Vill að mynduð verði samsteypustjórn

Forsætisráðherra Grikklands George Papandreou stækka

Forsætisráðherra Grikklands George Papandreou Reuters

Forsætisráðherra Grikklands, George Papandreou, hvatti til þess að mynduð yrði samsteypustjórn í landinu svo hægt yrði að bjarga landinu úr skuldafeninu sem það situr fast í.

Papandreou hefur hingað til verið mótfallinn því að Grikkir gangi fyrr að kjörborðinu en til stóð en á gríska þinginu í kvöld kvað við annan tón þar sem hann útilokaði ekki þann möguleika. Greiða á atkvæði um vantraust á ríkisstjórn Grikklands á morgun. Stjórnarandstaðan hefur krafist þess að Papandreou segi af sér og gengið verði til þingkosninga sem fyrst.

Hann segir nauðsynlegt að hefja viðræður strax um að mynda samsteypustjórn til þess að hægt verði að koma á eðlilegu ástandi í pólitísku landslagi Grikklands. Samstarf sé nauðsynlegt milli grískra stjórnmálaflokka svo hægt sé að byggja upp traust meðal almennings. Hann segist reiðubúinn til þess að hætta við boðaða þjóðaratkvæðagreiðslu um björgunarpakka sem leiðtogar Evrópusambandsins samþykktu nýverið.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda
TIL SÖLU LÍTIÐ NOTAÐ FELLIHÝSI
Til sölu lítið notað Rockwood Freedom Offroad 191XR fellihýsi árgerð 6/2010. Tru...
Renault Trafic langur sendibíll árg.2007
Renault Trafic langur sendibíll árg.2007,ek.120.000 dísel, beinskiptur,samlitur,...
NÝIR LITIR - NÝ SNIÐ
NÝIR LITIR - NÝ SNIÐ Teg. 31100 - Vel fylltur í 70-85B,...
Jeep Cherokee 97' aðeins 300 Stgr. í toppstandi
4.0l High output vél, sjálfskiptur, select trac millikassi, þ.e. hægt að taka úr...
 
Flokksstjóri
Grunn-/framhaldsskóla
Bláskógabyggð Vinnuskóli Bláskógabyggð...
Samkoma alþjóðakirkjan
Félagsstarf
Kl. 11.00 Samkoma. Ræðumaður e...
15320 ofanflóðavarnir á ísafirði - ríkiskaup

Ofanflóðavarnir á Ísafirði Byggðin...
Málþing um kjalveg

Málþing um Kjalveg Málþingið „Endurbæ...