Tyggjóklessur hreinsaðar upp í Róm
Tyggjóklessum hefur verið sagt stríð á hendur í Rómarborg. Yfirvöld og sjálfboðaliðar hafa tekið höndum saman um að skrapa þessar ókræsilegu klessur af ómetanlegum minjum og fornum steingötum borgarinnar.
Hreinsunarátakið hófst í dag á Largo Argentina, sögulegu torgi þar sem standa rústir fjögurra rómverskra hofa. Hundruð tyggjóklessa voru skrapaðar af veggjum hofanna, torginu, gangstéttum og götum í kring.
„Á hverjum degi er um það bil 15.000 tyggjóklessum spýtt á göturnar, meira að segja á sögulegum minjareitum,“ segir Piergiorgio Benvenuti, yfirmaður sorphirðusviðs Rómarborgar sem annast átakið. „Það kostar borgina eina evru að fjarlægja hverja klessu.“
Sjálfboðaliðarnir sem taka þátt eru á vegum samtakanna „Noi Per Roma“, sem útleggst á íslensku „Við fyrir Róm“ en eiginkona borgarstjórans, Isabella Rauti, er formaður þeirra. Hún segir að fólk ætti að hugsa sig tvisvar um áður en það spýtir út úr sér tyggigúmmíi á götum úti, því það sé lengi að leysast upp.
Ferðamenn í Róm kvarta gjarnan undan því að borgin eilífa sé óhrein og hafa yfirvöld reynt að bregðast við því með öflugri sorphreinsun á ferðamannasvæðum.
Erlent »
Miðvikudagur, 23.5.2012
-
Evruskuldabréf aftur á dagskrá
- Gróft einelti í sænskum heimavistarskóla
- Hótuðu að halda barninu eftir
- Olía alls ekki að ganga til þurrðar
- Hælisleitendur í hungurverkfalli
- Sprengjukona ekki ákærð
- Undirbúi sig fyrir grískt brotthvarf
- Romney lofar minna atvinnuleysi
- Vill skera upp herör gegn mafíunni
- Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum
- Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan
- Segja Watson fá réttláta meðferð
- Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
- Myrti dóttur sína og bútaði hana niður
- Taldi sig afhöfða geimveru
- Lifði af fall niður Niagara fossana
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
- Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu
Þriðjudagur, 22.5.2012
- Breivik fær tíma til útskýringa
- Tæp 60 þúsund í fangelsi á Kúbu
- Sagðist vera með sprengju í líkamanum
- Kennarar og nemendur mótmæla
- 14 ára skaut á skólafélaga
- Væri upphafið að endalokum evrunnar
- Ummæli prests vekja reiði
- Gríski harmleikurinn heldur áfram
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- Sýrland
- Efnahagsvandræði á evrusvæðinu
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Skuldavandi Grikklands
- Forkosningar Repúblikana 2012
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 23. febrúar 2012, Erlent Enn heimilislaus eftir skjálftann
- Mánudagur, 14. maí 2012, Erlent Grafhvelfing mafíósa opnuð í leit að stúlku
- Mánudagur, 3. október 2011, Erlent Banna sandblásið gallaefni
- Þriðjudagur, 14. desember 2010, Erlent Mikil harka í mótmælum í Róm
- Mánudagur, 6. febrúar 2012, Erlent Víða neyðarástand á Ítalíu
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur
-
Kristján: Þurfum að vinna okkur út úr þessu
-
Ásmundur: Búnir að bíða lengi




































