Búa sig undir hugsanleg endalok evrusvæðisins
Breska ríkisstjórnin hefur nú til skoðunar áætlanir um að koma á höftum á inn- og útflæði gjaldeyris frá Bretlandi í því skyni að standa vörð um breskt efnahagslíf ef til þess kemur að evrusvæðið liðist í sundur samkvæmt fréttavef breska dagblaðsins Daily Telegraph.
Fram kemur að þessi undirbúningur sé aðeins hugsaður sem viðbrögð ef allt fer á versta veg og komið verði á hliðstæðum gjaldeyrishöftum annars staðar í Evrópu með það að markmiði að draga út neikvæðum efnahagslegum afleiðingum þess að evrusvæðið liðist í sundur og evruríki taki upp sína fyrri gjaldmiðla á ný.
Breskir embættismenn óttast að ef eitt ríki yfirgefur evrusvæðið muni fjárfestar flytja fjármagn sitt bæði frá því ríki og öðrum evruríkjum til landa sem teldust öruggari. Fjármagnsflæði gæti þá leitað í vaxandi mæli meðal annars til Bretlands og keyrt gengi breska pundsins upp úr öllu valdi sem aftur myndi hafa neikvæð áhrif á áform breskra stjórnvalda til þess að koma á stöðugleika í efnahagslífinu byggðum á auknum útflutningi.
Vísað er til þess í fréttinni að fyrr á þessu ári hafi stjórnvöld í Sviss neyðst til þess að binda gengi svissneska frankans við gengi evrunnar til þess að stemma stigu við flæði fjármagns til landsins vegna vaxandi ótta vegna stöðu efnahagsmála á evrusvæðinu.
Hafin var vinna af hálfu breskra stjórnvalda við gerð viðbragðsáætlana vegna hugsanlegra endaloka evrusvæðisins í kjölfar þess að stjórnvöld á Spáni vöruðu við því nýverið að hagvöxtur í landinu yrði neikvæður á fjórða ársfjórðungi þessa árs.
Bloggað um fréttina
-
Haraldur Haraldsson Búa sig undir hugsanleg endalok evrusvæðisins//Allur er varin góður!!!
Erlent »
Miðvikudagur, 23.5.2012
-
Evruskuldabréf aftur á dagskrá
- Gróft einelti í sænskum heimavistarskóla
- Hótuðu að halda barninu eftir
- Olía alls ekki að ganga til þurrðar
- Hælisleitendur í hungurverkfalli
- Sprengjukona ekki ákærð
- Undirbúi sig fyrir grískt brotthvarf
- Romney lofar minna atvinnuleysi
- Vill skera upp herör gegn mafíunni
- Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum
- Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan
- Segja Watson fá réttláta meðferð
- Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
- Myrti dóttur sína og bútaði hana niður
- Taldi sig afhöfða geimveru
- Lifði af fall niður Niagara fossana
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
- Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu
Þriðjudagur, 22.5.2012
- Breivik fær tíma til útskýringa
- Tæp 60 þúsund í fangelsi á Kúbu
- Sagðist vera með sprengju í líkamanum
- Kennarar og nemendur mótmæla
- 14 ára skaut á skólafélaga
- Væri upphafið að endalokum evrunnar
- Ummæli prests vekja reiði
- Gríski harmleikurinn heldur áfram
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- Sýrland
- Efnahagsvandræði á evrusvæðinu
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Skuldavandi Grikklands
- Forkosningar Repúblikana 2012
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 20. september 2011, Erlent Ein efnahagsstjórn líklegri niðurstaða
- Mánudagur, 2. janúar 2012, Erlent Segir 99% líkur á að evran lifi ekki
- Mánudagur, 6. febrúar 2012, Erlent Undirbúa brotthvarf Grikkja
- Föstudagur, 2. september 2011, Erlent Hætta á að evrusvæðið glati lýðræðislegu lögmæti sínu
- Föstudagur, 10. febrúar 2012, Erlent Leggja niður störf og mótmæla
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur
-
Kristján: Þurfum að vinna okkur út úr þessu
-
Ásmundur: Búnir að bíða lengi




































