Búa sig undir heimkomu fanga

Palestínumenn á Gaza og Ramallah búa sig nú undir að taka á móti mörg hundruð manns sem hafa setið í ísraelskum fangelsum. En samkomulag hefur náðst á milli Ísraela og Hamas-samtakanna um fangaskipti.

Hamas hefur samþykkt að sleppa hermanninum Gilad Shalit, sem var tekinn höndum árið 2006, gegn því að Ísraelar sleppi hátt í 1.000 palestínskum föngum.

Mikil spenna er á meðal íbúa Gaza og Ramallah sem hafa beðið lengi eftir því að hitta aftur vini og ættingja sem hafa setið á bak við lás og slá. Víða er verið að undirbúa mikil hátíðarhöld. 

Móðir eins manns, sem Ísraelar hafa haft í haldi, getur ekki leynt gleði sinni. Í  samtali við Reuters segir hún frá því að heimili þeirra hafi skemmst í stríðinu milli Ísraels og Hamas. Nú vinnur hún að því að gera það upp áður en sonurinn snýr aftur heim.

Í Ramallah á Vesturbakkanum má víða sjá veggspjöld af föngum sem verður slepptl.

Stjórnvöld í Ísrael birtu í dag lista yfir þá fanga sem verður sleppt, en föngunum verður sleppt í tveimur lotum.

Undanfarin tvö ár hefur fjölskylda Shalits hafst við í tjaldi í Jerúsalem á meðan hún hefur unnið að því að fá hermanninn lausan. Í Mitzpe Hila í Ísrael, sem er heimabær Shalits, er einnig verið að undirbúa mikil hátíðarhöld, en bæjarbúar bíða spenntir eftir að fá að hitta Shalit á nýjan leik.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Erlent »

Frá mótmælum í Sýrlandi.

Öryggisráðið fordæmir stjórn Sýrlands

Í gær, 21:54 Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti í kvöld ályktun, þar sem sýrlenska ríkisstjórnin er harðlega fordæmd fyir aðild sína að fjöldamorðunum í bænum Houla í Sýrlandi. Ráðið krefst þess að þeir sem beri ábyrgð á ódæðisverkunum verði látnir svara til saka. Meira »
Frá mótmælum í Sýrlandi

Kenna eftirlitsmönnum SÞ um

Í gær, 21:40 Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, segir að fjöldamorðin í bænum Houla í Sýrlandi í gær auki mjög þrýsting á þá eftirlitsmenn SÞ sem eru í landinu. Þeim hefur verið legið á hálsi fyrir að hafa ekki staðið sig sem skyldi í eftirlitshlutverki sínu. Meira »

Getur ekki útskýrt verknaðinn

Frá vettvangi morðanna.
Í gær, 21:27 Finnski skotmaðurinn, sem myrti tvö ungmenni í bænum Hyvinkää í Finnlandi í fyrrinótt, segist iðrast gjörða sinna en getur enga grein gert fyrir þeim. Meira »

Héldu stúlku sem þræl í átta ár

Í gær, 20:21 Bosnísk hjón héldu þýskri stúlku sem þræl í átta ár, lokuðu hana inni og meinuðu henni að umgangast annað fólk. Stúlkan, sem er 19 ára, er nú undir læknishendi. Meira »

Rússar efast um sekt stjórnarinnar

Frá mótmælum í Sýrlandi.
Í gær, 19:05 Rússnesk yfirvöld segjast efast um að sýrlensk stjórnvöld beri ábyrgð á fjöldamorðunum í bænum Houla í gær, en þar létust 116 manns, þar af fjöldi barna. 300 eru særðir. Meira »

Fimm létust í loftárás

Frá Pakistan.
Í gær, 21:17 Að minnsta kosti fimm pakistanskir uppreisnarmenn létu lífið í loftárás bandaríska hersins sem gerð var skammt frá landamærum Pakistans að Afganistan, í Waziristan-héraði þar sem talibanar og hryðjuverkasamtökin al-Qaeda eru með umfangsmikla starfsemi. Meira »

Þeir sem ekki reykja fá meira frí

Sífellt fleiri atvinnurekendur í Noregi veita þeim starfsmönnum sínum sem ekki reykja aukafrídaga.
Í gær, 19:20 Sífellt fleiri atvinnurekendur í Noregi veita þeim starfsmönnum sínum sem ekki reykja aukafrídaga. Heilbrigðisráðherra Noregs, Anne-Grete Strøm-Erichsen, segist styðja tiltækið. Meira »

Danir hafa áhyggjur af spekileka

Í gær, 18:49 Á hverju ári flytja rúmlega 20.000 Danir úr landi til náms eða starfa og sífellt fleiri vel menntaðir Danir kjósa að snúa ekki aftur til síns heima. Flestir þeirra eru verkfræðingar. Meira »

Í facebookstríði við Lagarde

Grikkir eru Christine Lagarde, framkvæmdastjóra AGS, sárreiðir vegna ummæla hennar um skuldavanda Grikklands.
Í gær, 18:29 Grikkir eru Christine Lagarde, framkvæmdastjóra Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, ævareiðir vegna ummæla hennar um að hún velti því fyrir sér hvers vegna þeir væru svo fúsir til að komast hjá því að greiða skatta. Grískur almenningur hefur herjað á Lagarde á samskiptasíðunni Facebook í dag. Meira »

