Frakkar ættu að líta í eigin barm
Frönsk stjórnvöld ættu að einbeita sér að eigin efnahagsvandræðum í stað þess að gagnrýna ástand efnahagsmála á Bretlandi. Þetta segir einn virtasti hagfræðingur Bandaríkjanna, Martin Feldstein. Um þetta er fjallað á fréttavef breska dagblaðsins Daily Telegraph.
Tilefni ummæla Feldsteins eru yfirlýsingar frá frönskum ráðamönnum fyrir jól um að efnahagsástandið í Bretlandi sé verra en í Frakklandi og að Bretar geti hugsanlega ekki staðið undir skuldbindingum sínum.
Feldstein, sem er prófessor í hagfræði við Harvard-háskóla í Bandaríkjunum, segir enga hættu á því að Bretland standi ekki við skuldbindingar sínar. Hins vegar virtðist frönsk stjórnvöld ekki skilja stöðu efnahagsmála í Frakklandi annars vegar og Bretlandi hins vegar.
„Franskir embættismenn skilja greinilega ekki mikilvægi þeirrar staðreyndar að Bretar standi utan evrusvæðisins og hafi þannig sinn eigin gjaldmiðil sem þýðir að það er engin hætta á að Bretland lendi í greiðsluþroti vegna skulda sinna,“ segir Feldstein í grein á vefsíðunni Project Syndicate.
Hann segir að fyrir vikið geti Bretar alltaf prentað fleiri pund til þess að greiða skuldir sínar en Frakkar geti hins vegar ekki prentað fleiri evrur eftir þörfum. Ef fjárfestar vilja ekki lengur fjármagna skuldir Frakklands, þ.e. ef landið getur ekki lengur fengið lánað til þess að greiða þær, þá neyðist það til þess að lýsa yfir greiðsluþroti.
Feldstein segir ennfremur að það eina sem Frakkar fái út úr því að beina spjótum sínum að Bretum, í kjölfar þess að David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, neitaði að undirrita nýjan sáttmála á Evrópusambandsríkja fyrr í þessum mánuði sem ætlað er að reyna að bjarga evrunni, sé það að spennan á milli ríkjanna aukist.
„Frakkland ætti að einbeita sér að eigin innanlands fjármálavanda og erfiðri stöðu viðskiptabanka sinna í stað þess að ráðast á Breta og kalla eftir pólitískum breytingum sem munu ekki eiga sér stað,“ segir Feldstein að lokum.
Erlent »
Miðvikudagur, 23.5.2012
-
Evruskuldabréf aftur á dagskrá
- Gróft einelti í sænskum heimavistarskóla
- Hótuðu að halda barninu eftir
- Olía alls ekki að ganga til þurrðar
- Hælisleitendur í hungurverkfalli
- Sprengjukona ekki ákærð
- Undirbúi sig fyrir grískt brotthvarf
- Romney lofar minna atvinnuleysi
- Vill skera upp herör gegn mafíunni
- Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum
- Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan
- Segja Watson fá réttláta meðferð
- Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
- Myrti dóttur sína og bútaði hana niður
- Taldi sig afhöfða geimveru
- Lifði af fall niður Niagara fossana
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
- Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu
Þriðjudagur, 22.5.2012
- Breivik fær tíma til útskýringa
- Tæp 60 þúsund í fangelsi á Kúbu
- Sagðist vera með sprengju í líkamanum
- Kennarar og nemendur mótmæla
- 14 ára skaut á skólafélaga
- Væri upphafið að endalokum evrunnar
- Ummæli prests vekja reiði
- Gríski harmleikurinn heldur áfram
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- Sýrland
- Efnahagsvandræði á evrusvæðinu
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Skuldavandi Grikklands
- Forkosningar Repúblikana 2012
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 6. ágúst 2011, Erlent Frakkar hafa trú á Bandaríkjunum
- Laugardagur, 6. ágúst 2011, Erlent Stjórnmálunum um að kenna
- Fimmtudagur, 3. maí 2012, Erlent Tyrkland fordæmir mat S&P
- Sunnudagur, 1. maí 2011, Erlent Segir Skota ekki geta séð um eigin efnahagsmál
- Sunnudagur, 7. ágúst 2011, Erlent Stærðfræðikunnáttan skelfileg
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur
-
Kristján: Þurfum að vinna okkur út úr þessu
-
Ásmundur: Búnir að bíða lengi




































