Mætti með vændiskonu upp á arminn

Dominique Strauss-Kahn stækka

Dominique Strauss-Kahn Reuters

Lögreglurannsókn á því hvort vændi hafi verið stundað á frönsku lúxus-hóteli hefur leitt í ljós að fyrrverandi framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, Dominique Strauss-Kahn, mætti í kynlífsveislur með vændiskonu upp á arminn sem kaupsýslumenn greiddu fyrir. Þetta kemur fram í frönskum dagblöðum í dag.

Lögregla rannsakar nú einnig ferðir kaupsýslumanna og lögreglustjóra til Washington þegar Strauss-Kahn stýrði AGS, samkvæmt fréttum dagblaðanna Liberation og Le Figaro.

Síðasta ferðin af þessum toga var farin í maí og lauk henni þann 13. maí sl. degi áður en lögreglan í New York handtók Strauss-Kahn fyrir meinta nauðgunartilraun á hóteli þar í borg. Fallið var frá ákæru á hendur honum þar sem herbergisþernan, sem kærði hann fyrir tilraun til nauðgunar, hafði orðið uppvís að lygi þegar hún sótti um landsvistarleyfi í Bandaríkjunum. Því var efast um trúverðugleika hennar sem vitnis í kynferðisbrotamálinu.

Lögreglustjórinn í Lille yfirheyrður

Nýverið var einnig hætt við rannsókn máls um hvort Strauss-Kahn hefði reynt að nauðga ungri konu Tristane Banon í París árið 2003. Var rannsókninni hætt þar sem of langt er um liðið síðan meint ofbeldi átti sér stað.

Rannsóknin á vændishringnum hófst þegar framkvæmdastjóri og yfirmaður almannatengsla á Carlton hótelinu í Lille voru handteknir og ákærðir fyrir að útvega gestum á hótelinu vændiskonur og að hafa notið til þess aðstoðar melludólgs sem er staðsettur í Belgíu.

Lögreglustjórinn í Lille, Jean-Christophe Lagarde, sem var yfirheyrður af lögreglu í gær, vegna mögulegrar aðildar að vændishringnum, á að hafa mætt í veislur á lúxus hóteli í París með vændiskonum og félaga sínum, Strauss-Kahn.

Lét fyrirtækið borga fyrir svallveislurnar

Samkvæmt frétt Le Figaro á  David Roquet, yfirmaður dótturfélags verktakafyrirtækisins  Eiffage, að hafa greitt hluta reikningsins fyrir svallveislurnar á hótelinu í París og lagt fram reikninga fyrir útlögðum kostnaði til fyrirtækisins sem hann starfar hjá. Voru upphafsstafir Strauss-Kahn, DKS, ritaðir á reikningana.

Lögregla hefur einnig yfirheyrt kaupsýslumann frá Lille, sem er nefndur Fabrice P. í gögnum lögreglu, sem einnig er talinn hafa greitt hluta reikningsins.

Samkvæmt framburði Roquet hjá lögreglu, sem Le Figaro vísar í, á Fabrice P. að hafa sagt honum að þeir borða með Strauss-Kahn og hann vildi að Roquet tæki vinkonur með og átti þar við vændiskonur.

Fyrsta boðið af þessu tagi var haldið á L'Aventure staðnum í París í mars 2009. Þar höfðu karlkynsgestirnir mök við vændiskonurnar og fóru síðan á lúxus-hótelið Morano þar sem kynlífssvallið hélt áfram, að sögn Roquet.

Slík boð voru í tvígang haldin árið 2010.  Í vitnisburði Roquet kemur fram að þeir hafi borðað fyrst saman og síðan haft mök við vændiskonurnar en hver þeirra félaga hafði vændiskonu út af fyrir sig.  Nafngreinir hann Strauss-Kahn sem einn þeirra sem tóku þátt í svallinu.

Roquet, sem var þann 14. október ákærður fyrir að stunda hórmang, segir að Strauss-Kahn hafi ekki greitt sjálfur fyrir þjónustu kvennanna né aðrar veitingar sem í boði voru fyrir karlana.

Í tilkynningu frá verktakafyrirtækinu Eiffage í dag kemur fram að Roquet hafi verið vísað frá störfum vegna rannsóknarinnar.

Heimsóttu AGS í boði Strauss-Kahn

Roquet segir að hópurinn hafi síðan farið að heimsækja höfuðstöðvar AGS í Washington í maí 2011 þar sem Strauss-Kahn hafi boðið þeim þangað. 

Spurður um hver hafi borgað flugmiðann segir Roquet að hann hafi gert samkomulag við yfirmann sinn um að greiða 3-4 þúsund evrur af reikningum, samkvæmt frétt Liberation í dag. Ekki kemur fram hver yfirmaðurinn er.

