Segjast hafa bresku stjórnina í vasanum

Almannatenglar gorta sig af því að geta nýtt stjórn Camerons í þágu viðskiptavina sinna. stækka

Almannatenglar gorta sig af því að geta nýtt stjórn Camerons í þágu viðskiptavina sinna. Reuters

Hagsmunaverðir hjá einu stærsta almannatengslafyrirtæki í Bretlandi hafa verið staðnir að því á myndbandsupptökum að gorta sig af því að hafa mikil áhrif á forystumenn í innsta hring breskra stjórnvalda, að David Cameron forsætisráðherra meðtöldum.

Fyrirtækið sem um ræðir heitir Bell Pottinger en það er dagblaðið Independent sem gerir málinu skil. Byggir umfjöllunin á rannsóknarblaðamennsku samtakanna Bureau of Investigative Journalism.

Meðal þess sem almannatenglarnir monta sig af er að hafa getað látið David Cameron ræða við Wen Jiabao, forsætisráðherra Kína, innan sólarhrings eftir að ósk um það var lögð fram. Var tilefnið hagsmunir fyrirtækis sem hefur umsvif í Kína og á í viðskiptum við Bell Pottinger.

Er málið enn eitt ímyndaráfallið fyrir Cameron, nú skömmu eftir að náin tengsl fjölmiðlaveldisins News Corporation við breska Íhaldsflokkinn komust í hámæli.

Þá leiða upptökurnar í ljós að hjá Bell Pottinger er að finna teymi sem „flokkar“ neikvæðar tilvísanir um viðskiptavini þeirra á vefsíðunni Wikipediu. En frjálsa alfræðiritið á að vera óháð hagsmunum fyrirtækja.

Þóttust vera frá Úsbekistan

Vitneskjan um hagsmunagæsluna er niðurstaða rannsóknar þar sem fulltrúar samtakanna, Bureau of Investigative Journalism, þóttust vera erindrekar frá Mið-Asíuríkinu Úsbekistan.

Nokkur almannatengslafyrirtæki neituðu að eiga í samstarfi við mennina og kunna þá að hafa horft til þess að barnaþrælkun viðgengst í Úsbekistan.

Spunameistarar Bell Pottinger tóku vel á móti hinum fjarlægu gestum og gerðum þeim grein fyrir því að hægt væri að styrkja ímynd Úsbekistans án þess að grípa til raunverulegra umbóta. Hægt væri að ná fram sömu markmiðum með því að virkja tengsl í ríkisstjórninni, á breska þinginu og í fjölmiðlum.

Ræðir þar væntanlega meðal annars um myndatökur með leiðtogum og jákvæða umfjöllun í blöðum.

The Times flækist í málið

Segir á vef Independent að hneykslið ýti undir áhyggjur af því að Lundúnir séu að verða miðstöð „ímyndarþvotts“ [e. reputation laundering] og er það orðaleikur við hugtakið peningaþvottur.

Málið hefur snertiflöt við Lundúnablaðið The Times þar sem fram kemur að einn helsti dálkahöfundur þess, Daniel Finkelstein, sé gjarnan á lausu í hádegisverð með viðskiptavinum Bell Pottinger. Þar geti hagsmunaaðilar lýst sínum sjónarmiðum og bundið vonir við að það liti skrif Finkelsteins.

Sýndarskrif í bloggheimum

Spunameistararnir segjast eiga ýmis brögð uppi í erminni til að hafa áhrif á skoðanamótun.

Eitt bragðið er að nota bloggsíður þar sem svo virðist sem hlutlausir aðilar fjalli um tiltekin málefni.

Umrædd skrif væru vilhöll viðskiptavinum og tryggt að þau kæmu upp við leit í leitarvél Google.

Annað bragð er að láta stjórnmálamenn ráðast á blaðamenn sem þykja óæskilegir fyrir hagsmuni tiltekins stjórnmálaafls, í því skyni að draga úr trúverðugleika fjölmiðlamanna.

Draga upp falska mynd af einræðisríki

Meðal viðskiptavina Bell Pottinger eru stjórnvöld í Hvíta-Rússlandi.

Landið er stundum sagt síðasta einræðisríkið í Evrópu og naut stjórn Alexanders Lúkasjenkós góðs af þjónustu almannatenglanna. Fólst herferðin í því að sannfæra fulltrúa Evrópusambandsins um að raunverulegar umbætur hefðu farið fram í Hvíta-Rússlandi, þvert á það sem raunin var.

