Enn leitað í Costa Concordia
Kafarar og björgunarsveitarmenn hafa í dag og í kvöld leitað í skemmtiferðaskipinu Costa Concordia, sem sökk við strendur Toskana sl. föstudag. Margir óttast umhverfisslys leki olía í hafið, en um 2.380 tonn af eldsneyti eru um borð í skipinu.
Fyrirtækið Costa Cruises, sem á skipið, segir að skipstjórinn Francesco Schettino hafi gerst sekur um að breyta stefnunni án leyfis. Pier Luigi Foschi, forstjóri Costa Cruises, sakar skipstjórann um að hafa siglt of nærri nálægum eyjum til að sýna íbúum í landi skipið.
Vegna mikils öldugangs urðu menn að yfirgefa skipið í nokkrar klukkustundir í dag. Skipið, sem er með 17 þilför, liggur á hliðinni rétt við strönd Ítalíu og marar það í hálfu kafi á skeri. Menn óttuðust hins vegar að skipið færi allt á kaf í ölduganginum í dag.
Corrado Clini, umhverfisráðherra Ítalíu, segir að það verði tekin ákvörðun um að lýsa yfir neyðarástandi á næsta ríkisstjórnarfundi næsta fimmtudag - mögulega fyrr. Það verði gert til að setja meira fé í björgunaraðgerðir og hreinsunarstörf, ef það verður umhverfisslys.
Ítalska strandgæslan sagði í kvöld að 29 sé enn saknað. Meðal annars ferðamenn frá Bandaríkjunum, Frakklandi, Þýskalandi og Ítalíu. Lík karlmanns fannst snemma í morgun og alls hafa því sex látist af völdum slyssins.
Yfirmaður köfunarteymis ítölsku strandgæslunnar segir að aðstæður inni í skipinu séu skelfilegar. „Þetta er mjög erfitt. Á göngunum er mikil óreiða og það er erfitt fyrir kafarana að synda í gegn,“ segir Rodolfo Raiteri.
Erlent »
Miðvikudagur, 23.5.2012
-
Evruskuldabréf aftur á dagskrá
- Gróft einelti í sænskum heimavistarskóla
- Hótuðu að halda barninu eftir
- Olía alls ekki að ganga til þurrðar
- Hælisleitendur í hungurverkfalli
- Sprengjukona ekki ákærð
- Undirbúi sig fyrir grískt brotthvarf
- Romney lofar minna atvinnuleysi
- Vill skera upp herör gegn mafíunni
- Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum
- Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan
- Segja Watson fá réttláta meðferð
- Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
- Myrti dóttur sína og bútaði hana niður
- Taldi sig afhöfða geimveru
- Lifði af fall niður Niagara fossana
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
- Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu
Þriðjudagur, 22.5.2012
- Breivik fær tíma til útskýringa
- Tæp 60 þúsund í fangelsi á Kúbu
- Sagðist vera með sprengju í líkamanum
- Kennarar og nemendur mótmæla
- 14 ára skaut á skólafélaga
- Væri upphafið að endalokum evrunnar
- Ummæli prests vekja reiði
- Gríski harmleikurinn heldur áfram
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- Sýrland
- Efnahagsvandræði á evrusvæðinu
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Skuldavandi Grikklands
- Forkosningar Repúblikana 2012
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 24. janúar 2012, Erlent Var komin í björgunarvesti
- Laugardagur, 28. janúar 2012, Erlent Urðu að hætta vegna veðurs
- Þriðjudagur, 24. janúar 2012, Erlent Undirbúa hreinsunarstarfið
- Þriðjudagur, 17. janúar 2012, Erlent Vonir dvína á Ítalíu
- Laugardagur, 28. janúar 2012, Erlent Hafa fundið 17 lík
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur
-
Kristján: Þurfum að vinna okkur út úr þessu
-
Ásmundur: Búnir að bíða lengi





































