Vildi gleðja yfirþjóninn
Skipstjóri ítalska skemmtiferðaskipsins Costa Concordia sigldi of nálægt Giglio-eyju til þess að gleðja yfirþjón skipsins, sem er frá eyjunni, samkvæmt frétt ítalska dagblaðsins Corriere della Sera í dag. Sex lík eru fundin en enn er einhverra saknað.
Skipstjórinn, Francesco Schettino, var handtekinn á laugardag og á hann yfir höfði sér ákæru fyrir manndráp af gáleysi og fyrir að hafa yfirgefið skipið áður en öllum farþegunum var bjargað frá borði.
Samkvæmt frétt blaðsins kallaði skipstjórinn yfirþjón skipsins, Antonello Tievoli, upp í brú og sagði: „Antonello sjáðu hvað við erum komin nálægt Giglio,“ hefur blaðið eftir þjónustustúlku sem var um borð.
Tievoli átti að fara í leyfi vikuna á undan en þar sem enginn fannst í hans stað var honum synjað um leyfi. Schettino ætlaði því að gleðja vinnufélaga sinn með siglingunni. Í fréttinni kemur einnig fram að skömmu fyrir strandið hafi Tievoli sagt þar sem hann stóð í brú skipsins: „Farðu varlega, við erum ákaflega nálægt ströndinni.“
Fimmtán er enn saknað eftir strandið á föstudagskvöldið. Yfir 4.200 manns frá 60 þjóðlöndum voru um borð í skipinu, um 3.200 farþegar og rúmlega þúsund manna áhöfn.
Schettino sagði ítölskum fjölmiðlum á laugardaginn að siglt hefði verið á eðlilegum hraða og samkvæmt sjókorti hefði skipið ekki átt að geta siglt á rifið. Gianni Onorato, forstjóri Costa Crociere, fyrirtækisins sem á Costa Concordia, sagði skipið ekki hafa villst af leið en íbúar Giglio hafa hins vegar sagt við fjölmiðla að skipið hafi siglt allt of nálægt landi.
Onorato hefur sagt að um mannleg mistök hafi verið að ræða.
Erlent »
Miðvikudagur, 23.5.2012
-
Evruskuldabréf aftur á dagskrá
- Gróft einelti í sænskum heimavistarskóla
- Hótuðu að halda barninu eftir
- Olía alls ekki að ganga til þurrðar
- Hælisleitendur í hungurverkfalli
- Sprengjukona ekki ákærð
- Undirbúi sig fyrir grískt brotthvarf
- Romney lofar minna atvinnuleysi
- Vill skera upp herör gegn mafíunni
- Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum
- Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan
- Segja Watson fá réttláta meðferð
- Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
- Myrti dóttur sína og bútaði hana niður
- Taldi sig afhöfða geimveru
- Lifði af fall niður Niagara fossana
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
- Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu
Þriðjudagur, 22.5.2012
- Breivik fær tíma til útskýringa
- Tæp 60 þúsund í fangelsi á Kúbu
- Sagðist vera með sprengju í líkamanum
- Kennarar og nemendur mótmæla
- 14 ára skaut á skólafélaga
- Væri upphafið að endalokum evrunnar
- Ummæli prests vekja reiði
- Gríski harmleikurinn heldur áfram
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- Sýrland
- Efnahagsvandræði á evrusvæðinu
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Skuldavandi Grikklands
- Forkosningar Repúblikana 2012
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 19. janúar 2012, Erlent Vilja yfirheyra konu frá Moldavíu
- Þriðjudagur, 7. febrúar 2012, Erlent Skipstjóri í stofufangelsi
- Sunnudagur, 22. janúar 2012, Erlent Leit í skipinu hætt
- Miðvikudagur, 18. janúar 2012, Erlent „Datt“ ofan í björgunarbátinn
- Sunnudagur, 15. janúar 2012, Erlent Skipstjórinn gerði mistök
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur
-
Kristján: Þurfum að vinna okkur út úr þessu
-
Ásmundur: Búnir að bíða lengi





































