Gróf upp lík og klæddi þau í föt
Hér má sjá beinagrind, þó ekki alvöru, sem listamaður hefur klætt í fatnað í Guadalajara í Mexíkó. Myndin er úr safni og tengist fréttinni ekki beint. Reuters
Lögreglan í Rússlandi hefur handtekið karlmann sem er grunaður um að hafa grafið upp 29 lík sem hvíldu í kirkjugarði í Nizjnij Novgorod. Talsmaður lögreglunnar segir að maðurinn klætt líkin í föt og notað þau sem stofustáss.
Anatolí Moskvin, sem er 45 ára gamall, var þekktur í bænum fyrir að hafa mikinn áhuga á kirkjugörðum. Þá segir AFP fréttastofan að Moskvin sé sagður vera með doktorsgráðu.
Talsmaður innanríkisráðuneyti héraðsins segir að 28 „brúður“ í mannsstærð hafi fundist í íbúð mannsins. Mosvkin er sagður hafa búið þær til með því að nota fatnað og líkamsleifar sem hann stal úr kirkjugörðum. Líkin voru smurð eins og múmíur.
Eitt lík til viðbótar fannst svo í bílskúr mannsins.
Lögreglan hefur birt myndskeið sem er tekið inni í íbúðinni. Þar má sjá bækur á víð og dreif og haug af litríkum efnum. Þá sést hvernig búið var að setja líkin í eðlilegar líkamsstellingar í íbúðinni.
Myndbandið var birt eftir að lögreglan hafði greint frá því sl. fimmtudag að 20 beinagrindur hefðu fundist heima hjá Moskvin. Það var ekki fyrr en í gær sem lögreglan greindi nánar frá málinu, en um helgina var haldinn Dagur þjóðareiningar í Rússlandi og ekki þótti viðeigandi að greina frá þessu fyrr en eftir hátíðarhöldin.
Lögreglan segir að flestar líkamsleifarnar séu af ungum stúlkum. Eitt lík sést t.d. sitja í sófa með krosslagðar fætur. Hún var klædd í fjólubláan kjól með blúndum og þá var hún í hvítum spariskóm.
Þá má sjá lík klædd í brúðarklæðnað í stofunni. Búið var að hylja andlit allra líkanna og svo virðist sem að eitt líkið sé með dýrshöfuð.
Moskvin er mikill áhugamaður um kirkjugarða og hefur m.a. skrifað bækur slíka garða. Málið fer nú fyrir dómstóla og verði hann fundinn sekur á hann þriggja mánaða fangelsisvist yfir höfði sér.
AFP fréttastofan segir að Moskvin hafi sagt í viðtali, sem var tekið við hann fyrir nokkrum árum, að hann hafi fengið áhuga á kirkjugörðum þegar hann hafi verið ungur vandræðagemlingur. Þá hafi hann fyrir tilviljun orðið vitni að óvenjulegri greftrun sem sértrúarsöfnuður stóð að .
„Síðan þá hafa kirkjugarðar dregið mig að sér líkt og segull,“ sagði hann í viðtalinu, sem blaðakonan Tatiana Kokina-Slavina hefur nú birt á vefsíðu sinni.
Erlent »
Miðvikudagur, 23.5.2012
-
Evruskuldabréf aftur á dagskrá
- Gróft einelti í sænskum heimavistarskóla
- Hótuðu að halda barninu eftir
- Olía alls ekki að ganga til þurrðar
- Hælisleitendur í hungurverkfalli
- Sprengjukona ekki ákærð
- Undirbúi sig fyrir grískt brotthvarf
- Romney lofar minna atvinnuleysi
- Vill skera upp herör gegn mafíunni
- Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum
- Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan
- Segja Watson fá réttláta meðferð
- Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
- Myrti dóttur sína og bútaði hana niður
- Taldi sig afhöfða geimveru
- Lifði af fall niður Niagara fossana
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
- Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu
Þriðjudagur, 22.5.2012
- Breivik fær tíma til útskýringa
- Tæp 60 þúsund í fangelsi á Kúbu
- Sagðist vera með sprengju í líkamanum
- Kennarar og nemendur mótmæla
- 14 ára skaut á skólafélaga
- Væri upphafið að endalokum evrunnar
- Ummæli prests vekja reiði
- Gríski harmleikurinn heldur áfram
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- Sýrland
- Efnahagsvandræði á evrusvæðinu
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Skuldavandi Grikklands
- Forkosningar Repúblikana 2012
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 8. ágúst 2011, Erlent Von á yfirlýsingu frá Obama
- Fimmtudagur, 3. maí 2012, Erlent Tyrkland fordæmir mat S&P
- Laugardagur, 6. ágúst 2011, Erlent Stjórnmálunum um að kenna
- Laugardagur, 6. ágúst 2011, Erlent Frakkar hafa trú á Bandaríkjunum
- Þriðjudagur, 27. desember 2011, Erlent Myrti sex í jólasveinabúningi
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur
-
Kristján: Þurfum að vinna okkur út úr þessu
-
Ásmundur: Búnir að bíða lengi




































