SÞ fordæma ofbeldisverk í Kaíró
Navi Pillay, mannréttindafulltrúi Sameinuðu þjóðanna, fordæmir þau ofbeldisverk sem egypskir öryggissveitarmenn hafa beitt almenning að undanförnu. Pillay segir ljóst að þeir hafi beitt allt of mikilli hörku í átökum sínum við mótmælendur í Egyptalandi.
Fram kemur á vef breska útvarpsins að hún vilji að óháð rannsóknarnefnd verði sett á laggirnar til að rannsaka dauða að minnsta kosti 30 mótmælenda, sem hafa fallið í átökum við lögreglu frá því um liðna helgi.
Mótmælendur, sem vilja koma herforingjastjórninni frá völdum, eru enn á Frelsistorginu í Kaíró í tugþúsundatali. Þeir halda kyrru fyrir þrátt fyrir loforð herforingjastjórnarinnar um að hraða því að koma á nýrri lýðræðislega kjörinni stjórn.
Fimmta daginn í röð hafa götubardagar brotist út í höfuðborginni.
„Ég hvet egypsk stjórnvöld til að hætta að beita því sem er augljóslega of mikil harka gagnvart mótmælendum á Frelsistorginu og annars staðar í landinu. Meðal þess er augljós röng notkun á táragasi, gúmmíkúlum og byssukúlum,“ segir í yfirlýsingu sem Pillay hefur sent frá sér.
„Sumar myndanna sem maður hefur séð frá Frelsistorginu, meðal annars af mótmælendum sem eru barðir hrottalega þrátt fyrir að hafa verið yfirbugaðir, eru mjög átakanlegar,“ segir ennfremur.
Erlent »
Miðvikudagur, 23.5.2012
-
Evruskuldabréf aftur á dagskrá
- Gróft einelti í sænskum heimavistarskóla
- Hótuðu að halda barninu eftir
- Olía alls ekki að ganga til þurrðar
- Hælisleitendur í hungurverkfalli
- Sprengjukona ekki ákærð
- Undirbúi sig fyrir grískt brotthvarf
- Romney lofar minna atvinnuleysi
- Vill skera upp herör gegn mafíunni
- Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum
- Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan
- Segja Watson fá réttláta meðferð
- Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
- Myrti dóttur sína og bútaði hana niður
- Taldi sig afhöfða geimveru
- Lifði af fall niður Niagara fossana
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
- Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu
Þriðjudagur, 22.5.2012
- Breivik fær tíma til útskýringa
- Tæp 60 þúsund í fangelsi á Kúbu
- Sagðist vera með sprengju í líkamanum
- Kennarar og nemendur mótmæla
- 14 ára skaut á skólafélaga
- Væri upphafið að endalokum evrunnar
- Ummæli prests vekja reiði
- Gríski harmleikurinn heldur áfram
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- Sýrland
- Efnahagsvandræði á evrusvæðinu
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Skuldavandi Grikklands
- Forkosningar Repúblikana 2012
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 1. desember 2011, Erlent 4.000 fallnir í Sýrlandi
- Þriðjudagur, 22. febrúar 2011, Erlent Öryggisráð SÞ fundar um ástandið í Líbíu
- Laugardagur, 26. nóvember 2011, Erlent Sýrland fordæmir Arababandalagið
- Föstudagur, 9. desember 2011, Erlent 2011 ótrúlegt mannréttindaár
- Fimmtudagur, 17. mars 2011, Erlent Taka yfir sjúkrahús í Barein
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur
-
Kristján: Þurfum að vinna okkur út úr þessu
-
Ásmundur: Búnir að bíða lengi





































