Blaðamenn trufluðu rannsóknina
Síðasta eintak News of the World. Útgáfu blaðsins var hætt eftir að símahlerunarmálin komust í hámæli. Reuters
Blaðamenn breska blaðsins News of the World lugu að lögreglu og trufluðu rannsókn á hvarfi Milly Dowler árið 2002 samkvæmt skýrslu lögreglunnar í Surrey sem bresk þingnefnd gerði opinbera í dag. Blaðamenn blaðsins hafa áður verið sakaðir um að eyða skilaboðum úr talhólfi stúlkunnar sem gerði það að verkum að foreldrar hennar töldu að hún væri enn á lífi. Dowler fannst síðar látin. Breska blaðið The Guardian segir frá þessu á vefsíðu sinni.
Skýrslan byggist á dagbók lögreglu frá árinu 2002 og bendir hún til þess að starfsmenn vikublaðsins hafi reynt að þvinga rannsóknarlögreglumenn til þess að styðja við sínar eigin kenningar um hvað hefði gerst. Viðurkenndu blaðamennirnir jafnvel opinskátt að þeir hefðu haft aðgang að talhólfsskilaboðum stúlkunnar. Drógu þeir þá röngu ályktun af þeim að hún væri enn á lífi.
Í stað þess að greina fjölskyldu stúlkunnar frá þessum mikilvægu upplýsingum virðist sem að blaðamennirnir hafi reynt að næla sér í stóra frétt. Það var ekki fyrr en daginn áður en blaðið kom út að þeir höfðu samband við yfirvöld.
Í dagbókarfærslum lögreglunnar er bókað að atvinnumiðlun í norðurhluta Englands, sem hafði ekkert með Dowler að gera en blaðið taldi að hefði ráðið hana, hafi kvartað undan því að heill her af blaðamönnum frá New of the World hefði tekið á móti starfsfólki um morguninn og væri að áreita það. Héldu blaðamennirnir því fram að þeir væru í fullu samstarfi við lögregluna í málinu en það reyndist lygi.
Þá hringdi einhver í atvinnumiðlunina og sagðist vera móðir Dowler. Í kjölfarið hélt blaðamaður News of the World því fram við lögreglu að Dowler hefði verið tekin á skrá hjá miðluninni. Það reyndist einnig vera lygi.
Þá hélt blaðamaður blaðsins því fram við lögreglu að hann hefði nýjar upplýsingar um málið. Atvinnumiðlunin hefði hringt í Dowler og skilið eftir talshólfsskilaboð. Lögregla komst að þeirri niðurstöðu að um tilviljun hafi verið að ræða. Atvinnumiðlunin hefði hringt í vitlaust númer og skilið eftir skilaboð til annarrar manneskju að nafni Nana en blaðamenn News of the World virðast hins vegar hafa sannfært sjálfa sig um að hægt væri að heyra nafnið Amanda út úr því. Það var fyrra nafn Milly Dowler.
Þrátt fyrir þetta hélt blaðið því fram í fyrstu fréttum sínum af málinu að þessi nýja „vísbending“ vekti áhuga lögreglu. Þá var vitnað í talhólfsskilaboð stúlkunnar og látið í veðri vaka að lögregla hefði haft uppi á þeim. Eftir að lögreglan í Surrey mótmælti þessum fréttaflutningi var síðari útgáfum fréttarinnar breytt.






































