Hittu Saif Gaddafi í Líbíu
Saksóknarar Alþjóðaglæpadómstólsins í Haag hittu Saif al-Islam, son Múammars Gaddafis, í Líbíu í dag en uppreisnarmenn tóku Saif höndum um helgina.
Talsmaður dómstólsins segir að saksóknari og aðstoðarsaksóknari dómstólsins hafi átt nokkurra klukkustunda fund með Saif í borginni Zintan þar sem hann er í haldi.
Dómstóllinn hefur gefið út handtökuskipun á hendur Saif en uppreisnarmenn í Líbíu vilja að réttað verði yfir honum þar í landi. Luis Moreno-Ocampo, saksóknari glæpadómstólsins, sagði við komuna til Líbíu í dag að það kæmi til greina ef réttarkerfið réði við slíkt.
Talsmaður alþjóðanefndar Rauða krossins sagði í dag að fulltrúi stofnunarinnar hefði vitjað Saifs al-Islam og að hann virtist vera við góða heilsu.
Múammar Gaddafi, fyrrum leiðtogi Líbíu og faðir Saifs, lét lífið skömmu eftir að uppreisnarmenn tóku hann höndum í október. Gaddafi lést af sárum sem hann hlaut en margt er á huldu um þá atburði.
Alþjóðaglæpadómstóllinn gaf einnig út ákæru á hendur Múammar Gaddafi, fyrrum einræðisherra í Líbíu, fyrir glæpi gegn mannkyninu. Dómstóllinn féll hins vegar formlega frá þeirri ákæru í dag eftir að hafa fengið dánarvottorð Gaddafis í hendur.
Erlent »
Miðvikudagur, 23.5.2012
-
Evruskuldabréf aftur á dagskrá
- Gróft einelti í sænskum heimavistarskóla
- Hótuðu að halda barninu eftir
- Olía alls ekki að ganga til þurrðar
- Hælisleitendur í hungurverkfalli
- Sprengjukona ekki ákærð
- Undirbúi sig fyrir grískt brotthvarf
- Romney lofar minna atvinnuleysi
- Vill skera upp herör gegn mafíunni
- Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum
- Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan
- Segja Watson fá réttláta meðferð
- Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
- Myrti dóttur sína og bútaði hana niður
- Taldi sig afhöfða geimveru
- Lifði af fall niður Niagara fossana
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
- Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu
Þriðjudagur, 22.5.2012
- Breivik fær tíma til útskýringa
- Tæp 60 þúsund í fangelsi á Kúbu
- Sagðist vera með sprengju í líkamanum
- Kennarar og nemendur mótmæla
- 14 ára skaut á skólafélaga
- Væri upphafið að endalokum evrunnar
- Ummæli prests vekja reiði
- Gríski harmleikurinn heldur áfram
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- Sýrland
- Efnahagsvandræði á evrusvæðinu
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Skuldavandi Grikklands
- Forkosningar Repúblikana 2012
Svipaðar fréttir
- Sunnudagur, 20. nóvember 2011, Erlent Uppreisnarmenn vilja hafa Saif í haldi
- Mánudagur, 22. ágúst 2011, Erlent Saif al-Islam ekki í haldi
- Þriðjudagur, 23. ágúst 2011, Erlent Fengu ekki formlega staðfestingu á handtöku
- Mánudagur, 27. júní 2011, Erlent Handtökuskipunin marklaust plagg
- Laugardagur, 29. október 2011, Erlent Sonur Gaddafi segist saklaus
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur
-
Kristján: Þurfum að vinna okkur út úr þessu
-
Ásmundur: Búnir að bíða lengi




