Talsmaður Camerons neitar því að Bell Pottinger hafi áhrif á stefnu bresku stjórnarinnar.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Erlent »

Frönsku reykingafólki fjölgar

Í gær, 23:30 Reykingafólki hefur farið nokkuð fjölgandi í Frakklandi þrátt fyrir reykingabann á skemmtistöðum og veitingastöðum og hærri skatta á tóbak en um þriðjungur Frakka reykir nú samkvæmt nýjum tölum. Þetta kemur fram á fréttavefnum Thelocal.fr. Meira »
Jyrki Katainen, forsætisráðherra Finnlands.

Þátttaka í vörnum Íslands ótengd NATO

Í gær, 21:27 Forsætisráðherra Finnlands, Jyrki Katainen, hafnaði því alfarið í umræðum í finnska þinginu í dag að tillaga um að Finnar tækju þátt í norrænu samstarfi við að gæta lofthelgi Íslands væri hugsuð til þess að koma Finnlandi inn í Atlantshafsbandalagið (NATO). Meira »

Embættismennirnir verði sóttir til saka

Kínverski andófsmaðurinn Chen Guangcheng.
Í gær, 23:03 Kínverski andófsmaðurinn Chen Guangcheng hvatti stjórnvöld í Kína til þess að sækja til saka löglausa embættismenn sem hefðu áreitt og misþyrmt honum, fjölskyldu hans og stuðningsmönnum viðtali við Reuters- fréttaveituna í dag sem er eitt það fyrsta sem hann hefur veitt eftir að hann kom til Bandaríkjanna síðastliðinn laugardag. Meira »

„Marshall-aðstoð“ fyrir Sýrlendinga

Frá Sýrlandi.
Í gær, 21:23 Sendiherrar og starfsmenn utanríkisþjónustunnar í um 60 löndum ræddu í dag áætlun um að koma efnahag Sýrlands til bjargar, en átök hafa staðið yfir í landinu undanfarna 14 mánuði. Fulltrúar landa Arababandalagsins, Evrópusambandsins, Persaflóaríkjanna, auk fulltrúa SÞ tóku þátt í viðræðunum. Meira »

Eldur í norskri eyju

Reyk lagði frá eyjunni Sotra í dag.
Í gær, 18:54 Slökkviliðsmenn í Bergen í Noregi hafa barist við eld í eyjunni Sotra, sem er skammt undan landi, í meira en sólarhring án árangurs. Nokkrar íbúðir hafa verið rýmdar í eyjunni og hugsanlega þarf að rýma fleiri. Þykkan reyk leggur yfir Bergen og nágrannabyggðir. Meira »

Skotar lögbinda áfengisverð

Skotar hafa bundið verð á áfengi í lög til að reyna að hemja drykkju landsmanna.
Í gær, 21:50 Skosk stjórnvöld hafa lögbundið lágmarksverð á áfengi í þeim tilgangi að stemma stigu við óhóflegri drykkju landsmanna. Ekki má selja áfengseininguna fyrir lægra verð en 50 pens frá og með apríl á næsta ári, en slík eining er skilgreind sem einn sentílítri. Meira »

Fangar látnir lausir vegna verkfalls

Frá Bergen í Noregi.
Í gær, 20:29 Tugir fanga í fangelsinu í Bergen í Noregi voru leystir úr haldi í morgun vegna verkfalls opinberra starfsmanna í landinu. Fangarnir í fangelsinu, 72 að tölu, voru kallaðir á fund í morgun þar sem þeim var tilkynnt að fangelsið yrði tæmt til þess að fangaverðirnir gætu farið í verkfall og flestir fanganna yrðu því látnir lausir. Meira »

Telja Ísrael vera „árásargjarnt“

Forseti Þýskalands, Joachim Gauck, og kanslari landsins Angela Merkel.
Í gær, 17:28 Mikill meirihluti Þjóðverja telur Ísrael vera „árásargjarnt“ og telja að Þýskaland hafi ekki lengur sérstökum skyldum að gegna gagnvart landinu samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar sem birt var í dag. Meira »

Norskir ríkisstarfsmenn geri of miklar kröfur

Jens Stoltenberg
Í gær, 16:57 Jens Stoltenberg forsætisráðherra Noregs segir að opinberir starfsmenn fari fram á of mikla launahækkun. Tilboð ríkisins um 4% launahækkun hafi verið gott. Þúsundir norskra ríkisstarfsmanna lögðu niður störf í dag, þar á meðal flest starfsfólk Óslóarháskóla. Meira »

Sundrung meðal stjórnarandstæðinga

Burhan Ghalioun fyrrverandi leiðtogi uppreisnarmanna og stjórnarandstöðunnar í Sýrlandi.
Í gær, 16:21 Burhan Ghalioun fyrrverandi leiðtogi Sýrlenska þjóðarráðsins, helstu samtaka stjórnarandstæðinga í Sýrlandi, segir að mikil sundrung sé í ráðinu og að það hafi ekki staðið sig sem skyldi í því upplausnarástandi sem ríkir í landinu. Meira »

