Hætta störfum í Sýrlandi
Arababandalagið segir að ofbeldisverk hafi færst mjög í aukana í Sýrlandi og þar af leiðandi hefur bandalagið ákveðið hætta að halda úti eftirliti í landinu.
„Við höfum ákveðið að stöðva eftirlit Arababandalagsins í Sýrlandi vegna aukinna ofbeldisverka, en formleg tilkynning mun berast síðar,“ segir embættismaður hjá bandalaginu, sem vildi ekki láta nafns síns getið, í samtali við AFP.
Mohammed Ahmed Mustafa al-Dabi, sem fer fyrir eftirlitsmönnunum, sagði í gær að átök hefðu færst í aukana í vikunni, sérstaklega í borgunum Homs og Hama en einnig í Idlib-héraðinu í norðurhluta landsins.
Hann sagði að ofbeldi fengi menn ekki að samningaborðinu.
Að minnsta kosti 193, meirihlutinn saklausir borgarar, hafi látist í átökum í Sýrlandi frá því á þriðjudag, samkvæmt tölum sem AFP hefur fengið frá embættismönnum og mannréttindasamtökum.
Alls hafa 165 eftirlitsmenn frá Arababandalaginu verið að störfum í Sýrlandi. Þeir komu til landsins 26. desember þegar stjórnvöld í Sýrlandi sögðust samþykkja áætlun sem miðaði að því að stöðva allt ofbeldi, sleppa föngum úr fangelsi og fjarlægja skriðdreka úr hverfum. Einnig sögðust þau samþykkja að leyfa eftirlitsmönnunum og erlendum fjölmiðlum að ferðast um landið án takmarkana.
Sýrlensk stjórnvöld hafa aftur á móti ekki virt þessi skilyrði.
Erlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- Fordæma morð á óbreyttum borgurum
- Háaldraður stríðsglæpamaður látinn
- Hertar innflytjendareglur ef evran hrynur
- Skaut af handahófi
- Vill endurvekja egypsku byltinguna
- Gómuðu gengi hjólaþjófa
- Pútín fagnar bróður í anda
-
Lokaæfingar í Bakú
- Jarðsett 20 árum eftir dauðann
- Bakúbúar í startholunum
- Medvedev formaður Sameinaðs Rússlands
- Tveir létust í árás í Finnlandi
- Kennurum voru sýnd kynfæri nemenda
- Segja kjarnorkutilraunir friðsamlegar
- Skothríð í Finnlandi
- Segja fjöldamorð framið í Sýrlandi
- Vill fyrir Mannréttindadómstólinn
- Áframhaldandi mótmæli í Sýrlandi
- Úran í Íran auðugra en talið var
- „Duglegasti“ Eurovision keppandinn
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
- Fær 3.000 ár til að borga skattaskuld
- Starfsmaður Vatíkansins handtekinn
- Þjóðverjar vilja Grikki af evrusvæðinu
- Ferrari innkallar 56 bíla
- Breivik vildi plástur á fingurinn
- Meirihluti Skota andvígur sjálfstæði
- Vill að viðskiptaþvingunum verði aflétt
- Mursi mæti Shafiq
- Fangar ósáttir við óhrein hnífapör
- Tókst að góma flóttamörgæsina 337
- Skaut son sinn og framdi síðar sjálfsvíg
- Veitir fjölskyldunni vonandi einhvern frið
- Meintur fjöldamorðingi í haldi
- Búsáhaldabylting í Quebec
- Stjórnendur Rena dæmdir í fangelsi
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
- Hollande í Afganistan
- Jarðskjálfti í Christchurch
- Sýrland
- Skuldavandi Grikklands
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Efnahagsvandræði á evrusvæðinu
- Forkosningar Repúblikana 2012
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 12. nóvember 2011, Erlent Beita Sýrlendinga refsiaðgerðum
- Fimmtudagur, 22. desember 2011, Erlent Eftirlitsmenn væntanlegir til Sýrlands
- Sunnudagur, 22. janúar 2012, Erlent Halda áfram störfum í Sýrlandi
- Miðvikudagur, 4. janúar 2012, Erlent Bera ábyrgð á fjöldamorðum
- Fimmtudagur, 17. nóvember 2011, Erlent Ástandið minnir á borgarastríð
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju



































