Van der Sloot játaði á sig morðið
Joran Van der Sloot, hollenskur ríkisborgari búsettur í Perú, játaði í gær fyrir dómstól að hafa orðið ungri perúskri konu að bana árið 2010. Ástæða morðsins var sú að unga konan komst að því að Van der Sloot var grunaður um aðild að hvarfi ungrar konu á Arúba árið 2005.
Van der Sloot var handtekinn en ekki ákærður vegna hvarfs unglingsstúlku frá Alabama, Natalee Holloway. Rannsókn á hvarfi hennar á eyjunni Aruba í Karabíska hafinu vakti mikla athygli, bæði í Bandaríkjunum og víðar í heiminum.
Fyrir dómi í Lima í gær játaði Van der Sloot að hafa orðið Stephany Flores, 21 árs, að bana á hótelherbergi sínu 30. maí 2010. Sama dag fimm árum áður var tilkynnt um hvarf Holloway.
Raunar játaði Van der Sloot fyrst á sig morðið hjá lögreglu þegar hann var handtekinn vegna gruns um aðild að dauða konunnar. Hann bar hins vegar játningu sína til baka í viðtali við hollenskt dagblað nokkrum mánuðum síðar og sagðist hafa verið ginntur til að játa.
Van der Sloot sýndi iðrun í réttarsal og sagðist sjá mikið eftir ódæði sínu. Verjandi hans sagði eftir réttarhaldið að ekki hefði verið um morð að yfirlögðu ráði að ræða. Það mætti meðal annars sjá á því, að Van der Sloot skipulagði ekki flótta sinn. Á myndbandi úr öryggiskerfi hótelsins sást Flores fara inn í herbergi van der Sloot í hans fylgd klukkan fimm að nóttu. Þar sást hann einnig yfirgefa herbergið fjórum tímum síðar.
Hann var handtekinn í Síle nokkrum dögum síðar og framseldur til Perú.
Verjandi Van der Sloot sagði ódæðið hafa verið unnið í mikilli geðshræringu og tengdi það ummælum Flores um tengsl skjólstæðings síns við hvarf Holloway.
Dómur verður kveðinn upp á föstudag en ákæruvaldið fór fram á þrjátíu ára fangelsi.
Erlent »
Miðvikudagur, 23.5.2012
-
Evruskuldabréf aftur á dagskrá
- Gróft einelti í sænskum heimavistarskóla
- Hótuðu að halda barninu eftir
- Olía alls ekki að ganga til þurrðar
- Hælisleitendur í hungurverkfalli
- Sprengjukona ekki ákærð
- Undirbúi sig fyrir grískt brotthvarf
- Romney lofar minna atvinnuleysi
- Vill skera upp herör gegn mafíunni
- Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum
- Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan
- Segja Watson fá réttláta meðferð
- Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
- Myrti dóttur sína og bútaði hana niður
- Taldi sig afhöfða geimveru
- Lifði af fall niður Niagara fossana
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
- Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu
Þriðjudagur, 22.5.2012
- Breivik fær tíma til útskýringa
- Tæp 60 þúsund í fangelsi á Kúbu
- Sagðist vera með sprengju í líkamanum
- Kennarar og nemendur mótmæla
- 14 ára skaut á skólafélaga
- Væri upphafið að endalokum evrunnar
- Ummæli prests vekja reiði
- Gríski harmleikurinn heldur áfram
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- Sýrland
- Efnahagsvandræði á evrusvæðinu
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Skuldavandi Grikklands
- Forkosningar Repúblikana 2012
Svipaðar fréttir
- Sunnudagur, 10. apríl 2011, Erlent Morðinginn sætti áður rannsókn lögreglu
- Þriðjudagur, 14. desember 2010, Erlent Óttast að fórnarlömbin séu mun fleiri
- Mánudagur, 17. október 2011, Erlent Litla stúlkan enn ófundin
- Mánudagur, 21. nóvember 2011, Erlent Veiðiskáli Honeckers seldur á uppboði
- Mánudagur, 21. nóvember 2011, Erlent Tekist á um sæmdarmorð í Belgíu
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur
-
Kristján: Þurfum að vinna okkur út úr þessu
-
Ásmundur: Búnir að bíða lengi
Grunn-/framhaldsskóla
Lausar stöður við Grunnskóla Hornaf...




































