Auka ekki líkurnar á krabbameini
Franskur lýtalæknir heldur á gölluðum sílíkonpúða frá PIP, sem hann fjarlægði úr konu 21. desember síðastliðinn. Reuter
Franska heilbrigðisráðuneytið sendi frá sér tilkynningu í dag þar sem segir að sílíkonpúðar frá fyrirtækinu Poly Implant Prothese auki ekki líkurnar á krabbameini. Var þeim 30 þúsund konum sem fengu slíka sílíkonpúða í Frakklandi engu að síður ráðlagt að láta fjarlægja þá.
Þrátt fyrir að átta krabbameinstilfelli hafi greinst á meðal kvenna í Frakklandi, sem í voru græddir sílíkonpúðar frá PIP, sagði í tilkynningunni að þær séu ekki í meiri áhættu en aðrir að fá krabbamein. Það hafi hins vegar verið sannað að púðarnir frá hinum gjaldþrota framleiðanda eigi það frekar til að rifna en aðrir sílíkonpúðar.
Heilbrigðisráðherrann, Xavier Bertrand, sagði engu að síður að það að láta fjarlægja púðana væri fyrirbyggjandi aðgerð en ekki lífsnauðsynleg.
PIP var lokað og vörur þess bannaðar þegar í ljós kom að fyrirtækið hafði notað óleyfilegt iðnaðarsílíkon í stað hreins sílíkons í púðana, sem aftur olli því að púðarnir rifnuðu oftar en aðrir sílíkonpúðar.
Tugir þúsunda kvenna í fleiri en 65 löndum hafa gengist undir brjóstaaðgerðir þar sem notaðir voru púðar frá PIP, flestar í Suður-Ameríku og Vestur-Evrópu. Fleiri en 2.000 konur hafa sett sig í samband við saksóknara í Marseille, sem hefur hafið rannsókn á fyrirtækinu.
Lögmaður fyrirtækisins, Yves Haddad, segir hins vegar engar sannanir tengja púðana við sjúkdóma eða veikindi.
Erlent »
Miðvikudagur, 23.5.2012
-
Evruskuldabréf aftur á dagskrá
- Gróft einelti í sænskum heimavistarskóla
- Hótuðu að halda barninu eftir
- Olía alls ekki að ganga til þurrðar
- Hælisleitendur í hungurverkfalli
- Sprengjukona ekki ákærð
- Undirbúi sig fyrir grískt brotthvarf
- Romney lofar minna atvinnuleysi
- Vill skera upp herör gegn mafíunni
- Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum
- Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan
- Segja Watson fá réttláta meðferð
- Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
- Myrti dóttur sína og bútaði hana niður
- Taldi sig afhöfða geimveru
- Lifði af fall niður Niagara fossana
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
- Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu
Þriðjudagur, 22.5.2012
- Breivik fær tíma til útskýringa
- Tæp 60 þúsund í fangelsi á Kúbu
- Sagðist vera með sprengju í líkamanum
- Kennarar og nemendur mótmæla
- 14 ára skaut á skólafélaga
- Væri upphafið að endalokum evrunnar
- Ummæli prests vekja reiði
- Gríski harmleikurinn heldur áfram
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- Sýrland
- Efnahagsvandræði á evrusvæðinu
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Skuldavandi Grikklands
- Forkosningar Repúblikana 2012
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 28. desember 2011, Erlent Púðar fjarlægðir á kostnað ríkisins
- Föstudagur, 23. desember 2011, Erlent Gallaðir sílikonpúðar algengir í Suður-Ameríku
- Föstudagur, 23. desember 2011, Erlent Fjarlægja þarf sílikon úr brjóstum 30 þúsund kvenna
- Fimmtudagur, 2. febrúar 2012, Erlent Ráðleggja ekki að fjarlægja PIP
- Fimmtudagur, 26. janúar 2012, Erlent Eigandi PIP handtekinn
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur
-
Kristján: Þurfum að vinna okkur út úr þessu
-
Ásmundur: Búnir að bíða lengi




































