Spenna milli Frakka og Tyrkja
Tyrknesk stjórnvöld hafa brugðist ókvæða við því að franska þingið samþykkti í gærkvöldi lagafrumvarp um að það varði við hegningarlög að afneita því að Ottómanar (Tyrkir) hafi framið þjóðarmorð á Armenum meðan á fyrri heimsstyrjöld stóð.
Öldungadeildin samþykkti frumvarpið með 127 atkvæðum gegn 86 en fulltrúadeild þingsins samþykkti það í desember. Það verður nú sent Nicolas Sarkozy, forseta Frakklands, til staðfestingar. Búist er við að forsetinn staðfesti lögin fyrir lok næsta mánaðar en það voru þingmenn UMP, flokks Sarkozys, sem lögðu frumvarpið fram.
Tyrkneska utanríkisráðuneytið sagði að þessi ákvörðun franska þingsins væri ábyrgðarlaus og hótaði aðgerðum. Þá sagði Sadullah Ergin, dómsmálaráðherra Tyrklands, við sjónvarpsstöðina CNN-Turk, að Frakkar sýndu með þessu Tyrkjum algera vanvirðingu.
Armenar segja að allt að 1,5 milljónir manna hafi látið lífið á árunum 1915-1916 þegar ríki Ottómana liðaðist í sundur. Tyrkir hafna því að þjóðarmorð hafi verið framið og segja að tala látinna hafi verið mun lægri.
Recep Tayyip Erdogan, forsætisráðherra Tyrklands, sakaði Frakka um hræsni og gaf í skyn að væntanlegar forsetakosningar í Frakklandi hefðu spilað inn í ákvörðun franska þingsins. Um hálf milljón manna af armenskum uppruna býr í Frakklandi.
Sarkozy skrifaði Erdogan í síðustu viku og sagði að frumvarpinu væri ekki beint gegn neinu einstöku landi. Frakkar viðurkenndu að Tyrkir hefðu liðið miklar þjáningar á lokaskeiði ríkis Ottómana.
Erlent »
Miðvikudagur, 23.5.2012
-
Evruskuldabréf aftur á dagskrá
- Gróft einelti í sænskum heimavistarskóla
- Hótuðu að halda barninu eftir
- Olía alls ekki að ganga til þurrðar
- Hælisleitendur í hungurverkfalli
- Sprengjukona ekki ákærð
- Undirbúi sig fyrir grískt brotthvarf
- Romney lofar minna atvinnuleysi
- Vill skera upp herör gegn mafíunni
- Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum
- Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan
- Segja Watson fá réttláta meðferð
- Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
- Myrti dóttur sína og bútaði hana niður
- Taldi sig afhöfða geimveru
- Lifði af fall niður Niagara fossana
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
- Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu
Þriðjudagur, 22.5.2012
- Breivik fær tíma til útskýringa
- Tæp 60 þúsund í fangelsi á Kúbu
- Sagðist vera með sprengju í líkamanum
- Kennarar og nemendur mótmæla
- 14 ára skaut á skólafélaga
- Væri upphafið að endalokum evrunnar
- Ummæli prests vekja reiði
- Gríski harmleikurinn heldur áfram
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- Sýrland
- Efnahagsvandræði á evrusvæðinu
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Skuldavandi Grikklands
- Forkosningar Repúblikana 2012
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 22. desember 2011, Erlent Banna að afneita þjóðarmorði
- Laugardagur, 17. desember 2011, Erlent Tyrkir vara Frakka við nýju frumvarpi
- Föstudagur, 7. október 2011, Erlent Tyrkir viðurkenni þjóðarmorð
- Miðvikudagur, 4. janúar 2012, Erlent Frumvarp sem bannar að neita því að fjöldamorð sé þjóðarmorð
- Fimmtudagur, 24. mars 2011, Erlent Segir NATO munu taka við
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur
-
Kristján: Þurfum að vinna okkur út úr þessu
-
Ásmundur: Búnir að bíða lengi




































