Skutu niður bandaríska njósnavél

Reuters

Íranski herinn hefur skotið niður bandaríska, ómannaða njósnaflugvél, RQ-170, í austurhluta landsins, samkvæmt frétt á Al-Alam sjónvarpsstöðinni. Hefur fréttastöðin þetta eftir heimildum innan úr hernum.

Ekkert kom fram í fréttinni um hvenær vélin var skotin niður né heldur hvar nákvæmlega. Það var hins vegar sagt að hún væri ekki illa skemmd.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert