Rena brotnar í tvennt
Flutningaskipið Rena, sem strandaði við Nýja-Sjáland í október, hefur brotnað í tvennt í vondu veðri. Gámar og annað lauslegt hefur fallið í hafið og óttast menn að olía muni á ný leka í sjóinn og menga strandlengjuna. Þetta segja talsmenn nýsjálensku siglingamálastofnunarinnar.
Þeir segja að fremri hluti skipsins sé enn fastur á sama stað. Aftari hlutinn hafi hins vegar losnað og sé á hreyfingu. Um sex metra háar höldur skella á skipinu.
Ross Henderson, talsmaður nýsjálensku siglingamálastofnunarinnar, segir að margir gámar og annað lauslegt hafi fallið í sjóinn. Vonskuveður er á svæðinu og segir Henderson að spáin muni haldast óbreytt næstu þrjá til fjóra daga.
Búið er að virkja teymi til að hreinsa upp olíu og koma dýrum til aðstoðar gerist þess þörf.
Rena, sem er í eigu grísks skipafyrirtækis, strandaði á Astralobe-rifinu um 22 km frá Tauranga höfn á Norður-Eyju 5. október sl. Mikið magn olíu lak í hafið og á nærliggjandi ströndum varð mikil olíumengun. Um 20.000 sjófuglar drápust. Strandið er sagt versta umhverfisslys á sjó í sögu Nýja-Sjálands.
Björgunarsveitir hafa náð að fjarlægja rúmlega 1.100 tonn af olíu úr skipinu. Enn eru um 385 tonn um borð, sem er svipað magn og hefur nú þegar lekið í sjóinn.
Erlent »
Miðvikudagur, 23.5.2012
-
Evruskuldabréf aftur á dagskrá
- Gróft einelti í sænskum heimavistarskóla
- Hótuðu að halda barninu eftir
- Olía alls ekki að ganga til þurrðar
- Hælisleitendur í hungurverkfalli
- Sprengjukona ekki ákærð
- Undirbúi sig fyrir grískt brotthvarf
- Romney lofar minna atvinnuleysi
- Vill skera upp herör gegn mafíunni
- Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum
- Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan
- Segja Watson fá réttláta meðferð
- Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
- Myrti dóttur sína og bútaði hana niður
- Taldi sig afhöfða geimveru
- Lifði af fall niður Niagara fossana
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
- Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu
Þriðjudagur, 22.5.2012
- Breivik fær tíma til útskýringa
- Tæp 60 þúsund í fangelsi á Kúbu
- Sagðist vera með sprengju í líkamanum
- Kennarar og nemendur mótmæla
- 14 ára skaut á skólafélaga
- Væri upphafið að endalokum evrunnar
- Ummæli prests vekja reiði
- Gríski harmleikurinn heldur áfram
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- Sýrland
- Efnahagsvandræði á evrusvæðinu
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Skuldavandi Grikklands
- Forkosningar Repúblikana 2012
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 17. október 2011, Erlent Talið að öll olían fari í sjóinn
- Þriðjudagur, 1. nóvember 2011, Erlent Rena gæti klofnað í tvennt
- Þriðjudagur, 18. október 2011, Erlent 5000 sjálfboðaliðar vinna að hreinsun
- Miðvikudagur, 12. október 2011, Erlent Stjórnendur skips handteknir
- Sunnudagur, 16. október 2011, Erlent Í kappi við tímann
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur
-
Kristján: Þurfum að vinna okkur út úr þessu
-
Ásmundur: Búnir að bíða lengi
Grunn-/framhaldsskóla
Lausar stöður við Grunnskóla Hornaf...




































