Þarf að vinna hratt
Mario Monti, sem var í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, hefur verið falið að leiða nýja ríkisstjórn Ítalíu. Henni er falið að gera nauðsynlegar umbætur í fjármálum landsins sem miða að því að binda endi á kreppuna sem ógnað hefur evrusvæðinu.
„Gott kvöld, ég þakka forsetanum fyrir það traust sem hann hefur sýnt mér með því að fela mér að mynda nýja ríkisstjórn,“ sagði Mario Monti. „Ég ætla mér að vinna þetta verkefni af mikilli ábyrgð og þjónustulund við land okkar. Þetta eru sérstaklega erfiðir tímar fyrir Ítalíu og miklar sviptingar í Evrópu og heiminum og þá þarf landið að bregðast við áskoruninni.
Það verður að snúa við og verða styrkur þáttur en ekki veikur í Evrópusambandinu en við erum á meðal stofnenda þess og þar þurfum við að vera í forystu. Styrkur okkar verður í því fólginn að ná á ný jafnvægi í fjármálalífinu og stíga skref til vaxtar. Við verðum að gera þetta fyrir börnin okkar, við verðum að veita þeim trausta framtíð með virðingu og von.“
Monti sagði að réttar tímasetningar skipti miklu máli.
„Við munum gera þetta á sem skemmstum tíma og um leið vinna traust og gott verk. Ég held, eins og ég sagði, vegna þess að ég þarf að vinna verk mitt hratt og vel, þá kveð ég ykkur og þakka fyrir áheyrnina.“
Monti var beðinn um að mynda ríkisstjórn eftir sviptingasama helgi. Þá samþykkti ítalska þingið umbótatillögur og Silvio Berlusconi sagði af sér embætti. Lánskostnaður Ítalíu rauk upp úr öllu valdi í síðustu viku og varð óviðráðanlegur. Það ógnaði öllu fjármálalífi í Evrópu og var talin hætta á víðtæku hruni.
Matteo Luciani, námsmaður, vonast til þess að ný ríkisstjórn verði til góðs.
„Ég vona að hlutirnir batni, en við þurfum að sjá hvað gerist þegar ný stjórn tekur við. Ég vona að þetta sé maður sem er ekki bara fulltrúi bankanna heldur einnig sá sem verður fulltrúi okkar námsmanna og reynir að gera eitthvað fyrir okkur, fyrir skólana,“ sagði Luciani.
Aðrir velktust í vafa um hver nýi leiðtoginn væri, líkt og Patriza Pasquale, íbúi í Róm, sem sagði: „Ég vona að við komumst út úr þessari kreppu, ég vona að við komumst út úr henni um leið og nýja ríkisstjórnin tekur við, hvað heitir hann aftur? Monti.“
Heldur meiri ró varð á mörkuðum undir lok síðustu viku þegar varð ljóst að Berlusconi myndi stíga til hliðar og Monti taka við af honum. Nú bíða stjórnvöld í Róm eftir því hver viðbrögð markaðanna verða við hinni formlegu útnefningu Monti sem forsætisráðherra.
Erlent »
Miðvikudagur, 23.5.2012
-
Evruskuldabréf aftur á dagskrá
- Gróft einelti í sænskum heimavistarskóla
- Hótuðu að halda barninu eftir
- Olía alls ekki að ganga til þurrðar
- Hælisleitendur í hungurverkfalli
- Sprengjukona ekki ákærð
- Undirbúi sig fyrir grískt brotthvarf
- Romney lofar minna atvinnuleysi
- Vill skera upp herör gegn mafíunni
- Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum
- Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan
- Segja Watson fá réttláta meðferð
- Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
- Myrti dóttur sína og bútaði hana niður
- Taldi sig afhöfða geimveru
- Lifði af fall niður Niagara fossana
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
- Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu
Þriðjudagur, 22.5.2012
- Breivik fær tíma til útskýringa
- Tæp 60 þúsund í fangelsi á Kúbu
- Sagðist vera með sprengju í líkamanum
- Kennarar og nemendur mótmæla
- 14 ára skaut á skólafélaga
- Væri upphafið að endalokum evrunnar
- Ummæli prests vekja reiði
- Gríski harmleikurinn heldur áfram
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- Sýrland
- Efnahagsvandræði á evrusvæðinu
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Skuldavandi Grikklands
- Forkosningar Repúblikana 2012
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 9. nóvember 2011, Erlent Verður Monti næsti forsætisráðherra?
- Mánudagur, 14. nóvember 2011, Erlent Sættir sig ekki við tímamörk
- Sunnudagur, 13. nóvember 2011, Erlent Monti falin stjórnarmyndun
- Sunnudagur, 13. nóvember 2011, Erlent Ítalía sinni aftur burðarhlutverki
- Fimmtudagur, 17. nóvember 2011, Erlent Framtíð evrunnar hvíli á Ítalíu
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur
-
Kristján: Þurfum að vinna okkur út úr þessu
-
Ásmundur: Búnir að bíða lengi




