Bud er orðinn að annars stigs stormi

Mynd tekin af gervihnetti af fellibylnum Bud.
Í gær, 16:31 Fyrsti fellibylur tímabilsins, sem nefndur hefur verið Bud, er orðinn að annars stigs stormi. Hann ferðast á 165 kílómetra hraða á klukkustund og er nú staddur undan suðvesturströnd Mexíkó. Meira »

Áfram réttað yfir Mladic

Ratko Mladic í dómsal Alþjóðadómstólsins í Haag 16. maí síðastliðinn.
Í gær, 16:02 Réttarhöldin yfir Ratko Mladic, fyrrum yfirmanni hers Bosníu-Serba í Bosníustríðinu, sem hefur viðurnefnið Slátrarinn frá Bosníu, munu halda áfram 25. júní. Gert var hlé á þeim daginn eftir að þau hófust við Alþjóðadómstólinn í Haag vegna „óreglu“ í skipulagi réttarhaldanna. Meira »

Ríkasta kona heims

Í gær, 15:28 Ástralinn Gina Rinehart er ríkasta kona heims samkvæmt því sem fram kemur í ástralska viðskiptatímaritinu BRW. Eru auðæfi Rineharts, sem er 58 ára, metin á 29 milljarða ástralska dali, eða sem samvarar 3.600 milljarða kr. Meira »

Breivik ætlar ekki að áfrýja

Norski fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik með lögmönnum sínum þeim Geir Lippestad og Vibeke Hein Bæra.
Í gær, 14:49 Norski fjöldamorðinginn Anders Behrin Breivik bað um orðið í lok réttarhaldanna yfir honum í dag. Hann sneri sér til dómaranna og sagðist hafa íhugað að áfrýja ef hann yrði fundinn sekur, en síðan komist að þeirri niðurstöðu að gera það ekki. Meira »

Lögregla stöðvar mómæli í Bakú

Frá Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan.
Í gær, 11:44 Lögreglan í Bakú stöðvaði fyrr í dag mótmæli við höfuðstöðvar ríkissjónvarpsins í landinu, framkvæmdaaðila Evróvisjón 2012. Þetta er ekki i í fyrsta skipti sem að stjórnvöldstöðva mótmæli á þessum slóðum í vikunni en mótmæli voru einnig stöðvuð mánudag, á meðan fyrri forkeppni Evróvisjón fór fram. Meira »

Draghi: Nú er komið að ögurstundu

Mario Draghi bankastjóri Evrópska seðlabankans.
Í gær, 15:23 Óvissa jókst enn á evrusvæðinu í dag eftir að slæmum efnahagshorfum var spáð, fyrst og fremst vegna ástands mála í Grikklandi. Engin lausn virðist í sjónmáli á vanda evrulandanna. Gengi evrunnar hefur ekki verið jafn lágt gagnvart Bandaríkjadollara undanfarna 22 mánuði. Meira »

Grunaður um aðild að hvarfi Etan Patz

Etan Patz hvarf fyrir 33 árum.
Í gær, 14:02 Lögreglan í New York segist hafa mann í haldi sem er grunaður að tengjast hvarfi Etan Patz árið 1979. Patz var sex ára gamall þegar hann hvarf fyrir 33 árum. Meira »

Dómarar vilja skýr svör um sakhæfi Breivik

Fjölskipaður dómur dæmir í málinu gegn Anders Behring Breivik.
Í gær, 11:41 Dómararnir í máli Anders Behring Breivik hafa sent bréf til úrskurðarnefndar í réttarlæknisfræðum þar sem þess er óskað að nefndin gefi skýrari svör um hvort hún samþykki síðara geðmatið sem gert var á Breivik, en niðurstaða þess var að hann sé sakhæfur. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
BIFREIÐASTILLINGAR NICOLAI
Nicolai bifreiðastillingar, Faxafeni 12 Sími 588-2455. Véla og hjólastillingar. ...
Fleetwood Bayside 12 fet sem nýtt
Glæsilegt fellihýsi skráð 06/09 lítið notað. 2 gaskútar, sólarsella. grjótgrind,...
BARCELONA - Dásamleg borg
Til leigu flott íbúð í Example við Gaudi kirkjuna. Internet og öll bestu þægindi...
Fellihýsi til sölu
Palomino fellihýsi árg 2006. Fortjald fylgir. Upplýsingar í síma 8927619. frimol...
 
Samkoma - hjálpræðisherinn
Félagsstarf
Kjallarinn, fimmtudag, kl.20 Ung...
Starfsmaður í ræstingu
Ræstingar
??????????? ? ???????? ?????????? ??...
Kristniboðssambandið samkoma
Félagsstarf
Háaleitisbraut 58-60 Samkoma í kvöld kl....