Taflið snýst gegn Vesturlöndum
Alþjóðavæðingin færði Vesturlöndum framleiðsluvörur á gjafvirði og gerði íbúum heimshlutans kleift að fara í ódýr ferðalög til fjarlægra heimshluta. Nú er taflið hins vegar að snúast við. Nýmarkaðsríki eru að taka við sem aflstöðvar heimsviðskipta og bilið í lífskjörum minnkar stöðugt.
Jeremy Warner, aðstoðarritstjóri breska dagblaðsins Daily Telegraph og einn helsti álitsgjafi Bretlands um efnahagsmál, gerir þetta að umtalsefni á vef blaðsins.
Bendir Warner þar á að samkeppnisforskot Vesturlanda í hátæknigreinum á borð við lyfjaframleiðslu og flugvélasmíði sé að gufa upp.
En með einföldun má segja að það forskot hafi öðrum þræði verið afleiðing mikillar fjárfestingar Vesturlanda í mannauð í gegnum ríkisstyrkt menntakerfi á áratugunum eftir síðari heimsstyrjöldina.
Áhyggjulaust ævikvöld að baki?
Warner víkur að eftirlaunaréttindum Vesturlandabúa og varar við því að starfsmenn opinbera geirans kunni innan áratugar að standa í sömu sporum og starfsfólk í einkageiranum, þ.e. með því að horfa fram á minni lífseyrisgreiðslur en árgangarnir á undan.
Á það er ekki minnst í grein Warners en kann svo að fara að unga fólkið þurfi senn að framfleyta foreldrum sínum, líkt og tíðkaðist kynslóð fram af kynslóð fyrr á öldum?
„Dómsdagsvélin“ étur upp lífskjörin
Warner rifjar upp gagnrýni hagfræðingsins og Nóbelsverðlaunahafans Joseph Stiglitz á þau áhrif sem alþjóðavæðingin hafi haft í þróunarríkjum og verður að ætla að þau lúti að neikvæðum umhverfislegum áhrifum og misnotkun á berskjölduðu og varnarlausu vinnuafli.
Warner kveðst ósammála því að ramma beri alþjóðavæðinguna inn með þessum hætti.
Með því að gera Asíu, Rómönsku-Ameríku og Austur-Evrópu að virkum þátttakendum í alþjóðahagkerfinu og gera þannig hundruð milljónum manna kleift að undirbjóða starfsmenn á Vesturlöndum hafi Vesturlönd þvert á móti sett í gang „dómsdagsvél“ sem ógni enn frekari skerðingu á lífskjörum Vesturlandabúa.
Um hríð hafi svo virst sem alþjóðavæðingin tryggði stöðugt ódýrari vörur en nú hafi sá raunveruleiki tekið við að flæði alþjóðaviðskipta sé nú óvilhallt Vesturlöndum.
Erlent »
Miðvikudagur, 23.5.2012
-
Evruskuldabréf aftur á dagskrá
- Gróft einelti í sænskum heimavistarskóla
- Hótuðu að halda barninu eftir
- Olía alls ekki að ganga til þurrðar
- Hælisleitendur í hungurverkfalli
- Sprengjukona ekki ákærð
- Undirbúi sig fyrir grískt brotthvarf
- Romney lofar minna atvinnuleysi
- Vill skera upp herör gegn mafíunni
- Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum
- Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan
- Segja Watson fá réttláta meðferð
- Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
- Myrti dóttur sína og bútaði hana niður
- Taldi sig afhöfða geimveru
- Lifði af fall niður Niagara fossana
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
- Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu
Þriðjudagur, 22.5.2012
- Breivik fær tíma til útskýringa
- Tæp 60 þúsund í fangelsi á Kúbu
- Sagðist vera með sprengju í líkamanum
- Kennarar og nemendur mótmæla
- 14 ára skaut á skólafélaga
- Væri upphafið að endalokum evrunnar
- Ummæli prests vekja reiði
- Gríski harmleikurinn heldur áfram
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- Sýrland
- Efnahagsvandræði á evrusvæðinu
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Skuldavandi Grikklands
- Forkosningar Repúblikana 2012
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 3. maí 2012, Erlent Tyrkland fordæmir mat S&P
- Sunnudagur, 21. ágúst 2011, Erlent Yfirfull sjúkrahús og ófremdarástand
- Sunnudagur, 7. ágúst 2011, Erlent Ísraelar mótmæla lífskjörum
- Miðvikudagur, 18. janúar 2012, Erlent Varar við keðjuverkun á evrusvæðinu
- Föstudagur, 15. júlí 2011, Erlent Bandaríkin viðurkenna þjóðarráðið
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur
-
Kristján: Þurfum að vinna okkur út úr þessu
-
Ásmundur: Búnir að bíða lengi




































