Reyndi að selja meydóm dóttur sinnar

Salt Lake City.
Salt Lake City.

Kona í Utah í Bandaríkjunum hefur játað fyrir dómi að hafa sent karlmanni myndir af 13 ára gamalli dóttur sinni í kynferðislegum stellingum.

Konan var ákærð í Salt Lake City fyrir að beita barn kynferðislegu ofbeldi og fleiri sakir en saksóknarar segja að hún hafi reynt að selja manninum meydóm dóttur sinnar fyrir 10 þúsund dali, rúmlega 1,1 milljón króna.

Saksóknarar féllust á að falla frá alvarlegustu ákæruatriðunum gegn því að konan játaði að hafa sent myndirnar sem hún tók með farsíma sínum.

Konan, sem er 33 ára, á yfir höfði sér allt að 30 ára fangelsi en dómur verður kveðinn upp í desember.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert