Marokkó og ESB deila um veiðar

Kort sem sýnir Vestur-Sahara stækka

Kort sem sýnir Vestur-Sahara

Evrópuþingið hefur samþykkt að framlengja ekki samning Evrópusambandsins við Marokkó um veiðar skipa ríkja ESB í efnahagslögsögu Marokkós.

Samkvæmt samningi ESB og Marokkó hefur sambandið greitt Marokkó fyrir fiskveiðiréttindi í efnahagslögsögu landsins. Marokkó hefur svarað þessari ákvörðun Evrópuþingsins með því að krefjast þess að öll skip sem eru á veiðum í efnahagslögsögu landsins, á grundvelli samningsins við ESB, hætti veiðum.

Evrópuþingið telur samninginn við Marokkó ólöglegan þar sem íbúar ríkja Vestur-Sahara njóta ekki ávinnings af samningnum en veiðarnar fara að mestu fram við þeirra strandlengju. 

Spánverjar, sem hafa veitt mest ESB-ríkjanna á grundvelli samningsins við Marokkó, eru ævareiðir og krefjast nú bóta úr hendi ESB vegna veiðibannsins.

Í yfirlýsingu frá stjórnvöldum í Marokkó kemur fram að ákvörðun Evrópuþingsins geti haft alvarlegar afleiðingar varðandi samstarf Marokkós og ESB í sjávarútvegi.

ESB hefur greitt Marokkó 36 milljónir evra, 5,7 milljarða króna, á ári fyrir fiskveiðiréttindin við strandlengju Vestur-Sahara. Samningurinn rann formlega út í febrúar en ESB hafði lýst yfir áhuga á að framlengja hann til febrúar á næsta ári.

Evrópuþingið kom hins vegar í veg fyrir að það yrði gert á grundvelli Lissabon-sáttmálans á grundvelli þess að samningurinn skilaði ekki íbúum Vestur-Sahara ávinningi. Eins hafa gagnrýnendur samkomulagsins bent á að hann væri eyðsla á opinberu fé og leiddi til ofveiði. Alls samþykktu 326 þingmenn Evrópuþingsins að framlengja ekki samninginn en 296 vildu heimila endurnýjun hans, segir í frétt BBC.

Vestur-Sahara var áður spænsk nýlenda en var innlimað í Marokkó árið 1975 og hefur íbúum verið boðin sjálfsstjórn í héraðinu. Frelsishreyfing Vestur-Saharamanna, Polisario, hefur barist fyrir sjálfstæði landsins en án árangurs.

Polisario vill þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálfstæði eða tengsl við Marokkó meðal V-Saharamanna, þeirra sem búa við hernám og hinna sem eru í útlegð. Alþjóðadómstóllinn í Haag úrskurðaði 1976 að Marokkó ætti enga kröfu til V-Sahara. Íbúarnir ættu sjálfir að ákveða framtíð sína í kosningum.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Erlent »

Júlía Tímósjenkó fyrrverandi forsætisráðherra Úkraínu situr nú í fangelsi.

Tímósjenkó veik og kvalin í fangelsi

19:04 Fyrrverandi forsætisráðherra Úkraínu, Júlí Tímósjenkó, er „veik og líður stöðugar kvalir" að sögn kanadískra lækna sem skoðuðu hana í fangelsinu. Þeir sögu jafnframt að yfirvöld hefðu bannað þeim að gera mikilvægar blóð- og eitrunarprufur á henni. Meira »
Bradley Manning í handjárnum.

Manning formlega ákærður

18:43 Bandaríski hermaðurinn Bradley Manning var í dag formlega ákærður og stefnt fyrir herrétt, fyrir að hafa lekið bandarískum leyniskjölum til WikiLeaks. Hann gæti átt ævilangt fangelsi yfir höfði sér. Meira »

Tveggja daga þjóðarsorg í Argentínu

16:42 Fjölmargir Argentínumenn leituðu örvæntingarfullir að ástvinum á spítölum Buenos Aires í dag í von um að þeir hefðu lifað af lestarslys í gærkvöldi sem kostaði 50 manns lífið. Hundruð eru slasaðir og hefur tveggja daga þjóðarsorg verið lýst yfir í landinu. Víða má sjá flaggað í hálfa stöng. Meira »

Sextán létust í snjóflóðum

Þorspbúar skoða ummerki eftir snjóflóðið.
15:42 Að minnsta kosti 16 hermenn létust og þriggja er enn saknað eftir tvö mikil snjóflóð í Kasmír-héraði á Indlandi í nótt. Herbúðir eru að hluta til grafnar undir fönn og varað er við fleiri flóðum. Meira »

Leita enn að líkum um borð myndskeið

Costa Concordia björgun
14:37 Enn er leitað að líkum sjö manna sem saknað er eftir að skemmtiferðaskipið Costa Concordia sökk undan ströndum ítölsku eyjunnar Giglio. Lík fimm ára stúlku fannst í gær en faðir hennar fórst einnig í slysinu. Meira »

Verðir áfram í varðhaldi

Ítalski öryggisvörðurinn Salvatore Girone á leið úr dómshúsinu.
16:20 Indverskur dómstóll hefur dæmt tvo verði af ítölsku olíuflutningaskipi í áframhaldandi gæsluvarðhald. Mennirnir skutu tvo indverska sjómenn til bana. Þeir héldu að mennirnir væru sjóræningjar. Meira »