Fundu líkin eftir sjö vikur í snjó

Frá björgunaraðgerðum í Siachen Glacier í Kasmírhéraði í Pakistan.
Í gær, 17:16 Björgunarsveitir í Pakistan komust loksins að herbúðum á Siachen-jökli í hinu fjalllenda Kasmírhéraði, þar sem snjóflóð féll fyrir meira en sjö vikum. Björgunarmennirnir þurftu að grafa göng í gegnum geysiháa snjóskafla með aðstoð stórvirkra vinnuvéla. 140 manns létust í flóðinu. Meira »

Segjast ekki bera ábyrgð myndskeið

Damascus 'not responsible' for Houla massacre
Í gær, 17:37 Sýrlensk stjórnvöld hafna fullyrðingum um að þau beri ábyrgð á dauða rúmlega 90 óbreyttra borgara sem voru myrtir í bænum Houla í gær. Þriðjungur þeirra látnu er börn. Meira »

Var í skóla með fórnarlömbunum

Víða var flaggað í hálfa stöng í Finnlandi í dag vegna morðanna.
Í gær, 16:20 Maðurinn, sem skaut á hóp fólks í bænum Hyvinkää í Finnlandi í fyrrinótt og myrti tvö ungmenni, var kunnugur þeim. Hann gekk í sama skóla og þau tvö sem hann myrti, en var hættur í skóla fyrir nokkru. Meira »

Stokkhólmur, Gautaborg eða Malmö?

Loreen hin sænska sem vann Evróvisjónkeppnina í gær.
Í gær, 16:02 Borgaryfirvöld í Stokkhólmi, Gautaborg og Malmö hafa öll lýst sig reiðubúin til að halda Evróvisjónkeppnina á næsta ári, en hún verður haldin 18. maí. Keppnin var síðast haldin í Svíþjóð fyrir 12 árum og þá var hún í Stokkhólmi, í tónleika- og íþróttahöllinni Globen. Meira »

Sænskur unglingur varð fyrir skoti í Tyrklandi

Frá borginni Antalya í Tyrklandi.
Í gær, 15:23 17 ára sænskur drengur var skotinn í bakið síðastliðinn þriðjudag þegar hann var á ferðalagi í Tyrklandi með fjölskyldu sinni. Hann lá á sólbekk við sundlaug þegar hann varð fyrir skotinu og var í kjölfarið fluttur í skyndi á sjúkrahús í borginni Antalya þar sem fjölskyldan var í fríi og undirgekkst uppskurð sem tókst vel. Meira »

Lady Gaga aflýsir tónleikum í Jakarta

Tónleikum Lady Gaga mótmælt í Jakarta.
Í gær, 13:18 Lady Gaga hefur aflýst fyrirhuguðum tónleikum í Jakarta, höfuðborg Indónesíu, í kjölfar hótana öfgafullra íslamista um að öryggi hennar og tónleikagesta yrði ógnað færu þeir fram. Meira »

Vandi skekur Vatíkanið

Úr Vatikaninu, Péturskirkjan.
Í gær, 15:55 Páfagarður reynir enn að finna út hver standi á bak við umfangsmikinn leka á upplýsingum úr Vatíkaninu undanfarið. Trúnaðarskjölum um viðkvæm mál er varða kirkjuna hefur markvisst verið lekið í fjölmiðla og hafa menn nú þegar verið handteknir án þess að vitað sé með nokkurri vissu hver sé sökudólgurinn. Meira »

Hvetur til frelsisstríðs

Mótmælt í Sýrlandi.
Í gær, 15:12 Burhan Ghalioun, formaður Sýrlenska þjóðarráðsins, hvatti í dag til „frelsisstríðs“ gegn ríkisstjórn landsins, sem yrði háð þar til Sameinuðu þjóðirnar grípa til aðgerða. SÞ hefur heimild til hernaðarumsvifa vegna ákvæða svokallaðs sjöunda kafla. Meira »

Blóðbaðsins minnst

Frá Torgi hins himneska friðar, Tianamen torgi, í Peking í dag.
Í gær, 12:48 Hundruð lýðræðissinna fylktu liði í Hong Kong í dag til að minnast þess að 23 ár eru senn liðin frá því mótmæli stúdenta á Torgi hins himneska friðar í Peking voru brotin á bak aftur af stjórnvöldum. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Bókhaldsstofan ehf, Reykjavíkurv.60 Hfj.
Bókhald, launaútreikn., vsk-uppgjör, stofnun á félögum, ársreikningar, skattfram...
Til sölu Kia Sorento 2007 diesel 4X4 ekinn 77þús
Sjálfskiptur,hátt og lágt drif,1 eigandi,ekkert ákvílandi,dr.beisli, dr.geta 35...
Er tölvan hæg eða biluð, ódýrari tölvuaðstoð
Þjónusta fyrir þig þegar þér hentar! Tek að mér að uppfæra, rykhreinsa og laga ...
Zimmermann píanó
Til sölu vel meðfarið Zimmermann píanó. Verð 125.000. Upplýsingar í síma 84589...
 
Kennari
Grunn-/framhaldsskóla
Svalbarðsskóli í ...
Ný útboð
Tilboð - útboð
ÚTBOÐ Reykjavíkurborg Innkaupaskri...
Ársfundur byggðastofnunar 1 júní 2012
Fundir - mannfagnaðir
Ársfundur Byggðastofnunar 1. júní ...
Jobbtrygghet
Augl-/almannatengsl
JOBBTRYGGHET? UTFORDRENDE JOBB? ...