„Hann talar líka frönsku"
Keppinautar Mitts Romneys um útnefningu sem forsetaefni bandaríska Repúblikanaflokksins, reyna nú af öllum mætti að sverta Romney í augum kjósenda. Í nýrri auglýsingu bendir frambjóðandinn Newt Gingrich m.a. á, að Romney tali frönsku eins og demókratinn frjálslyndi John Kerry.
Gingrich, sem berst við Romney um útnefningu, hefur birt auglýsingu þar sem hann líkir Romney við demókratann John Kerry, sem lá undir sambærilegum ásökunum árið 2004, þegar hann sóttist eftir forsetaembættinu.
Í auglýsingunni sem kallast frönsku tengslin eru meint mistök Romney’s talin upp, undir höktandi harmónikuspili, þar á meðal að hann hafi fjarlægst Ronald Reagan, hækkað skatta og bjóði fóstureyðingar á kostnað skattborgara.
Í myndbandinu er sagt að Romney muni segja hvað sem er til að vinna og eins og John Kerry, - klippt er yfir á John Kerry þar sem hann talar frönsku og sagt að Romney tali líka frönsku.
Romney, sem er fyrrum ríkisstjóri Massachusettes eins og Kerry, er sýndur kynna sig á frönsku. „Bonjour, je m'appelle Mitt Romney“ en Romney gerði kynningarmyndband þegar hann var framkvæmdastjóri fyrir vetrarólympíuleikana í Salt Lake City árið 2002.
Frönskukunnáttu Romney má rekja til þess að hann dvaldi í tvö og hálft ár sem mormónatrúboði í Frakklandi á sjöunda áratug síðustu aldar, á meðan átakatímabilið í maí 1968 stóð yfir, en sneri þá heim og hóf feril sinn í viðskiptum og stjórnmálum.
Gingrich einnig frönskumælandi
En stjórnmálaskýrendur hafa bent á að Gingrich sé einnig fullfær á franska tungu, þar sem hann hafi sem unglingur fylgt föður sínum til Orleans í Frakklandi og verið þar í nokkur ár. Gingrich skrifaði m.a. annars doktorsritgerð sína í evrópskri sögu og vísaði þar til heimilda á franskri tungu.
Bent er á að þeir sex frambjóðendur sem eftir standa innan Repúblikanaflokksins vilji sýna fram á að þeir séu andstæðan sem geti tekist á við demókratann Barack Obama í kosningunum í nóvember. Í því samhengi er bent á að Obama þykir hafa fylgt dæmi Evrópu og þá sérstaklega Frakka í efnahags og samfélagsmálum sem hafi ekki skilað nógu góðum árangri.
Romney með forystu
Margir íhaldsmenn hafa ekki enn fyrirgefið Frakklandi fyrir að standa ekki með Bandaríkjamönnum í innrásinni í Írak árið 2003. Bandarískur almenningur brást ókvæða við og franskar kartöflur voru kallaðar upp á nýtt, frelsiskartöflur.
Nýjustu skoðanakannanir sýna að Romney nýtur nú 34% fylgis sem er mun meira en keppinautar hans geta státað af. Gingrich er með 18% en Ron Paul og Rick Santorum eru skammt undan með 15%, Rick Perry 9% og Jon Huntsman 4%.





































