Assange fer til Svíþjóðar
Julian Assange, stofnandi Wikileaks, er væntanlegur til Svíþjóðar á næstunni til að svara ákærum vegna nauðgunar og kynferðisbrota. Þetta segir yfirmaður almannatengslafyrirtækisins Ullman í Svíþjóð, en hann segir að Assange hafi ráðið fyrirtækið til að aðstoða sig.
Harald Ullman segist ekki geta sagt til um það hvenær Assange muni fara til Svíþjóðar.
„Við munum aðstoða hann að takast á við fjölmiðlathyglina,“ segir Ullman og bætir því við að fyrirtækið muni hefjast handa þegar í stað við að aðstoða Assange, sem er enn í Bretlandi.
Fyrr í þessum mánuði tapaði Assange, sem er ástralskur ríkisborgari, baráttu sinni gegn því að verða framseldur frá Bretlandi til Svíþjóðar. Frestur til að áfrýja niðurstöðunni til hæstaréttar landsins rennur út 16. nóvember.
Ullmann vildi ekkert gefa upp um það hvort ráðning sín þýddi að Assange hefði gefist upp og mundi því ekki áfrýja málinu.
Björn Hurtig, lögmaður Assange í Svíþjóð, segir í samtali við AFP að hann hafi ekki verið upplýstur um að Assange hafi ráðið almannatengslafyrirtæki til að aðstoða sig.
Tvær sænskar konur sökuðu Assange um nauðgun og kynferðisbrot í ágúst í fyrra. Vilja þarlendir saksóknarar yfirheyra Assange vegna málsins.
Bloggað um fréttina
-
Halldór Sigurðsson Grasrótarfundur - og Forseti Íslands og Frú mæta - myndband
Erlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- Fordæma morð á óbreyttum borgurum
- Háaldraður stríðsglæpamaður látinn
- Hertar innflytjendareglur ef evran hrynur
- Skaut af handahófi
- Vill endurvekja egypsku byltinguna
- Gómuðu gengi hjólaþjófa
- Pútín fagnar bróður í anda
-
Lokaæfingar í Bakú
- Jarðsett 20 árum eftir dauðann
- Bakúbúar í startholunum
- Medvedev formaður Sameinaðs Rússlands
- Tveir létust í árás í Finnlandi
- Kennurum voru sýnd kynfæri nemenda
- Segja kjarnorkutilraunir friðsamlegar
- Skothríð í Finnlandi
- Segja fjöldamorð framið í Sýrlandi
- Vill fyrir Mannréttindadómstólinn
- Áframhaldandi mótmæli í Sýrlandi
- Úran í Íran auðugra en talið var
- „Duglegasti“ Eurovision keppandinn
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
- Fær 3.000 ár til að borga skattaskuld
- Starfsmaður Vatíkansins handtekinn
- Þjóðverjar vilja Grikki af evrusvæðinu
- Ferrari innkallar 56 bíla
- Breivik vildi plástur á fingurinn
- Meirihluti Skota andvígur sjálfstæði
- Vill að viðskiptaþvingunum verði aflétt
- Mursi mæti Shafiq
- Fangar ósáttir við óhrein hnífapör
- Tókst að góma flóttamörgæsina 337
- Skaut son sinn og framdi síðar sjálfsvíg
- Veitir fjölskyldunni vonandi einhvern frið
- Meintur fjöldamorðingi í haldi
- Búsáhaldabylting í Quebec
- Stjórnendur Rena dæmdir í fangelsi
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
- Hollande í Afganistan
- Jarðskjálfti í Christchurch
- Sýrland
- Skuldavandi Grikklands
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Efnahagsvandræði á evrusvæðinu
- Forkosningar Repúblikana 2012
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 2. nóvember 2011, Erlent Assange framseldur
- Fimmtudagur, 3. nóvember 2011, Erlent Þrýsta á áströlsk stjórnvöld
- Föstudagur, 28. október 2011, Erlent Dómur í máli Assange á miðvikudag
- Laugardagur, 29. október 2011, Erlent Úrskurðað um Assange í vikunni
- Miðvikudagur, 15. desember 2010, Erlent Assange bíður svara
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju


































