Varð fyrir barðinu á fjölmiðlum Murdochs
Breska söngkonan Charlotte Church segir að móðir sín hafi reynt að fremja sjálfsvíg á sínum tíma eftir að hún hafði spurnir af umfjöllun sunnudagsblaðsins News of the World um kynlíf eiginmanns síns með öðrum konum.
Church kom í dag fyrir nefnd á vegum breska þingsins sem rannsakar símahleranir fjölmiðla í eigu Ruperts Murdochs. Hún segist hafa þurft að ráða lífverði eftir að annað blað í eigu Murdochs, Sunday Times, hafði rangt eftir henni í kjölfar árásanna á Bandaríkin þann 11. september 2011. Þá var söngkonan fimmtán ára að aldri.
Einkaspæjari sem vann fyrir News of the World braust ólöglega inn í talhólf farsíma fjölskyldunnar og eins fyrrum kærasta hennar, segir Church.
Church segist hafa sungið í brúðkaupi Ruperts Murdochs og Wendi Deng þegar hún var þrettán ára gömul og var boðið að þiggja 100 þúsund pund í laun eða góða meðferð af hálfu fjölmiðla í hans eigu. Fjölmiðlaveldi Murdochs í Bretlandi, News International, neitar þessu hins vegar.
Barnastjarnan segist hafa gengið í gegnum margt á sínum yngri árum sem hafi haft mikil áhrif á andlega líðan hennar. Hún segist vonast til þess að ekkert barn þurfi að upplifa slíkt í framtíðinni.
Church, sem meðal annars hefur skemmt Elísabetu Englandsdrottningu, Jóhannesi Páli II páfa og fyrrum forseta Bandaríkjanna, Bill Clinton, segir að News of the World hafi birt frétt um að faðir hennar hafi notað kókaín og farið í rúmið með tveimur konum á sama tíma. Eins birti blaðið fréttir af sjálfsvígstilraun móður hennar. Hún segir að móðir sín hafi reynt að taka eigið líf eftir að hún hafði fregnir af því að blaðið ætlaði að birta fréttir af kynlífi eiginmanns hennar.
Erlent »
Miðvikudagur, 23.5.2012
-
Evruskuldabréf aftur á dagskrá
- Gróft einelti í sænskum heimavistarskóla
- Hótuðu að halda barninu eftir
- Olía alls ekki að ganga til þurrðar
- Hælisleitendur í hungurverkfalli
- Sprengjukona ekki ákærð
- Undirbúi sig fyrir grískt brotthvarf
- Romney lofar minna atvinnuleysi
- Vill skera upp herör gegn mafíunni
- Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum
- Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan
- Segja Watson fá réttláta meðferð
- Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
- Myrti dóttur sína og bútaði hana niður
- Taldi sig afhöfða geimveru
- Lifði af fall niður Niagara fossana
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
- Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu
Þriðjudagur, 22.5.2012
- Breivik fær tíma til útskýringa
- Tæp 60 þúsund í fangelsi á Kúbu
- Sagðist vera með sprengju í líkamanum
- Kennarar og nemendur mótmæla
- 14 ára skaut á skólafélaga
- Væri upphafið að endalokum evrunnar
- Ummæli prests vekja reiði
- Gríski harmleikurinn heldur áfram
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- Sýrland
- Efnahagsvandræði á evrusvæðinu
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Skuldavandi Grikklands
- Forkosningar Repúblikana 2012
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 14. júlí 2011, Erlent Grunur um símhleranir í Bandaríkjunum
- Sunnudagur, 17. júlí 2011, Erlent Brooks handtekin
- Mánudagur, 19. september 2011, Erlent Fjölskyldan fær skaðabætur
- Laugardagur, 28. janúar 2012, Erlent Lögreglumaður og starfsmenn The Sun handteknir
- Þriðjudagur, 12. júlí 2011, Erlent Sameinast gegn kaupum Murdochs
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur
-
Kristján: Þurfum að vinna okkur út úr þessu
-
Ásmundur: Búnir að bíða lengi






