Þegar AFP fréttastofan leitaði til Strauss-Kahn um liðna helgi vegna tengsla hans við vændishringinn sagðist hann vilja ræða við dómara eins fljótt og auðið væri til að binda enda á þessar ásakanir.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Erlent »

Frönsku reykingafólki fjölgar

Í gær, 23:30 Reykingafólki hefur farið nokkuð fjölgandi í Frakklandi þrátt fyrir reykingabann á skemmtistöðum og veitingastöðum og hærri skatta á tóbak en um þriðjungur Frakka reykir nú samkvæmt nýjum tölum. Þetta kemur fram á fréttavefnum Thelocal.fr. Meira »
Jyrki Katainen, forsætisráðherra Finnlands.

Þátttaka í vörnum Íslands ótengd NATO

Í gær, 21:27 Forsætisráðherra Finnlands, Jyrki Katainen, hafnaði því alfarið í umræðum í finnska þinginu í dag að tillaga um að Finnar tækju þátt í norrænu samstarfi við að gæta lofthelgi Íslands væri hugsuð til þess að koma Finnlandi inn í Atlantshafsbandalagið (NATO). Meira »

Embættismennirnir verði sóttir til saka

Kínverski andófsmaðurinn Chen Guangcheng.
Í gær, 23:03 Kínverski andófsmaðurinn Chen Guangcheng hvatti stjórnvöld í Kína til þess að sækja til saka löglausa embættismenn sem hefðu áreitt og misþyrmt honum, fjölskyldu hans og stuðningsmönnum viðtali við Reuters- fréttaveituna í dag sem er eitt það fyrsta sem hann hefur veitt eftir að hann kom til Bandaríkjanna síðastliðinn laugardag. Meira »

„Marshall-aðstoð“ fyrir Sýrlendinga

Frá Sýrlandi.
Í gær, 21:23 Sendiherrar og starfsmenn utanríkisþjónustunnar í um 60 löndum ræddu í dag áætlun um að koma efnahag Sýrlands til bjargar, en átök hafa staðið yfir í landinu undanfarna 14 mánuði. Fulltrúar landa Arababandalagsins, Evrópusambandsins, Persaflóaríkjanna, auk fulltrúa SÞ tóku þátt í viðræðunum. Meira »

Eldur í norskri eyju

Reyk lagði frá eyjunni Sotra í dag.
Í gær, 18:54 Slökkviliðsmenn í Bergen í Noregi hafa barist við eld í eyjunni Sotra, sem er skammt undan landi, í meira en sólarhring án árangurs. Nokkrar íbúðir hafa verið rýmdar í eyjunni og hugsanlega þarf að rýma fleiri. Þykkan reyk leggur yfir Bergen og nágrannabyggðir. Meira »

Skotar lögbinda áfengisverð

Skotar hafa bundið verð á áfengi í lög til að reyna að hemja drykkju landsmanna.
Í gær, 21:50 Skosk stjórnvöld hafa lögbundið lágmarksverð á áfengi í þeim tilgangi að stemma stigu við óhóflegri drykkju landsmanna. Ekki má selja áfengseininguna fyrir lægra verð en 50 pens frá og með apríl á næsta ári, en slík eining er skilgreind sem einn sentílítri. Meira »

Fangar látnir lausir vegna verkfalls

Frá Bergen í Noregi.
Í gær, 20:29 Tugir fanga í fangelsinu í Bergen í Noregi voru leystir úr haldi í morgun vegna verkfalls opinberra starfsmanna í landinu. Fangarnir í fangelsinu, 72 að tölu, voru kallaðir á fund í morgun þar sem þeim var tilkynnt að fangelsið yrði tæmt til þess að fangaverðirnir gætu farið í verkfall og flestir fanganna yrðu því látnir lausir. Meira »

Telja Ísrael vera „árásargjarnt“

Forseti Þýskalands, Joachim Gauck, og kanslari landsins Angela Merkel.
Í gær, 17:28 Mikill meirihluti Þjóðverja telur Ísrael vera „árásargjarnt“ og telja að Þýskaland hafi ekki lengur sérstökum skyldum að gegna gagnvart landinu samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar sem birt var í dag. Meira »

Norskir ríkisstarfsmenn geri of miklar kröfur

Jens Stoltenberg
Í gær, 16:57 Jens Stoltenberg forsætisráðherra Noregs segir að opinberir starfsmenn fari fram á of mikla launahækkun. Tilboð ríkisins um 4% launahækkun hafi verið gott. Þúsundir norskra ríkisstarfsmanna lögðu niður störf í dag, þar á meðal flest starfsfólk Óslóarháskóla. Meira »

Sundrung meðal stjórnarandstæðinga

Burhan Ghalioun fyrrverandi leiðtogi uppreisnarmanna og stjórnarandstöðunnar í Sýrlandi.
Í gær, 16:21 Burhan Ghalioun fyrrverandi leiðtogi Sýrlenska þjóðarráðsins, helstu samtaka stjórnarandstæðinga í Sýrlandi, segir að mikil sundrung sé í ráðinu og að það hafi ekki staðið sig sem skyldi í því upplausnarástandi sem ríkir í landinu. Meira »

Bud er orðinn að annars stigs stormi

Mynd tekin af gervihnetti af fellibylnum Bud.
Í gær, 16:31 Fyrsti fellibylur tímabilsins, sem nefndur hefur verið Bud, er orðinn að annars stigs stormi. Hann ferðast á 165 kílómetra hraða á klukkustund og er nú staddur undan suðvesturströnd Mexíkó. Meira »

Áfram réttað yfir Mladic

Ratko Mladic í dómsal Alþjóðadómstólsins í Haag 16. maí síðastliðinn.
Í gær, 16:02 Réttarhöldin yfir Ratko Mladic, fyrrum yfirmanni hers Bosníu-Serba í Bosníustríðinu, sem hefur viðurnefnið Slátrarinn frá Bosníu, munu halda áfram 25. júní. Gert var hlé á þeim daginn eftir að þau hófust við Alþjóðadómstólinn í Haag vegna „óreglu“ í skipulagi réttarhaldanna. Meira »

Ríkasta kona heims

Í gær, 15:28 Ástralinn Gina Rinehart er ríkasta kona heims samkvæmt því sem fram kemur í ástralska viðskiptatímaritinu BRW. Eru auðæfi Rineharts, sem er 58 ára, metin á 29 milljarða ástralska dali, eða sem samvarar 3.600 milljarða kr. Meira »

Breivik ætlar ekki að áfrýja

Norski fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik með lögmönnum sínum þeim Geir Lippestad og Vibeke Hein Bæra.
Í gær, 14:49 Norski fjöldamorðinginn Anders Behrin Breivik bað um orðið í lok réttarhaldanna yfir honum í dag. Hann sneri sér til dómaranna og sagðist hafa íhugað að áfrýja ef hann yrði fundinn sekur, en síðan komist að þeirri niðurstöðu að gera það ekki. Meira »

Lögregla stöðvar mómæli í Bakú

Frá Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan.
Í gær, 11:44 Lögreglan í Bakú stöðvaði fyrr í dag mótmæli við höfuðstöðvar ríkissjónvarpsins í landinu, framkvæmdaaðila Evróvisjón 2012. Þetta er ekki i í fyrsta skipti sem að stjórnvöldstöðva mótmæli á þessum slóðum í vikunni en mótmæli voru einnig stöðvuð mánudag, á meðan fyrri forkeppni Evróvisjón fór fram. Meira »

Draghi: Nú er komið að ögurstundu

Mario Draghi bankastjóri Evrópska seðlabankans.
Í gær, 15:23 Óvissa jókst enn á evrusvæðinu í dag eftir að slæmum efnahagshorfum var spáð, fyrst og fremst vegna ástands mála í Grikklandi. Engin lausn virðist í sjónmáli á vanda evrulandanna. Gengi evrunnar hefur ekki verið jafn lágt gagnvart Bandaríkjadollara undanfarna 22 mánuði. Meira »

Grunaður um aðild að hvarfi Etan Patz

Etan Patz hvarf fyrir 33 árum.
Í gær, 14:02 Lögreglan í New York segist hafa mann í haldi sem er grunaður að tengjast hvarfi Etan Patz árið 1979. Patz var sex ára gamall þegar hann hvarf fyrir 33 árum. Meira »

Dómarar vilja skýr svör um sakhæfi Breivik

Fjölskipaður dómur dæmir í málinu gegn Anders Behring Breivik.
Í gær, 11:41 Dómararnir í máli Anders Behring Breivik hafa sent bréf til úrskurðarnefndar í réttarlæknisfræðum þar sem þess er óskað að nefndin gefi skýrari svör um hvort hún samþykki síðara geðmatið sem gert var á Breivik, en niðurstaða þess var að hann sé sakhæfur. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Lagersalan Kauptúni 3 Garðabæ
Stálvaskar,verð 5000-stk.Opið mánud. til föstud.kl. 13-18 laugard.og sunnud. kl...
Framstuðari á PT.Cruisher 2005-8
Til sölu NÝR framstuðari á þennan fallega bíl. Fullt verð hér er 135 þús. Bíljö...
H D Sportster 1200XL
Mikið breytt, mjög öflugt hjól álfelgur screaming eagle kveikja og púst, beint s...
Traust fyrirtæki óskar eftir íbúð á leigu
Óska eftir íbúð á leigu á svæði 109 eða 111. Þrjú eða fjögur herbergi. Að...
 
Lausar kennarastöður
Grunn-/framhaldsskóla
Lausar kennarastöður við leik- og gru...
Auglýsing byggðakvóti

Auglýsing vegna úthlutunar byggðakvó...
Sýslumaðurinn á selfossi - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Deiliskipulag á grundartanga

Deiliskipulag á Grundartanga Austur...