Berlusconi neitar vangaveltum
Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, neitar alfarið orðrómi þess efnis að hann hyggist segja af sér. „Vangaveltur um afsögn mína eiga ekki við rök að styðjast,“ segir Berlusconi á Facebook-síðu sinni.
Margt bendir til þess að farið sé að hrikta í stoðunum í samsteypustjórn Frelsisflokksins, sem er flokkur Berlusconis og Norðurbandalagsins. Stjórnmálaskýrendur segja að stjórnin hafi ekki lengur þann 316 þingmanna meirihluta sem hún hafði. Þrír þingmenn Frelsisflokksins fóru yfir í miðflokkinn UDC á undanförnum dögum.
Haft var eftir einum nánasta samstarfsmanni Berlusconis í dag að afsögn hans væri spurning um klukkustundir, jafnvel mínútur.
„Ég vil fá að horfa í augun á þeim sem reyna að svíkja mig,“ sagði Berlusconi um þetta í viðtali við dagblaðið Libero.
Þessar vangaveltur um stöðu forsætisráðherrans hafa haft mikil áhrif á verð hlutabréfa á Ítalíu, sem hafa ýmist hækkað eða lækkað í takt við fréttaflutninginn.
„Ítalía er nógu stórt land til að koma ójafnvægi á evrusvæðið,“ segir Cyril Regnat, sérfræðingur í hlutabréfaviðskiptum hjá franska bankanum Natixis. Hann varar við því að staða Ítalíu geti stofnað efnahag allra evrulandanna í hættu.
Giuliano Ferrara, sem var ráðherra í fyrstu ríkisstjórn Berlusconis árið 1994 og samtarfsmaður hans til langs tíma, segir að afsögn Berlusconis sé eina leiðin til að binda enda á „endalausa pólitíska kvöl“.
Ítalska blaðið Il Giornale, sem er reyndar í eigu fjölskyldu Berlusconis, segir að framámenn í Frelsisflokknum hafi fundað á föstudaginn til að ræða þann möguleika að Gianni Letta, hægri hönd forsætisráðherrans, tæki við stjórnartaumum.
Bloggað um fréttina
-
Jón Valur Jensson Brátt fær Össur ekki lengur línuna frá Berlusconi -
G. Tómas Gunnarsson Berlusconi
Erlent »
Miðvikudagur, 23.5.2012
-
Evruskuldabréf aftur á dagskrá
- Gróft einelti í sænskum heimavistarskóla
- Hótuðu að halda barninu eftir
- Olía alls ekki að ganga til þurrðar
- Hælisleitendur í hungurverkfalli
- Sprengjukona ekki ákærð
- Undirbúi sig fyrir grískt brotthvarf
- Romney lofar minna atvinnuleysi
- Vill skera upp herör gegn mafíunni
- Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum
- Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan
- Segja Watson fá réttláta meðferð
- Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
- Myrti dóttur sína og bútaði hana niður
- Taldi sig afhöfða geimveru
- Lifði af fall niður Niagara fossana
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
- Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu
Þriðjudagur, 22.5.2012
- Breivik fær tíma til útskýringa
- Tæp 60 þúsund í fangelsi á Kúbu
- Sagðist vera með sprengju í líkamanum
- Kennarar og nemendur mótmæla
- 14 ára skaut á skólafélaga
- Væri upphafið að endalokum evrunnar
- Ummæli prests vekja reiði
- Gríski harmleikurinn heldur áfram
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- Sýrland
- Efnahagsvandræði á evrusvæðinu
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Skuldavandi Grikklands
- Forkosningar Repúblikana 2012
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 7. nóvember 2011, Erlent Berlusconi ekki á útleið
- Þriðjudagur, 8. nóvember 2011, Erlent „Skilaðu inn uppsagnarbréfinu“
- Mánudagur, 28. febrúar 2011, Erlent Réttað yfir Berlusconi í Mílanó
- Mánudagur, 28. mars 2011, Erlent „Mest ákærður í öllum heiminum“
- Mánudagur, 7. nóvember 2011, Erlent Berlusconi sagður íhuga afsögn
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur
-
Kristján: Þurfum að vinna okkur út úr þessu
-
Ásmundur: Búnir að bíða lengi




































