Eftirlitsmenn væntanlegir til Sýrlands
Eftirlitsmenn frá Arababandalaginu eru væntanlegir til Sýrlands í dag en þeir hafa það verkefni að stuðla að friði í landinu og binda enda á ofbeldisverk stjórnarhermanna gagnvart mótmælendum, sem vilja koma ríkisstjórninni frá völdum.
Hluti hópsins, um 30 eftirlitsmenn, kemur til Sýrlands í dag og eru fréttamenn með þeim í för, að því er fram kemur á vef breska ríkisútvarpsins.
Eftirlitsmennirnir munu undirbúa komu annarra úr sendinefndinni, sem eru væntanlegir til landsins næsta sunnudag. Talið er að heildarfjöldi eftirlitsmanna í landinu verði um 150. Þeir hafa fengið einn mánuð til að stuðla að friði í landinu, en hægt verður að framlengja umboð þeirra um einn mánuð til viðbótar náist samkomulag um það á milli stríðandi fylkinga.
Verkefni eftirlitsmannanna er að fylgjast með því að stjórnvöld í Sýrlandi fari eftir þeim aðgerðum sem Arababandalagið samþykkti til að stuðla að friði í landinu. Bandalagið hefur kallað eftir því að árásir verði stöðvaðar, að hermenn hörfi af götum borga og mótmælendum verði sleppt úr haldi.
Sl. mánudag gáfu sýrlensk stjórnvöld eftirlitsmönnunum grænt ljós á að koma til landsins eftir að hafa tafið málið vikum saman.
Sameinuðu þjóðirnar segja að rúmlega 5.000 hafi fallið í Sýrlandi frá því mótmælin gegn stjórn Bashars al-Assads Sýrlandsforseta hófust í mars sl. Mannréttindasamtök segja aftur á móti að talan sé mun hærri, að því er segir á vef BBC.
Stjórnvöld í Damaskus, höfuðborg Sýrlands, segja að vopnuð gengi beri ábyrgð á óöldinni sem vilji koma á óstöðugleika í landinu.
Mjög er þrýst á að Rússar hraði vinnu við gerð ályktunar í öryggisráði SÞ þar sem ofbeldisverkin eru fordæmd. Stjórnvöld í Rússlandi komu vestrænum embættismönnum á óvart í síðustu viku með því að kynna drög á ályktun þess efnis, en lítið hefur þokast við gerð ályktunarinnar síðan.
Erlent »
Miðvikudagur, 23.5.2012
-
Evruskuldabréf aftur á dagskrá
- Gróft einelti í sænskum heimavistarskóla
- Hótuðu að halda barninu eftir
- Olía alls ekki að ganga til þurrðar
- Hælisleitendur í hungurverkfalli
- Sprengjukona ekki ákærð
- Undirbúi sig fyrir grískt brotthvarf
- Romney lofar minna atvinnuleysi
- Vill skera upp herör gegn mafíunni
- Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum
- Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan
- Segja Watson fá réttláta meðferð
- Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
- Myrti dóttur sína og bútaði hana niður
- Taldi sig afhöfða geimveru
- Lifði af fall niður Niagara fossana
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
- Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu
Þriðjudagur, 22.5.2012
- Breivik fær tíma til útskýringa
- Tæp 60 þúsund í fangelsi á Kúbu
- Sagðist vera með sprengju í líkamanum
- Kennarar og nemendur mótmæla
- 14 ára skaut á skólafélaga
- Væri upphafið að endalokum evrunnar
- Ummæli prests vekja reiði
- Gríski harmleikurinn heldur áfram
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- Sýrland
- Efnahagsvandræði á evrusvæðinu
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Skuldavandi Grikklands
- Forkosningar Repúblikana 2012
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 7. janúar 2012, Erlent Svara árásum með járnhnefa
- Mánudagur, 26. desember 2011, Erlent Þrettán drepnir í Sýrlandi
- Þriðjudagur, 24. apríl 2012, Erlent Assad stendur ekki við loforð
- Miðvikudagur, 4. janúar 2012, Erlent Bera ábyrgð á fjöldamorðum
- Fimmtudagur, 29. desember 2011, Erlent Átökum linnir ekki í Sýrlandi
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur
-
Kristján: Þurfum að vinna okkur út úr þessu
-
Ásmundur: Búnir að bíða lengi





































