Hvað gerðist ef evruríkjunum fækkaði?
Færi svo að Grikkland, Írland og Portúgal yfirgæfu evrusvæðið myndi það leiða til 1% samdráttar á evrusvæðinu á næsta ári og 2,5% samdráttar á árinu 2013. Þetta er mat sérfræðinga fjármálafyrirtækisins Capital Economics í Lundúnum.
Slíkur samdráttur myndi jafngilda áhrifunum af efnahagssamdrættinum á árunum 2008 til 2009 í kjölfar falls Lehman-bankans.
Sérfræðingar UBS-bankans hafa einnig leitast við að áætla áhrifin af kreppu á evrusvæðinu og áætla í bréfi til viðskiptavina sinna að ef evruríki sem höllum fæti stendur, á borð við Grikkland, yfirgæfi evrusvæðið myndi það kosta hvert mannsbarn í viðkomandi ríki 10.000 evrur fyrsta árið og meira til næstu árin.
Í Þýskalandi yrðu áhrifin á bilinu 6.000 til 8.000 evrur, að því er bankinn áætlar.
Á hinn bóginn myndi endurupptaka þjóðargjaldmiðila, þýska marksins, franska frankans eða annars gjaldmiðils, eftir atvikum ýmist leiða til gengisstyrkingar eða gengislækkunar.
Bankastofnanir myndu hrynja
Bent er á ávinninginn fyrir útflutning að taka upp veikari þjóðargjaldmiðil sem þar með myndi gera útflutningsvörur ódýrari. Á móti er tekið fram að lánsfjárkostnaður viðkomandi ríkja geti hækkað.
Áhrifin á bankakerfi umræddra ríkja eru talin mundu verða mikil og hefur AFP eftir ónefndum sérfræðingum að kerfin gætu hrunið í kjölfar þess að fjárfestar misstu trú á gjaldmiðilinn sem tæki við af evrunni.
Þá er Þýskaland sagt mundu missa af útflutningi vegna hærri gengisskráningar og ódýrara gengis í nágrannalöndum og bættrar samkeppnishæfni sem því fylgdi, á kostnað þýsku útflutningsvélarinnar.
Tilbúin ef evrusvæðið gliðnar í sundur
Rætt er við Jacques Cailloux, hagfræðing hjá Royal Bank of Scotland í París, sem bendir á að ef Frakkar yfirgæfu evrusvæðið þyrftu þýskir bankar að horfast í augu við 200 milljarða evra útlán til franskra aðila á nýjum forsendum nýs gjaldmiðils.
Upphæðin væri tífalt hærri í tilfelli bandarískra banka.
Hefur AFP jafnframt eftir Cailloux að breskir bankar og alþjóðafyrirtæki í Asíu séu þegar farin að gera áætlanir fari allt á versta veg á evrusvæðinu.
„Allir munu hafa áætlun vegna þessa möguleika. Það er mál málanna á árinu 2012,“ segir Cailloux.
Erlent »
Miðvikudagur, 23.5.2012
-
Evruskuldabréf aftur á dagskrá
- Gróft einelti í sænskum heimavistarskóla
- Hótuðu að halda barninu eftir
- Olía alls ekki að ganga til þurrðar
- Hælisleitendur í hungurverkfalli
- Sprengjukona ekki ákærð
- Undirbúi sig fyrir grískt brotthvarf
- Romney lofar minna atvinnuleysi
- Vill skera upp herör gegn mafíunni
- Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum
- Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan
- Segja Watson fá réttláta meðferð
- Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
- Myrti dóttur sína og bútaði hana niður
- Taldi sig afhöfða geimveru
- Lifði af fall niður Niagara fossana
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
- Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu
Þriðjudagur, 22.5.2012
- Breivik fær tíma til útskýringa
- Tæp 60 þúsund í fangelsi á Kúbu
- Sagðist vera með sprengju í líkamanum
- Kennarar og nemendur mótmæla
- 14 ára skaut á skólafélaga
- Væri upphafið að endalokum evrunnar
- Ummæli prests vekja reiði
- Gríski harmleikurinn heldur áfram
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- Sýrland
- Efnahagsvandræði á evrusvæðinu
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Skuldavandi Grikklands
- Forkosningar Repúblikana 2012
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 23. maí 2012, Erlent Undirbúi sig fyrir grískt brotthvarf
- Laugardagur, 6. ágúst 2011, Erlent Stjórnmálunum um að kenna
- Þriðjudagur, 7. febrúar 2012, Erlent Brotthvarf Grikklands breytir ekki öllu
- Þriðjudagur, 6. desember 2011, Erlent Metallica óttast endalok evrusvæðisins
- Þriðjudagur, 22. maí 2012, Erlent Væri upphafið að endalokum evrunnar
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur
-
Kristján: Þurfum að vinna okkur út úr þessu
-
Ásmundur: Búnir að bíða lengi




































