Landfestar skipa slitna í Færeyjum

Færeyskir fjölmiðlar hafa birt þessa mynd frá slökkviliðinu í Fuglafirði …
Færeyskir fjölmiðlar hafa birt þessa mynd frá slökkviliðinu í Fuglafirði af báti sem slitnaði upp.

Ofsaveður er nú í Færeyjum og hafa landfestar að minnsta kosti tveggja skipa slitnað í veðurhamnum. Að sögn færeyskra fjölmiðla hefur vindhraðinn farið upp í 54 metra á sekúndu en er nú að jafnaði 30-38 metrar á sekúndu.

Fram kemur á vefnum olivant.fo, að landfestar báta hafi slitnað bæði í  Fuglafirði  og Skálafirði.

Lögreglan í Þórshöfn hefur fengið yfir 100 tilkynningar um foktjón í Færeyjum í kvöld.

Óveðurslægð er nú á milli Íslands og Færeyja og stefnir á Noreg. Hefur norska veðurstofan gefið lægðinni nafnið Berit.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert