„Tilefnislaus“ árás Nató í Pakistan

Þýskur hermaður frá alþjóðlegu öryggisliði Nató í Afganistan, ISAF.
Þýskur hermaður frá alþjóðlegu öryggisliði Nató í Afganistan, ISAF. Reuters

Herþyrlur frá Nató í Afganistan gerðu „tilefnislausa“ árás á pakistanska landamærastöð í dag með þeim afleiðingum að 20 pakistanskir hermenn féllu. Pakistönsk yfirvöld hafa brugðist við með því að stöðva birgðaflutning til herliðs Nató í Afganistan. Haft er eftir háttsettum embættismanni að afleiðingarnar muni hafa alvarlegar afleiðingar fyrir samskipti þjóðanna.

Að sögn talsmanns friðargæsluliðs Nató í Afganistan, Isaf, er verið að safna upplýsingum um atvikið. Um 40 vöruflutningabílar með birgðir til hersveita Nató hafa hinsvegar verið kyrrsettir á landamærunum, en um helmingur vista hersins í Afganistan kemur í gegnum Pakistan.

Pakistanski herinn hefur í gegnum tíðina sakað hersveitir Nató um að brjóta flughelgi landsins í eltingaleik sínum við skæruliða talíbana, sem gera árásir á Afganistan og flýja svo yfir landamæri.  

Nú segir herinn að herir Nató hafi gert „tilefnislausa skotárás á landamærastöð Pakistan í Mohmand aðfaranótt sunnudags.“ Ríkistjóri héraðsins fordæmir Nató harðlega fyrir árásina og segir að hún brjóti gegn sjálfstæði Pakistan. Hermennirnir sem féllu hafi dáið píslarvættisdauða.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert