Tók upp viðbrögð við strandinu
Myndskeið, sem farþegi í farþegaskipinu Costa Concordia tók, sýnir hvernig fólk hópaðist saman á einum af samkomustöðum skipsins á föstudag, þar sem það beið þess að komast frá borði, eftir að skipið strandaði.
Myndbandið sýnir áhöfnina reyna að róa fólkið sem klætt er í björgunarvesti, með því að segja því að skipið sé rétt við Giglio-eyju. Áhöfnin sést biðja farþegana að fylgja öryggisleiðbeiningum vandlega.
Yfirvöld telja að Fracesco Shettino skipstjóri hafi farið of nálægt ströndinni með 114.500 tonna skipið, þar sem það rakst á kletta sem rifu stórt gat á botn þess.
Skipstjórinn gaf ekki strax fyrirskipun um að allir ættu að yfirgefa skipið heldur reyndi hann fyrst að sigla skipinu nær eyjunni. Fljótt varð þó ljóst, að engir aðrir kostir voru í boði en að yfirgefa skipið enda streymdi sjór inn og skipið fór fljótt að hallast.
Skipið hélt úr höfn í Civitavecchia, skammt frá Róm, um klukkan 18 á föstudagskvöld. Síðar um kvöldið, þegar farþegar voru nýsestir að kvöldverði kom högg kom á skipið þegar það rakst á rifið. Mikil skelfing greip um sig meðal farþeganna þegar skipið lagðist á hliðina.
Flestir farþeganna voru ítalskir en einnig frá Bretlandi, Þýskalandi, Frakklandi, Spáni, Bandaríkjunum og víðar. Margir voru rosknir og sumir í hjólastól.
Eftir því sem skipið hallaðist meira varð erfiðara að koma út björgunarbátum og hafa sumir farþeganna sagt að þeir hafi litlar sem engar upplýsingar fengið eftir að skipið sökk.
Tala látinna er nú komin upp í fimm en fyrr í dag flutti þyrla í land einn farþega sem fannst á lífi í skipinu.
Alls voru 4229 manns um borð í skipinu þegar það strandaði. Fyrr í morgun var talið að 41 væri saknað en eftir að búið er að fara yfir farþegalista og lista yfir þá sem bjargað var í land, lækkaði sú tala. Var 11 farþega og 6 úr áhöfn skipsins saknað áður en líkin tvö fundust.
Erlent »
Miðvikudagur, 23.5.2012
-
Evruskuldabréf aftur á dagskrá
- Gróft einelti í sænskum heimavistarskóla
- Hótuðu að halda barninu eftir
- Olía alls ekki að ganga til þurrðar
- Hælisleitendur í hungurverkfalli
- Sprengjukona ekki ákærð
- Undirbúi sig fyrir grískt brotthvarf
- Romney lofar minna atvinnuleysi
- Vill skera upp herör gegn mafíunni
- Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum
- Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan
- Segja Watson fá réttláta meðferð
- Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
- Myrti dóttur sína og bútaði hana niður
- Taldi sig afhöfða geimveru
- Lifði af fall niður Niagara fossana
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
- Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu
Þriðjudagur, 22.5.2012
- Breivik fær tíma til útskýringa
- Tæp 60 þúsund í fangelsi á Kúbu
- Sagðist vera með sprengju í líkamanum
- Kennarar og nemendur mótmæla
- 14 ára skaut á skólafélaga
- Væri upphafið að endalokum evrunnar
- Ummæli prests vekja reiði
- Gríski harmleikurinn heldur áfram
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- Sýrland
- Efnahagsvandræði á evrusvæðinu
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Skuldavandi Grikklands
- Forkosningar Repúblikana 2012
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 20. janúar 2012, Erlent Vonir dvína um að fleiri finnist á lífi
- Föstudagur, 2. mars 2012, Erlent Vitnaleiðslur vegna Costa Concordia
- Sunnudagur, 15. janúar 2012, Erlent Fundu tvö lík í skipinu
- Laugardagur, 21. janúar 2012, Erlent Lík fannst í skemmtiferðaskipi
- Laugardagur, 14. janúar 2012, Erlent Tveir Frakkar og einn Perúbúi létust
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur
-
Kristján: Þurfum að vinna okkur út úr þessu
-
Ásmundur: Búnir að bíða lengi





































