Ósammála um aðferðir
Angela Merkel, kanslari Þýskalands, og forsætisráðherra Bretalands, David Cameron, áttu fund í Berlín í dag og sögðu að honum loknum að samstaða ríkti um að leysa skuldavanda Evrópu. Leiðtogunum tókst þó ekki að draga dul á það að þau eru ósammála um aðferðir.
Cameron ítrekaði þá afstöðu sína að allar stofnanir evrusvæðisins þyrftu að leggja sitt af mörkum og þar væri Evrópski seðlabankinn ekki undanskilinn.
„Eins og við urðum ásátt um á G20-fundinum þá þurfa allar stofnanir evrusvæðisins að standa að baki gjaldmiðlinum og gera það sem þarf til þess að verja hann - það er það sem þarf að gerast,“ sagði Cameron við blaðamenn.
Merkel hins vegar undirstrikaði þá skoðun sína að bankinn ætti ekki að kaupa ótakmarkað magn ríkisskuldabréfa né að verða lánveitandi til þrautavara.
„Maður ætti að forðast að þykjast hafa völd sem maður hefur ekki,“ sagði hún og ítrekaði þannig ummæli sín frá því fyrr í vikunni þegar hún sagði að Seðlabankinn hefði ekki heimildir til þess að taka að sér þessi hlutverk. „Markaðirnir munu fljótt sjá að það virkar ekki.“
Merkel og Cameron greinir einnig á um skatt á fjármálaviðskipti, svokallaðan Hróa hattar-skatt, en Bretar hafa neitað því að samþykkja slíkan skatt nema hann verði tekinn upp á alþjóðavísu.
Cameron ítrekaði þó að hann hefði fulla trú á því að evrusvæðið fyndi leið út úr ógöngunum. „Þetta eru augljóslega erfiðir tímar - maður sér það á mörkuðunum - en ég vanmet ekki eitt andartak skuldbindingu landa á borð við Þýskaland og annarra innan evrusvæðisins sem vilja láta gjaldmiðilinn virka,“ sagði ráðherrann.
Merkel gerði einnig lítið úr ágreiningnum. „Hvenær sem við David höfum unnið saman að vandamáli höfum við alltaf fundið lausn,“ sagði hún.
Erlent »
Miðvikudagur, 23.5.2012
-
Evruskuldabréf aftur á dagskrá
- Gróft einelti í sænskum heimavistarskóla
- Hótuðu að halda barninu eftir
- Olía alls ekki að ganga til þurrðar
- Hælisleitendur í hungurverkfalli
- Sprengjukona ekki ákærð
- Undirbúi sig fyrir grískt brotthvarf
- Romney lofar minna atvinnuleysi
- Vill skera upp herör gegn mafíunni
- Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum
- Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan
- Segja Watson fá réttláta meðferð
- Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
- Myrti dóttur sína og bútaði hana niður
- Taldi sig afhöfða geimveru
- Lifði af fall niður Niagara fossana
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
- Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu
Þriðjudagur, 22.5.2012
- Breivik fær tíma til útskýringa
- Tæp 60 þúsund í fangelsi á Kúbu
- Sagðist vera með sprengju í líkamanum
- Kennarar og nemendur mótmæla
- 14 ára skaut á skólafélaga
- Væri upphafið að endalokum evrunnar
- Ummæli prests vekja reiði
- Gríski harmleikurinn heldur áfram
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- Sýrland
- Efnahagsvandræði á evrusvæðinu
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Skuldavandi Grikklands
- Forkosningar Repúblikana 2012
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 16. ágúst 2011, Erlent Viðbrögðin voru vísitölufall
- Fimmtudagur, 24. nóvember 2011, Erlent Segir framtíð ESB í hættu
- Fimmtudagur, 15. september 2011, Erlent Merkel ítrekar andstöðu við evruskuldabréf
- Föstudagur, 9. desember 2011, Erlent Tilraun til samkomulags 27 ríkja fjarar út
- Föstudagur, 21. október 2011, Erlent Merkel kvartar undan Frökkum
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur
-
Kristján: Þurfum að vinna okkur út úr þessu
-
Ásmundur: Búnir að bíða lengi




































