handtöku Shalits, birtu nöfn Palestínumanna sem sagt var að yrði sleppt.
Kínverska fréttastofan Xinhua segir að Hamas samtökin hafi birt í dag upplýsingar um fangaskiptin við Ísrael sem komust á fyrir milligöngu Egypta. Samkvæmt upplýsingum fréttastofunnar verður öllum föngum sem verið hafa í haldi í meira en 25 ár sleppt.
Alls á að sleppa 262 föngum í fyrstu umferð. Þar af eru 130 frá Gaza svæðinu, 111 frá Vesturbakkanum, 15 frá Austur-Jerúsalem og sex ísraelskir Palestínumenn.
Þá verður um 25 palestínskum konum sleppt samkvæmt samkomulaginu. Auk þess verður 188 manns vísað frá Vesturbakkanum til Gaza og tveimur konum verður vísað úr landi eftir að þeim verður sleppt.
Þá nær samningurinn einnig til 315 palestínskra fanga sem eru að afplána lífstíðarfangelsi í Ísrael.
Erlent »
Miðvikudagur, 23.5.2012
-
Evruskuldabréf aftur á dagskrá
- Gróft einelti í sænskum heimavistarskóla
- Hótuðu að halda barninu eftir
- Olía alls ekki að ganga til þurrðar
- Hælisleitendur í hungurverkfalli
- Sprengjukona ekki ákærð
- Undirbúi sig fyrir grískt brotthvarf
- Romney lofar minna atvinnuleysi
- Vill skera upp herör gegn mafíunni
- Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum
- Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan
- Segja Watson fá réttláta meðferð
- Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
- Myrti dóttur sína og bútaði hana niður
- Taldi sig afhöfða geimveru
- Lifði af fall niður Niagara fossana
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
- Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu
Þriðjudagur, 22.5.2012
- Breivik fær tíma til útskýringa
- Tæp 60 þúsund í fangelsi á Kúbu
- Sagðist vera með sprengju í líkamanum
- Kennarar og nemendur mótmæla
- 14 ára skaut á skólafélaga
- Væri upphafið að endalokum evrunnar
- Ummæli prests vekja reiði
- Gríski harmleikurinn heldur áfram
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- Sýrland
- Efnahagsvandræði á evrusvæðinu
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Skuldavandi Grikklands
- Forkosningar Repúblikana 2012
Svipaðar fréttir
- Sunnudagur, 16. október 2011, Erlent Ísraelar birt nöfn fanga sem verður sleppt
- Sunnudagur, 16. október 2011, Erlent Búa sig undir heimkomu fanga
- Sunnudagur, 18. desember 2011, Erlent Palestínskum föngum sleppt
- Mánudagur, 17. október 2011, Erlent Ljóst að fangaskiptin verða á morgun
- Föstudagur, 21. janúar 2011, Erlent Utanríkisráðherra Frakklands grýttur
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur
-
Kristján: Þurfum að vinna okkur út úr þessu
-
Ásmundur: Búnir að bíða lengi





































