Púðar fjarlægðir á kostnað ríkisins
Stjórnvöld í Venesúela hafa boðið konum sem láta fjarlægja sílikon-púða frá franska fyrirtækinu Poly Implant Prothese (PIP) úr brjóstum sínum að greiða fyrir aðgerðina.
Þrátt fyrir að stjórnvöld greiði fyrir skurðaðgerðina munu þau ekki greiða fyrir ísetningu nýrra sílikon-púða í stað þeirra sem eru fjarlægðir.
Á vef BBC er haft eftir heilbrigðisráðherra Venesúela, Eugenia Sader, að í mörgum tilvikum þar sem læknar hafa notað PIP púða við brjóstastækkanir hafi púðunum verið smyglað inn í landið.
Frönsk yfirvöld hafa mælt með því að 30 þúsund konur þar í landi láti fjarlægja sílikon-púða frá PIP úr brjóstum sínum í varúðarskyni þar sem þeir geti ógnað heilsu þeirra. Svo virðist sem sílikonið sem notað var í púðana sé ekki hreint sílikon heldur iðnaðarsílikon. Ekki sé aukin hætta á krabbameini fylgi púðunum líkt og ýmsir hafa haldið fram. Frönsk yfirvöld hafa jafnframt boðist til þess að greiða fyrir slíkar skurðaðgerðir.
PIP púðarnir voru bannaðir í nokkrum löndum á síðasta ári eftir að í ljós kom að um iðnaðarsílikon er að ræða í þeim og því meiri hætta á að þeir rofni.
Í Frakklandi er hafin rannsókn á starfsemi PIP en fyrirtækið fór í þrot á síðasta ári.
Sader segir í viðtali við BBC að þær konur sem hafa áhyggjur af sílikoni í brjóstum sínum eigi að fara á sjúkrahús í rannsókn og þær geti síðan farið í skurðaðgerð og látið fjarlægja þá án kostnaðar.
Brjóstastækkanir eru afar vinsælar í Venesúela og í einhverjum tilvikum eru stúlkum gefnar slíkar í fimmtán ára afmælisgjöf.
Talið er að yfir 300 þúsund brjóstapúðar frá PIP hafi verið seldir í heiminum síðastliðin tólf ár í 65 löndum. Yfir helmingurinn fór til ríkja í Suður-Ameríku.
Erlent »
Miðvikudagur, 23.5.2012
-
Evruskuldabréf aftur á dagskrá
- Gróft einelti í sænskum heimavistarskóla
- Hótuðu að halda barninu eftir
- Olía alls ekki að ganga til þurrðar
- Hælisleitendur í hungurverkfalli
- Sprengjukona ekki ákærð
- Undirbúi sig fyrir grískt brotthvarf
- Romney lofar minna atvinnuleysi
- Vill skera upp herör gegn mafíunni
- Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum
- Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan
- Segja Watson fá réttláta meðferð
- Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
- Myrti dóttur sína og bútaði hana niður
- Taldi sig afhöfða geimveru
- Lifði af fall niður Niagara fossana
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
- Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu
Þriðjudagur, 22.5.2012
- Breivik fær tíma til útskýringa
- Tæp 60 þúsund í fangelsi á Kúbu
- Sagðist vera með sprengju í líkamanum
- Kennarar og nemendur mótmæla
- 14 ára skaut á skólafélaga
- Væri upphafið að endalokum evrunnar
- Ummæli prests vekja reiði
- Gríski harmleikurinn heldur áfram
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- Sýrland
- Efnahagsvandræði á evrusvæðinu
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Skuldavandi Grikklands
- Forkosningar Repúblikana 2012
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 23. desember 2011, Erlent Fjarlægja þarf sílikon úr brjóstum 30 þúsund kvenna
- Föstudagur, 23. desember 2011, Erlent Gallaðir sílikonpúðar algengir í Suður-Ameríku
- Fimmtudagur, 26. janúar 2012, Erlent Eigandi PIP handtekinn
- Fimmtudagur, 5. janúar 2012, Erlent Mæla með að konur láti fjarlægja sílikon
- Fimmtudagur, 26. janúar 2012, Erlent 600 milljarðar fyrir fegrunaraðgerðir
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur
-
Kristján: Þurfum að vinna okkur út úr þessu
-
Ásmundur: Búnir að bíða lengi




































