Hrun evrusvæðisins yrði hörmulegt fyrir alla
„Við viljum ekki sjá hrun evrusvæðisins, það væri hörmulegt fyrir alla. Við viljum sjá evrusvæðið ná sér hratt á strik. Kína hefur mikla trú á evrunni, á evrópska samrunanum,“ hefur fréttavefurinn Euobserver.com eftir Hua Chunying, ráðgjafa kínverska utanríkisráðuneytisins í Evrópumálum.
Kínverjar hafa undanfarin misseri keypt mikið af ríkisskuldabréfum evruríkja í sunnanverðri Evrópu sem átt hafa við mikinn efnahagsvanda að stríða. Að sögn Hua er stærsta vandamál Evrópusambandsins ekki fjármunir heldur skortur á trausti. Nokkuð sem væri eðlilegt í ljósi þess hversu ósamstætt sambandið væri. „En ég trúi því að um leið og allir gera sér grein fyrir því að þetta er vandamál sem snýst um líf eða dauða evrunnar þá muni þeir grípa til skjótra aðgerða,“ segir hún.
Hua segir það ekki ásættanlegt í augum Kínverja að evrusvæðið yrði minnkað þannig að einhver ríki yfirgæfu svæðið. „Þeir geta aðeins haldið áfram sem eitt svæði. Þetta er ekki spurning um val,“ segir hún og bætir við að Evrópa hafi áður verið í sögulegu samhengi klettur í hafinu þegar kæmi að stöðugleika og Kínverjar vonuðu að svo yrði áfram.
Aðspurð hvort kínversk stjórnvöld væri að undirbúa áætlanir ef til þess kæmi að evrusvæðið liðaðist í sundur neitaði hún því. „Nei við viljum ekki sjá það gerast. Allir munu bíða tjón af því ef það gerist.“
Erlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- Fordæma morð á óbreyttum borgurum
- Háaldraður stríðsglæpamaður látinn
- Hertar innflytjendareglur ef evran hrynur
- Skaut af handahófi
- Vill endurvekja egypsku byltinguna
- Gómuðu gengi hjólaþjófa
- Pútín fagnar bróður í anda
-
Lokaæfingar í Bakú
- Jarðsett 20 árum eftir dauðann
- Bakúbúar í startholunum
- Medvedev formaður Sameinaðs Rússlands
- Tveir létust í árás í Finnlandi
- Kennurum voru sýnd kynfæri nemenda
- Segja kjarnorkutilraunir friðsamlegar
- Skothríð í Finnlandi
- Segja fjöldamorð framið í Sýrlandi
- Vill fyrir Mannréttindadómstólinn
- Áframhaldandi mótmæli í Sýrlandi
- Úran í Íran auðugra en talið var
- „Duglegasti“ Eurovision keppandinn
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
- Fær 3.000 ár til að borga skattaskuld
- Starfsmaður Vatíkansins handtekinn
- Þjóðverjar vilja Grikki af evrusvæðinu
- Ferrari innkallar 56 bíla
- Breivik vildi plástur á fingurinn
- Meirihluti Skota andvígur sjálfstæði
- Vill að viðskiptaþvingunum verði aflétt
- Mursi mæti Shafiq
- Fangar ósáttir við óhrein hnífapör
- Tókst að góma flóttamörgæsina 337
- Skaut son sinn og framdi síðar sjálfsvíg
- Veitir fjölskyldunni vonandi einhvern frið
- Meintur fjöldamorðingi í haldi
- Búsáhaldabylting í Quebec
- Stjórnendur Rena dæmdir í fangelsi
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
- Hollande í Afganistan
- Jarðskjálfti í Christchurch
- Sýrland
- Skuldavandi Grikklands
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Efnahagsvandræði á evrusvæðinu
- Forkosningar Repúblikana 2012
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 28. nóvember 2011, Erlent Varað við mögulegu hruni evrusvæðisins
- Mánudagur, 6. febrúar 2012, Erlent Undirbúa brotthvarf Grikkja
- Þriðjudagur, 15. nóvember 2011, Erlent Ríkjum verði gert kleift að yfirgefa evruna
- Sunnudagur, 25. mars 2012, Erlent Merkel: „Stórslys“ að sleppa Grikkjum út
- Fimmtudagur, 17. nóvember 2011, Erlent Greiðsluþrot yfirvofandi á Spáni og Ítalíu
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju


































