„Erfið en góð ákvörðun"
David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, sagði að það hefði verið „erfið en góð ákvörðun" að koma í nótt í veg fyrir að breytingar yrðu gerðar á Lissabon-sáttmála Evrópusambandsins eins og Frakkar og Þjóðverjar lögðu til sem leið til að vinna á skuldakreppunni á evrusvæðinu.
„Ef við getum ekki slegið neina varnagla er betra að vera fyrir utan," sagði Cameron á blaðamannafundi í Brussel í nótt. Nicolas Sarkozy, forseti Frakklands, hafði fyrr um nóttina sagt að kröfur Breta hefðu verið óviðunandi.
„Ég sagði áður en ég kom til Brussel að ef ég gæti ekki tryggt stöðu Bretlands í nýjum ESB-samningi með viðunandi hætti myndi ég ekki samþykkja hann. Það sem í boði var er ekki í samræmi við hagsmuni Bretlands og því féllst ég ekki á það," sagði Cameron.
Fréttir bárust af hörðum deilum Breta og Frakka um málið. Cameron sagðist ekki geta neitað því að ágreiningur ríkti milli annarsvegar þeirra aðildarríkja ESB, sem hafa tekið upp evru, og hinna.
„Ákvarðanirnar, sem teknar voru hér í kvöld, stafa allar af einu: Þeirri staðreynd að það er einn gjaldmiðill í Evrópu, evran. Bretland er ekki í því samstarfi og mun ekki taka þátt í því," sagði Cameron. „Aðrar þjóðir eru í því samstarfi og eru fúsar til að gera róttækar breytingar, gefa eftir fullveldi til að reyna að tryggja að samstarfið virki. Munurinn á milli þeirra, sem eru inni og hinna sem eru úti, hefur óhjákvæmilega myndað spennu."
Cameron setti það sem skilyrði fyrir að samþykkja nýjan ESB-samning um fjármálamarkaðinn að Bretar fengju neitunarvald varðandi reglur sem gætu haft áhrif á fjármálahverfið í Lundúnum. Þessum kröfum var hafnað og að sögn Hermans Van Rompuys, forseta ESB, ætla evruríkin 17 auk 6 annarra ESB-ríkja að gera sérstakan sáttmála sem gildir aðeins um evrusvæðið.
Ungverjar ákváðu eins og Bretar að standa utan við þennan sáttmála. Svíar og Tékkar sögðust þurfa að bera málið undir þjóðþing sín áður en ákvörðun yrði tekin.
Carl Bildt utanríkisráðherra skrifaði á Twitter-vef sinn í nótt: Hef áhyggjur af því að Bretar séu að sigla í átt frá Evrópu. Í hvaða átt? Inn í öflugt bandalag með Ungverjalandi.
Bloggað um fréttina
-
Heimssýn Bretar neituðu að fórna fullveldinu -
Ívar Pálsson Leiðir skiljast fyrir alvöru innan ESB -
Tryggvi Þórarinsson Hundruðum miljóna fórnað í ekkert, í óþökk meirihluta landsmanna. -
Sigurður Haraldsson Stend fast á mínu!
Erlent »
Miðvikudagur, 23.5.2012
-
Evruskuldabréf aftur á dagskrá
- Gróft einelti í sænskum heimavistarskóla
- Hótuðu að halda barninu eftir
- Olía alls ekki að ganga til þurrðar
- Hælisleitendur í hungurverkfalli
- Sprengjukona ekki ákærð
- Undirbúi sig fyrir grískt brotthvarf
- Romney lofar minna atvinnuleysi
- Vill skera upp herör gegn mafíunni
- Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum
- Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan
- Segja Watson fá réttláta meðferð
- Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
- Myrti dóttur sína og bútaði hana niður
- Taldi sig afhöfða geimveru
- Lifði af fall niður Niagara fossana
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
- Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu
Þriðjudagur, 22.5.2012
- Breivik fær tíma til útskýringa
- Tæp 60 þúsund í fangelsi á Kúbu
- Sagðist vera með sprengju í líkamanum
- Kennarar og nemendur mótmæla
- 14 ára skaut á skólafélaga
- Væri upphafið að endalokum evrunnar
- Ummæli prests vekja reiði
- Gríski harmleikurinn heldur áfram
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- Sýrland
- Efnahagsvandræði á evrusvæðinu
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Skuldavandi Grikklands
- Forkosningar Repúblikana 2012
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 12. desember 2011, Erlent Erum enn vinir segir Cameron
- Þriðjudagur, 13. desember 2011, Erlent Hætta á að ESB klofni í tvennt
- Mánudagur, 24. október 2011, Erlent Sarkozy skammaði Cameron
- Mánudagur, 12. desember 2011, Erlent Reynir að draga úr áhrifum ósættis
- Föstudagur, 9. desember 2011, Erlent Tilraun til samkomulags 27 ríkja fjarar út
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur
-
Kristján: Þurfum að vinna okkur út úr þessu
-
Ásmundur: Búnir að bíða lengi




































