Skrá upplýsingar um fjarskipti
EES-löndin, Ísland, Noregur og Lichtenstein, ætla að skrifa undir samkomulag við Evrópusambandið á föstudaginn kemur um að geyma upplýsingar um fjarskiptanotkun. Það þýðir að upplýsingar um farsímanotkun og tölvusamskipti verða geymdar og aðgengilegar yfirvöldum, að sögn ABC Nyheter.
Málið hefur verið mjög umdeilt í Noregi, að sögn fréttavefjarins. Um er að ræða viðauka við XI kafla EES-samningsins um fjarskiptaþjónustu. Samþykkt hans þýðir að eftirlitsaðilar munu skrá upplýsingar um fjarskipti hvort sem er á netinu eða í farsímum. Tilgangurinn er sá að auðvelda lögreglu rannsókn á grun um hryðjuverkastarfsemi.
Margir hafa varað við því í Noregi að þetta sé skref í átt til eftirlitsþjóðfélags sem stríði gegn grundvallarreglum lýðræðisins.
Upplýsingar varðveittar í sex mánuði
Hjá innanríkisráðuneytinu fengust þær upplýsingar að hér sé um að ræða svonefnd Data Retention Directive 2006/24/EC og að til standi að taka það inn í EES-samninginn á föstudag.
Meginefni tilskipunarinnar varðar varðveislu upplýsinga um fjarskiptaumferð. Regla um varðveislu lágmarksskráningar gagna í sex mánuði var tekin inn í íslensk fjarskiptalög árið 2005 (78/2005).
Það var gert að beiðni ríkislögreglustjóra í þeim tilgangi að tryggja að lögregla og ákæruvald hefðu nóg svigrúm til að upplýsa brot þar sem uppfyllt væru skilyrði XI. kafla laga um meðferð sakamála (88/2008).
Ólík staða hér og í Noregi
Björn Geirsson, yfirlögfræðingur Póst- og fjarskiptastofnunar, sagði að staða þessara mála sé ekki með sama hætti hér á landi og í Noregi. Hann sagði að ákvæði efnislega samhljóða því sem er í umræddri tilskipun hafi verið í gildi hér frá árinu 2005. Hins vegar sé nú í fyrsta skipti verið að kveða á um varðveisluskyldu gagna af þessu tagi í norskum lögum.
Hann sagði að töluverð umræða hafi verið hér á landi um þessa varðveisluskyldu þegar hún var innleidd í íslensk lög árið 2005.
Málið tengist varðveislutíma upplýsinga um fjarskiptaumferð sem lesa má nánar um í ákvörðun Póst- og fjarskiptastofnun (29/2011). Ákvörðunin var tekin, eftir að erindi barst frá Persónuvernd, um að ekki skyldi geyma slíkar upplýsingar lengur en í sex mánuði.
Erlent »
Miðvikudagur, 23.5.2012
-
Evruskuldabréf aftur á dagskrá
- Gróft einelti í sænskum heimavistarskóla
- Hótuðu að halda barninu eftir
- Olía alls ekki að ganga til þurrðar
- Hælisleitendur í hungurverkfalli
- Sprengjukona ekki ákærð
- Undirbúi sig fyrir grískt brotthvarf
- Romney lofar minna atvinnuleysi
- Vill skera upp herör gegn mafíunni
- Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum
- Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan
- Segja Watson fá réttláta meðferð
- Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
- Myrti dóttur sína og bútaði hana niður
- Taldi sig afhöfða geimveru
- Lifði af fall niður Niagara fossana
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
- Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu
Þriðjudagur, 22.5.2012
- Breivik fær tíma til útskýringa
- Tæp 60 þúsund í fangelsi á Kúbu
- Sagðist vera með sprengju í líkamanum
- Kennarar og nemendur mótmæla
- 14 ára skaut á skólafélaga
- Væri upphafið að endalokum evrunnar
- Ummæli prests vekja reiði
- Gríski harmleikurinn heldur áfram
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- Sýrland
- Efnahagsvandræði á evrusvæðinu
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Skuldavandi Grikklands
- Forkosningar Repúblikana 2012
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 23. desember 2010, Erlent Skothríð í pósthúsráni í Osló
- Föstudagur, 3. febrúar 2012, Erlent Spillingu mótmælt í Slóvakíu
- Sunnudagur, 31. júlí 2011, Erlent Sætir ámæli fyrir þögn
- Fimmtudagur, 25. nóvember 2010, Erlent Bandaríkjamenn vara við birtingu leyniskeyta
- Þriðjudagur, 13. september 2011, Erlent Sendur heim vegna mögulegrar árásar
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur
-
Kristján: Þurfum að vinna okkur út úr þessu
-
Ásmundur: Búnir að bíða lengi




