Vilja flytja lík Colvin frá Sýrlandi

Marie Colvin. Hún missti sjónina á öðru auga í Sri Lanka árið 2001 en lét ...
14:59 Flytja á breskan ljósmyndara, sem særðist í Homs í Sýrlandi í gær í árás sem varð tveimur vestrænum félögum hans að bana, úr borginni sem fyrst. Að sögn breska utanríkisráðuneytisins á að flytja Paul Conroy til nágrannaríkis þar sem hann mun fá læknisaðstoð. Eki hafa fengist upplýsingar um hvort hann sé enn í Homs eða hvort hann sé lagður af stað. Meira »

Sjö hermenn létust í þyrluslysi

Bandarískir hermenn. Myndin er úr safni.
14:24 Sjö landgönguliðar létust á heræfingu í gærkvöldi í Arizona í Bandaríkjunum þegar tvær þyrlur skullu saman.  Meira »

Látin hlaupa í 3 tíma í refsingarskyni

Savannah Hardin.
13:35 Tvær bandarískar konur hafa verið handteknar eftir að þær létu níu ára stúlku hlaupa í þrjár klukkustundir samfleytt með þeim afleiðingum að hún fékk krampakast vegna ofþornunar og dó nokkrum dögum síðar. Voru konurnar að refsa stúlkunni fyrir að hafa logið að annarri þeirra. Meira »

Segja Ben Bella ýmist lífs eða liðinn

Ahmed Ben Bella.
12:58 Misvísandi fréttir berast nú af því hvort Ahmed Ben Bella, fyrrum forseti Alsírs, sé lífs eða liðinn. Eitt dagblaðanna þar í landi hefur greint frá því að Ben Bella sé látinn, 96 ára að aldri, en alsírsk fréttastofa segir hann í stöðugu ástandi á spítala. Meira »

Obama biðst afsökunar á bókabrennu

Mótmælt skammt frá Kabúl.
13:20 Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, hefur sent Hamid Karzai, forseta Afganistan, afsökunarbeiðni vegna bandarískra hermanna í Bagram-stöðinni sem vanvirtu íslam með því að brenna Kóraninn og fleiri helgirit múslima. Meira »

Aðstoðar þörf í Mósambík eftir fellibylji

Starfsmaður Rauða krossins í útkalli.
11:46 Alþjóðlegi Rauði krossinn kallaði í dag eftir þremur milljónum dala, um 375 milljónum kr., til að aðstoða þúsundir fjölskyldna í Mósambík sem enn bíða aðstoðar eftir að tveir fellibyljir gengu yfir landið í síðasta mánuði. Meira »

Fórnarlamba nýnasistahóps minnst

Angela Merkel kanslari við minningarathöfnina.
11:11 Einnar mínútu þögn var haldin í Þýskalandi í morgun til að minnast fórnarlamba nýnasista. Angela Merkel kanslari sagði fjölskyldum fórnarlambanna við sérstaka minningarathöfn í Berlín að þjóðin syrgði með þeim. Meira »

Umferðamiðstöð sprengd í Peshawar myndskeið

Sprenging á umferðamiðstöð í Peshawar
10:07 Átta létust og þrjátíu særðust þegar sprengja sprakk í umferðamiðstöð í Peshawar í norðvesturhluta Pakistans. Enginn hefur lýst yfir ábyrgð á árásinni. Meira »

Halda hátíð fyrir Pútín

Frá hátíðahöldunum í Moskvu í morgun.
08:17 Um 30,000 manns gengu fylktu liði um miðborg Moskvu í morgun til að sýna stuðning sinn við forsetaframboð Vladimirs Pútíns forsætisráherra Rússlands. Stjórnarandstæðingar segja að fólki hafi verið skipað að taka þátt í hátíðahöldunum. Meira »

Flytja erlenda fanga úr fangelsinu

Fangar í varðturni í Kerobokan-fangelsinu í Denpasar á Balí.
10:38 Yfirvöld í Indónesíu byrjuðu í dag að flytja erlenda fanga úr Kerobokan-fangelsinu á Balí. Þar hafa miklar óeirðir brotist út og hefur föngunum tekist að koma fangavörðunum frá og taka við stjórninni. Meira »

Breivik á marga pennavini

Norski fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik
09:37 Norski fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik stendur í umfangsmiklum bréfaskriftum við fjölda manna úr fangaklefa sínum. Honum er mikið í mun að stefnuyfirlýsing hans, hið svokallaða manifesto, nái til sem flestra. Meira »

Fangaverðir hjálpuðu föngum að flýja myndskeið

Fangaverðir handteknir í Mexíkó
07:57 Tugir mexíkóskra fangavarða voru handteknir í gær, grunaðir um að hafa aðstoðað dæmda meðlimi eiturlyfjagengja við að flýja úr fangelsi síðastliðna helgi. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Eldavél með ofni 50 sm
Til sölu Gorenje eldavél með ofni. Lítur mjög vel út. Stærð 50 X 90 X 60 cm. Kos...
Land Cruiser 120 GX 33" 2006 ekinn 86 þ.
100% þjónusta, slatti af aukahlutum, 2 eigendur. Toppeintak! Ásett 4.990, tilb...
Artic Cat 440
Til sölu Arctic Cat 440 árgerð 2003. Sleðinn er ekinn um 1300 km. Flottur keppni...
COSTA BRAVA PLAYA DE ARO
Costa Brava - Playa de Aro Gullna ströndin, fyrir fjölskylduna i sumarleyfið. st...
 
Starfsmaður í sölu- og bókunardeild
Hótel- og veitingarekstur
Starfsmaður í sölu- og bókunardeild Cen...
I.o.o.f.7.
Félagsstarf
I.O.O.F.7.[192220271/2[0.*...
I.o.o.f. 11
Félagsstarf
I.O.O.F. 11 [ 1922238 [ Gh....
Kristniboðssambandið samkoma
Félagsstarf
Háaleitisbraut 58-60 Samkoma í kvöld kl...