Bera ábyrgð á fjöldamorðum
Nicolas Sarkozy, forseti Frakklands, hefur ítrekað þá kröfu sína að Bashar al-Assad Sýrlandsforseti láti af völdum. Sarkozy segir að stjórnvöld í Sýrlandi beri ábyrgð á fjöldamorðum.
Embættismaður hjá Arababandalaginu segir að það muni ræða það hvort bandalagið eigi að kalla eftirlitsmenn sína heim frá Sýrlandi vegna ofbeldisverka sem séu enn framin í landinu. Arababandalagið segir að einhver árangur hafi náðst frá því eftirlitsmennirnir komu til landsins í síðustu viku. Hins vegar bendir það á að verkefnið sé á frumstigi.
Sarkozy krefst þess að Assad víki.
„Fjöldamorðin sem sýrlensk stjórnvöld standa á bak við vekja með réttu viðbjóð í arabaheiminum, í Frakklandi, í Evrópu og alls staðar í heiminum,“ sagði Sarkozy í nýársávarpi, sem hann flutti í herstöð franska flotans í Lanveoc-Poulmic.
Fyrir nokkrum vikum sögðu Sameinuðu þjóðirnar að talið væri að rúmlega 5.000 hefðu látist í aðgerðum sýrlenskra öryggisveita, sem beinast gegn mótmælendum í landinu. Mótmælin gegn sitjandi stjórnvöldum hófust í mars í fyrra. Talið er að mörg hundruð til viðbótar hafi látist frá því SÞ birti sína skýrslu um ástandið í landinu.
Alþjóðasamfélagið hefur fordæmt ofbeldisverkin í Sýrlandi og samþykkt að beita stjórnvöld refsiaðgerðum. Þrátt fyrir það er ekkert fararsnið á Assad.
Arababandalagið hefur sent um 100 eftirlitsmenn til landsins. Þeirra verkefni er fylgjast með því hvort sýrlensk stjórnvöld fari eftir áætlun bandalagsins sem miðar að því að öryggissveitarmenn og þungavopn verði ekki lengur á götum borga, stjórnvöld hefji viðræður við leiðtoga stjórnarandstöðunnar og að pólitískum föngum verði sleppt úr fangelsi. Ríkisstjórn Sýrlands samþykkti áætlunina, sem er ætlað að binda enda á ofbeldisverkin í landinu, þann 19. desember sl.
Talsmaður Hvíta hússins í Washington, Jay Carney, segir að ofbeldinu verði að linna. „Við höfum tekið það skýrt fram að ef áætlun Arababandalagsins verður ekki tekin til framkvæmda, þá verði alþjóðasamfélagið að íhuga að grípa til nýrra aðgerða til að neyða stjórnvöld til að hætta að beita eigin þegna ofbeldi,“ sagði Carney.
Erlent »
Miðvikudagur, 23.5.2012
-
Evruskuldabréf aftur á dagskrá
- Gróft einelti í sænskum heimavistarskóla
- Hótuðu að halda barninu eftir
- Olía alls ekki að ganga til þurrðar
- Hælisleitendur í hungurverkfalli
- Sprengjukona ekki ákærð
- Undirbúi sig fyrir grískt brotthvarf
- Romney lofar minna atvinnuleysi
- Vill skera upp herör gegn mafíunni
- Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum
- Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan
- Segja Watson fá réttláta meðferð
- Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
- Myrti dóttur sína og bútaði hana niður
- Taldi sig afhöfða geimveru
- Lifði af fall niður Niagara fossana
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
- Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu
Þriðjudagur, 22.5.2012
- Breivik fær tíma til útskýringa
- Tæp 60 þúsund í fangelsi á Kúbu
- Sagðist vera með sprengju í líkamanum
- Kennarar og nemendur mótmæla
- 14 ára skaut á skólafélaga
- Væri upphafið að endalokum evrunnar
- Ummæli prests vekja reiði
- Gríski harmleikurinn heldur áfram
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- Sýrland
- Efnahagsvandræði á evrusvæðinu
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Skuldavandi Grikklands
- Forkosningar Repúblikana 2012
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 11. nóvember 2011, Erlent Sökuð um glæpi gegn mannkyni
- Þriðjudagur, 31. janúar 2012, Erlent Aukinn þrýstingur á Sýrlandsstjórn
- Föstudagur, 13. janúar 2012, Erlent Frakkar gruna sýrlensk stjórnvöld
- Þriðjudagur, 10. janúar 2012, Erlent Forseti Sýrlands segist ekki á förum
- Fimmtudagur, 18. ágúst 2011, Erlent Vilja Assad burt
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur
-
Kristján: Þurfum að vinna okkur út úr þessu
-
Ásmundur: Búnir að bíða lengi




































