Fox braut siðareglur
Fyrrum varnarmálaráðherra Bretlands, Liam Fox, braut siðareglur bresku ríkisstjórnarinnar, samkvæmt nýrri skýrslu sem birt verður opinberlega á morgun.
Fox sagði af sér í síðustu viku vegna tengsla við kaupsýslumanninn Adam Werritty, sem mun hafa komið fram sem ráðgjafi hans án þess að gegna opinberu embætti.
Werritty er grunaður um að hafa misnotað aðstöðu sína og að hafa, áður en Fox tók sæti í ríkisstjórn, notað skrifstofu á vegum þingsins til að safna peningum í sjóð sem hann er í forsvari fyrir.
Í afsagnarbréfi sem Fox ritaði David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, kemur fram að hann hafi fyrir mistök ekki gert nægjanlega skýran greinarmun milli persónulegra hagsmuna og starfa sinna sem ráðherra.
Fox bað þingmenn afsökunar fyrir nokkrum dögum en lagði áherslu á að hann hefði aldrei teflt þjóðaröryggi í tvísýnu.
Fjallað er um skýrsluna á vefjum BBC og Sky News í kvöld en forsætisráðherra Bretlands, David Cameron, fær skýrsluna í hendur snemma í fyrramálið. Samkvæmt heimildum BBC telja skýrsluhöfundar að það hafi verið rétt ákvörðun hjá Fox að segja af sér embætti varnarmálaráðherra.
Erlent »
Miðvikudagur, 23.5.2012
-
Evruskuldabréf aftur á dagskrá
- Gróft einelti í sænskum heimavistarskóla
- Hótuðu að halda barninu eftir
- Olía alls ekki að ganga til þurrðar
- Hælisleitendur í hungurverkfalli
- Sprengjukona ekki ákærð
- Undirbúi sig fyrir grískt brotthvarf
- Romney lofar minna atvinnuleysi
- Vill skera upp herör gegn mafíunni
- Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum
- Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan
- Segja Watson fá réttláta meðferð
- Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
- Myrti dóttur sína og bútaði hana niður
- Taldi sig afhöfða geimveru
- Lifði af fall niður Niagara fossana
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
- Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu
Þriðjudagur, 22.5.2012
- Breivik fær tíma til útskýringa
- Tæp 60 þúsund í fangelsi á Kúbu
- Sagðist vera með sprengju í líkamanum
- Kennarar og nemendur mótmæla
- 14 ára skaut á skólafélaga
- Væri upphafið að endalokum evrunnar
- Ummæli prests vekja reiði
- Gríski harmleikurinn heldur áfram
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- Sýrland
- Efnahagsvandræði á evrusvæðinu
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Skuldavandi Grikklands
- Forkosningar Repúblikana 2012
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 14. október 2011, Erlent Fox segir af sér
- Mánudagur, 10. október 2011, Erlent Fox berst fyrir pólitísku lífi sínu
- Mánudagur, 10. október 2011, Erlent Fox gerði alvarleg mistök
- Sunnudagur, 16. október 2011, Erlent Íhuga að rannsaka Werritty
- Laugardagur, 8. október 2011, Erlent Hneyksli skekur bresk stjórnvöld
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur
-
Kristján: Þurfum að vinna okkur út úr þessu
-
Ásmundur: Búnir að bíða lengi




































