Ósáttir við sólarhringsafgreiðslutíma
Eigendur lítilla verslana í höfuðborg Spánar, Madríd, hafa andmælt áformum borgaryfirvalda um að heimila verslunum að hafa opið allan sólarhringinn. Borgaryfirvöld telja að með því eigi verslun eftir að aukast en kaupmenn eru ekki sammála þeim rökum yfirvalda og segja að þeir eigi ekki möguleika á að keppa við stóru vöruhúsin og verslunarkeðjurnar.
Borgaryfirvöld vilja með þessu auka frjálsræði í borginni og það eigi að vera í höndum kaupmanna að ákveða hversu lengi verslanir þeirra séu opnar. Ítalir komu á svipuðum breytingum fyrr á árinu og heimiluðu verslunareigendum að hafa verslanir opnar allan sólarhringinn í þeirri von að það myndi auka hagvöxt í landinu.
Í Madríd eru reglur um afgreiðslutíma verslana með þeim frjálslegustu á Spáni en þar er heimilt að hafa verslanir opnar til klukkan 22 alla daga vikunnar árið um kring. Kaupmenn, sem oft starfa einir eða með fleirum úr fjölskyldunni í verslunum, eru hins vegar ekki ánægðir með að lengja afgreiðslutímann. Þeir geti ekki keppt við stórmarkaði í verði og það sé nóg að hafa búðir opnar til klukkan 22. Flestir loki fyrr og hafi lokað á sunnudögum fyrir utan verslunareigendur í hverfum þar sem túristar eru fjölmennir.
75 þúsund litlar verslanir eru reknar í Madríd og starfa 320 þúsund manns hjá þeim, flestallt fjölskyldureknar verslanir. Segja kaupmenn að þeir vilji áfram eiga fjölskyldulíf og það sé ekki hægt ef þeir neyðist til þess að hafa búðirnar opnar allan sólarhringinn.
Aftur á móti fagna stóru vöruhúsin og verslanakeðjurnar hugmyndum um sólarhringsafgreiðslutíma verslana og telja að þetta geti skapað 20 þúsund ný störf. Smásala hefur dregist mikið saman á Spáni í kjölfar efnahagskreppunnar árið 2008. Á síðustu þremur árum hafa um fimm þúsund verslanir gefið upp öndina í Madríd vegna kreppunnar.
Erlent »
Miðvikudagur, 23.5.2012
-
Evruskuldabréf aftur á dagskrá
- Gróft einelti í sænskum heimavistarskóla
- Hótuðu að halda barninu eftir
- Olía alls ekki að ganga til þurrðar
- Hælisleitendur í hungurverkfalli
- Sprengjukona ekki ákærð
- Undirbúi sig fyrir grískt brotthvarf
- Romney lofar minna atvinnuleysi
- Vill skera upp herör gegn mafíunni
- Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum
- Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan
- Segja Watson fá réttláta meðferð
- Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
- Myrti dóttur sína og bútaði hana niður
- Taldi sig afhöfða geimveru
- Lifði af fall niður Niagara fossana
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
- Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu
Þriðjudagur, 22.5.2012
- Breivik fær tíma til útskýringa
- Tæp 60 þúsund í fangelsi á Kúbu
- Sagðist vera með sprengju í líkamanum
- Kennarar og nemendur mótmæla
- 14 ára skaut á skólafélaga
- Væri upphafið að endalokum evrunnar
- Ummæli prests vekja reiði
- Gríski harmleikurinn heldur áfram
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- Sýrland
- Efnahagsvandræði á evrusvæðinu
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Skuldavandi Grikklands
- Forkosningar Repúblikana 2012
Svipaðar fréttir
- Sunnudagur, 26. desember 2010, Erlent Verkfall og útsölur í London
- Miðvikudagur, 9. nóvember 2011, Erlent Gríðarleg fjölgun fátækra á Spáni
- Þriðjudagur, 16. ágúst 2011, Erlent Óeirðirnar ógna hagkerfi
- Laugardagur, 15. október 2011, Erlent Mikil flóð í Taílandi
- Þriðjudagur, 9. ágúst 2011, Erlent Gagnrýna kostnað við komu páfa
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur
-
Kristján: Þurfum að vinna okkur út úr þessu
-
Ásmundur: Búnir að bíða lengi





































